Eins og Steve Jobs hafi verslað í fataskápinn hans Rakel Sveinsdóttir skrifar 9. maí 2026 10:02 Aríel Pétursson, formaður Sjómannadagsráðs og sjóliðsforingi, með hundinum Káti sem eflaust vaknar töluvert á undan Aríel á morgnana. Enda segist Aríel taka af sér snjallúrið vel fyrir miðnætti af ótta við að það opinberi slæmar svefnvenjur hans. Vísir/Vilhelm Aríel Pétursson, formaður Sjómannadagsráðs og sjóliðsforingi, á fjögur börn en er afar morgunsvæfur. Það sem í raun bjargar morgnunum heima fyrir er árisul og góð eiginkona en almennt er Aríel síðan svo rútínufastur að meira að segja sömu fötin eru keypt aftur og aftur í verslunum.
Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fólk fer að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni. Hvenær vaknar þú á morgnana? „Þessi spurning kemur mér ekki vel. Ég er afar morgunsvæfur en á fjögur ung börn og góða eiginkonu sem öll eru árrisulli en ég sjálfur svo ég kemst ekki hjá því að vakna við bramboltið. Ég skreiðist fram úr þegar flestir eru komnir langt á veg með morgunmatinn.“ Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana? „Ég er óskemmtilega rútínufastur. Ég drekk alltaf nákvæmlega sama staðlaða púðakaffibollann frá Te&kaffi úr sömu ódýru senseo-vélinni sem hefur dugað síðustu 8 árin og blanda nýmjólk við til helminga. Að því loknu fer ég í fataskápinn minn sem er eins og Steve Jobs hafi verslað í, það er að segja ég gríp einar af svörtu gallabuxunum sem eru allar nákvæmlega eins. Það sama má segja um skyrturnar sem eru allar frá sama framleiðanda sem er afar hentugt. „Sama og síðast“ einkennir allar ferðir mínar í fataverslanir. Svo er algjört lykilatriði að kyssa konuna og börnin áður en leiðin liggur í vinnuna.“ Hlærðu stundum að þinni eigin fyndni? „Algjörlega. Það er þó ekki nema á nokkurra ára fresti sem mér tekst að hlæja sjálfan mig og það þarf að haldast í hendur við að engum öðrum þyki það. Dæmi: Fyrir þó nokkrum árum var ég staddur í gleðskap þar sem einn gestanna hét Páll. Þegar leið á kvöldið bættist við annar maður að nafni Páll. Þá gekk ég á dyr og sagði að mér væri ekki til setunnar boðið því veislugestirnir væru orðnir algjörlega bí-pálar.“ Aríel segir ákveðna sælu- og sigurtilfinningu fylgja því þegar verkefnalistinn, sem skrifaður er niður á minnismiða, er allur útstrikaður og klár í tunnuna. Að skrifa allt niður virkar því best fyrir hann til að halda utan um skipulagið, auk hreyfingar og hreystis.Vísir/Vilhelm Í hvaða verkefni ertu að vinna helst þessa dagana? „Stærstu verkefnin þessa dagana tengjast áframhaldandi uppbyggingu Sjómannadagsráðs fyrir dótturfélög sín, Hrafnistu og DAS-íbúðir, sérstaklega í Hafnarfirði þar sem stefnt er að stækkun hjúkrunarheimilisins og fjölgun íbúða fyrir eldri borgara. Það er bæði stórt og gefandi verkefni. Svo er sjómannadagurinn á Grandanum fram undan, 7. júní, og þar fer ótrúleg orka í undirbúninginn á hverju ári.“ Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu? Ég er nokkuð gamaldags þegar kemur að þessu. Ef það eru ákveðin atriði sem ég þarf að klára yfir vikuna eða daginn þá hreinlega skrifa ég þau á minnismiða og strika yfir og þegar miðinn er útstrikaður þá fer hann beint í tunnuna. Þá fylgir því mikil sælu- og sigurtilfinning. Svo bý ég að því að vera nokkuð minnugur og ég leyfi verkefnum í þróun að eiga sitt pláss í þar til gerðum hólfum í höfðinu. Til að hugur og sál virki vel þarf þó að rækta búkinn svo ég verð helst daglega að komast í líkamsrækt og fá útrás fyrir töluverða kraftadellu sem hrjáir mig. Á meðan á því stendur þroskast og þróast helstu hugmyndir sem ég svo hrindi síðar í framkvæmd með aðstoð miðanna góðu.