Tveir afar hjóla 3.500 kílómetra yfir Bandaríkin Tómas Arnar Þorláksson skrifar 10. maí 2026 16:33 Einar Guttormsson og Hartmann Guðmundsson eru perluvinir. aðsend Hjólreiðamennirnir og perluvinirnir Einar Guttormsson og Hartmann Guðmundsson vinna nú mikið þrek en þeir eru um þessar mundir í heljarinnar hjólaferð um vesturströnd Bandaríkjanna, frá Seattle til Arizona. Þetta er gert til styrktar Parkinsonsamtökunum. Einar er sjálfur með parkinson en lætur það ekki stöðva sig.
Á 37 dögum hjóla þeir 3.500 km til styrktar Parkinsonsamtökunum og til að vekja athygli á því hve miklu hreyfing skiptir í baráttunni við Parkinsonsjúkdóminn. Þeir njóta ekki stuðnings rafhjóla í ferðinni heldur taka þeir leiðina á gamla mátann með hefðbundnum hjólum. „Einar er með Parkinson og hefur lagt mikla áherslu á hreyfingu sem hluta af sinni meðferð og lífsstíl. Hartmann, hjólafélagi hans, fer ferðina með honum frá upphafi til enda,“ segir í tilkynningu Parkinsonsamtakanna. Mikið fjör hefur verið á ferðinni.Aðsend Um ákveðið þrekvirki er að ræða enda er það ekki einungis vegalengdin sem er feiknar löng heldur er einnig mikil hækkun á leið þeirra. Samanlögð hækkun ferðarinnar jafngildir fjórum Everest-tindum. Geri aðrir betur. „Þátttakendur eru frá ýmsum löndum en Einar og Hartmann eru fulltrúar Íslands í ferðinni. Þátttakendur hjóla mislanga leið. Einar og Hartmann lögðu af stað 18. apríl og hjóla alla leiðina, en sífellt fleiri bætast í hópinn sem mun telja 27 manns í lokin. Þar að auki hefur fólk sýnt hópnum stuðning og hjólað með honum eina dagleið. Flestir þátttakendur eru sjálfir með Parkinsonsjúkdóminn, en með í för eru einnig nokkrir hjólreiðamenn sem ekki eru með sjúkdóminn og styðja hópinn á leiðinni,“ segir í tilkynningunni en ferðinni lýkur 24. maí og er því langt komin. Félagarnir hafa nú þegar tætt í sig 2.300 kílómetra. Vinirnir stilla sér upp fyrri mynd með glæsilegum hjólum.aðsend Hópurinn samanstendur af fólki með Parkinson sem hefur æft saman hjólreiðar í gegnum netið með hjólahópnum ZWAP (Zwifters Against Parkinson's Disease) þar sem þau æfa saman og veita hvert öðru stuðning og hvatningu. Fyrir utan það að vera með Parkinson eru flestir þátttakendur komnir yfir sextugt. Þeim félögum hefur verið fagnað alls staðar þar sem þeir koma og hafa ýmsir viðburðir farið fram samhliða hjólaferðinni. Ferðin er jafnframt áheitasöfnun og er safnað fyrir nýjum tækjabúnaði í æfingasal samtakanna. Áheitasöfnunin fer fram á heimasíðu samtakanna, www.parkinson.is. Einnig er hægt að leggja beint inn á reikning samtakanna og styðja þannig við málefnið. Reikningsnúmer: 111-26-25, Kennitala: 461289-1779
Hjólreiðar Íslendingar erlendis Mest lesið Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Lífið Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Lífið Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Lífið Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ Lífið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Lífið White Lotus-stjarna bætist í leikhópinn Bíó og sjónvarp Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Kempa leikstýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Sjá meira