“ Hvenær ferðu að sofa á kvöldin? „Það er ekki til fyrirmyndar. Ég fer helst ekki að sofa fyrr en mér líður eins og ég hafi nýtt daginn til fullnustu, hafi klárað þau verkefni í vinnu og á heimilinu sem ég ætlaði mér, hafi notið dagsins með fjölskyldunni og það er vel að merkja algjörlega ófrávíkjanlegt að við borðum alltaf kvöldmat saman. Þegar við hjónin erum búin að svæfa börnin þá er kjörið að setjast með hljóðfæri og glíma við að læra nýtt lag, nú eða slökkva á hausnum yfir mátulega góðum amerískum þætti. Af ótta við að snjallúrið dæmi mig fyrir ókristilegar svefnvenjur þá er ég löngu búinn að taka það af mér fyrir miðnætti en það er vel skriðið yfir það þegar ég loks legg höfuðið á koddann.“
Kaffispjallið Tengdar fréttir Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Þegar Heiða Halldórsdóttir, forstjóri Orkusölunnar, var unglingur fannst henni leikarinn Johnny Depp svo sætur að hún átti stundum erfitt með að anda. Ólíkir karakterar á heimilinu setja skemmtilegan svip á morgunvenjur heimilisins. 2. maí 2026 10:03 Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Baldur Rafn Gylfason, hárgreiðslumeistari og eigandi bpro heildsölu, er vaknaður eldsnemma á morgnana og rýkur þá beint af stað á æfingu. Viðurkennir þó að fara of seint að sofa á kvöldin og væri alveg til í að festa það betur í rútínunni að ná að anda djúpt, hugleiða og rækta þakklætið á hverjum degi. 18. apríl 2026 10:01 Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Melkorka Sigríður Magnúsdóttir, listrænn stjórnandi Iceland Innovation Week og framkvæmdastjóri Milk & Kleina, mælir með hugsanalestri því hann sparar bæði tíma og óþarfa fundi. Melkorka segist vera dottin í smá nörd á morgnana: Dagarnir byrji á skoðun tölfræði um svefn næturinnar. 25. apríl 2026 10:00 Alltaf jafn hressandi að fara út og tala aðeins við hundinn Fannar Örn Þorbjörnsson, framkvæmdastjóri Terra Eininga og Öryggisgirðinga, segir það alltof gott að snúsa á morgnana. Reglulega reynir hann þó að fara í átak, vakna klukkan 06.30 og skella sér í ræktina áður en hann fer að vinna. Síðan hefst snúsið á ný. 4. apríl 2026 10:02 Foreldrarnir byrja daginn á því að dansa og dilla sér Lilja Kristín Birgisdóttir, markaðs- og upplifunarstjóri hjá Högum, viðurkennir að fara alltof seint að sofa. Hundurinn sér síðan um að koma henni fram úr um sex leytið. Synirnir eru ekkert alltof hrifnir af því að foreldrarnir byrji daginn með dansi. 11. apríl 2026 10:00 Mest lesið John Strickland: Icelandair þarf að vera snjallt þegar nýjar þotur breyta leiknum Viðskipti innlent Þróunin í þá átt að verða enn meiri kaupendamarkaður Viðskipti innlent Rakel nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Viðskipti innlent Vilja að Evrópa velji á milli loftslagsins og gervigreindarkapphlaupsins Viðskipti erlent Segir ríkar ástæður fyrir því að flugmenn eigi að vera vel launaðir Viðskipti innlent Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Viðskipti innlent Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Viðskipti innlent Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum Viðskipti innlent Að fólk skilji garðhúsgagnabúslóðirnar eftir heima Neytendur Milla ætlar í formanninn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sumarfrísdagur númer átta mesta sælan Stærstu afrekin að koma öllum út úr húsi á tíma Vélmenni ráðið til starfa og þú rekinn Meiri árangur í líkamsrækt og íþróttum með nýrri íslenskri tækni Fjárfestu í karllægum félögum og báðu síðan um fund með forstjóranum Staðalímyndir meira vandamál en kynslóðamunur Feðgin í Firðinum: „Pabbi er besti vinur minn“ Þúsund manna hátíðir ekkert mál en ein lítil kónguló skelfileg! Kynntust í janúar og kynna nýja lausn fyrir matvælaframleiðendur „Þetta er sögudrifinn söngleikur með rómantísku ívafi“ Þegar átta stunda vinnudagur og fimm daga vinnuvika þóttu stórhættulegar hugmyndir Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Ekkert plan: Mun gervigreindin borga tekjuskatt? Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Er blanda af Prins Valíant og Múmínálfinum Ósýnilegir múrar: „Ekki nóg að segja bara að fólk eigi að vinna saman“ Ekki allir geta sagt: „Ég græddi fúlgur fyrir fyrirtækið í dag“ Að læra af fimm mistökum Steve Jobs Eðlilegt að fólk vinni minna mánudag eftir kosningar Gift svo góðum grillara og sér því meira um innivinnuna Kosningastreita og stemning á vinnustöðum Eins og Steve Jobs hafi verslað í fataskápinn hans Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Sjá meira
Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Þegar Heiða Halldórsdóttir, forstjóri Orkusölunnar, var unglingur fannst henni leikarinn Johnny Depp svo sætur að hún átti stundum erfitt með að anda. Ólíkir karakterar á heimilinu setja skemmtilegan svip á morgunvenjur heimilisins. 2. maí 2026 10:03
Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Baldur Rafn Gylfason, hárgreiðslumeistari og eigandi bpro heildsölu, er vaknaður eldsnemma á morgnana og rýkur þá beint af stað á æfingu. Viðurkennir þó að fara of seint að sofa á kvöldin og væri alveg til í að festa það betur í rútínunni að ná að anda djúpt, hugleiða og rækta þakklætið á hverjum degi. 18. apríl 2026 10:01
Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Melkorka Sigríður Magnúsdóttir, listrænn stjórnandi Iceland Innovation Week og framkvæmdastjóri Milk & Kleina, mælir með hugsanalestri því hann sparar bæði tíma og óþarfa fundi. Melkorka segist vera dottin í smá nörd á morgnana: Dagarnir byrji á skoðun tölfræði um svefn næturinnar. 25. apríl 2026 10:00
Alltaf jafn hressandi að fara út og tala aðeins við hundinn Fannar Örn Þorbjörnsson, framkvæmdastjóri Terra Eininga og Öryggisgirðinga, segir það alltof gott að snúsa á morgnana. Reglulega reynir hann þó að fara í átak, vakna klukkan 06.30 og skella sér í ræktina áður en hann fer að vinna. Síðan hefst snúsið á ný. 4. apríl 2026 10:02
Foreldrarnir byrja daginn á því að dansa og dilla sér Lilja Kristín Birgisdóttir, markaðs- og upplifunarstjóri hjá Högum, viðurkennir að fara alltof seint að sofa. Hundurinn sér síðan um að koma henni fram úr um sex leytið. Synirnir eru ekkert alltof hrifnir af því að foreldrarnir byrji daginn með dansi. 11. apríl 2026 10:00