Kerfisvilla leiðrétt og spýtukofinn fær að standa Þórarinn Þórarinsson skrifar 13. maí 2026 17:00 Spýtukofanum er borgið þannig að Anna Kristín og krakkarnir hennar geta, ásamt öðrum foreldrum og börnum við Lynghaga, brosað breitt eftir sigur í taugatrekkjandi varnarbaráttu við kerfið. Vísir/Samsett Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar hefur leitt deiluna um framtíð spýtukofans við Lynghaga til farsælla lykta og hann fær að standa áfram með ósköp einfaldri lausn á því sem virðist hafa verið tilbúið kerfislægt vandamál og sannkallaður stormur í vatnsglasi.
Fréttastofa var í beinni útsendingu frá fögnuði barnanna í sjónvarpsfréttum. Sjá í klipppunni að neðan. Hann var ósvikinn. „Við erum bara búin að fá mjög afdráttarlaust leyfi fyrir tímabundum afnotum af borgarlandi undir kofann en í stjórnsýslunni er þetta nú bara leyfi sem allir borgarbúar geta sótt um,“ segir Anna Kristín Blöndal Jóhannesdóttir sem hefur nú, ásamt öðrum foreldrum og börnum við Lynghaga, hrundið aðförinni að kofanum.Leyfið nýfengna rennur út í október en Anna Kristín segir kofanum engu að síður borgið þar sem hægt er að sækja um endurnýjun leyfisins og þá væntanlega út í hið óendanlega. „Að því gefnu að við séum ekki að gera eitthvað sem ekki má, rusla til eða eitthvað þannig, sem við erum náttúrulega ekki að gera.“ Anna Kristín segir kofamálið og þá sérstaklega upphaf þess svolítið sérstakt þar sem atlagan að honum hafi verið gerð frá garðyrkju Reykjavíkurborgar, sviði sem hafi í raun ekkert um hann að segja. Garðyrkjan angrar börnin „Þannig að það er eitthvert garðyrkjusvið úti á Fiskislóð, en ekki umhverfis- og skipulagssvið, sem byrjar að angra börnin okkar og okkur með þessu. Þau hafa í raun hvorki umboð til að setja okkur þessa afarkosti né hóta því að rífa,“ segir Anna Kristín.Hún bendir á að þar fyrir utan komi garðyrkjan ekki að neinu slíku niðurrifi, heldur komi það alltaf í hlut umhverfis- og skipulagssviðs. „Þannig að þetta er svolítið sérstakt og engin fyrirmyndarstjórnsýsla hjá borginni þegar einhverjir embættismenn eru að taka sér vald sem þeir hafa ekki. Maður verður svolítið hugsi yfir því, sérstaklega þegar það beinist að börnum.“ Vér mótmælum öll!Aðsend Anna Kristín segir garðyrkjusvið borgarinnar því eiginlega hafa búið þetta vandamál til. „Og svo kom umhverfissviðið og leysti það í rauninni fyrir okkur. Þetta á náttúrlega ekki að vera svona og miðað við hvað þetta er lítið samfélag þá getur báknið í borginni verið svo ógeðslega þungt í vöfum.“ Mikil samstaða Anna Kristín segir hins vegar mjög ánægjulegt, í þeirri sundrungu sem almennt einkenni alla umræðu, að sjá hversu mikil og almenn samstaða myndaðist um kofann eftir að málið komst í hámæli. „Ég er nú ekki mikið á samfélagsmiðlum en hef verið að snuðra um athugasemdakerfin bæði á Vísi og RÚV og þar er bara alls konar fólk og bara allir sammála um hvað þetta er fáránlegt.“ Hún segir umfjöllun fjölmiðla einnig hafa haft þau skemmtilegu áhrif að krökkunum í kringum hann hafi snarfjölgað. „Krakkastraumurinn hingað hefur aukist og fleiri eldri krakkar að koma og það er rosa mikið líf við kofann.“Krakkarnir kalla kofann sinn „listagallerí“ og fáum blöðum er um það að fletta að hann stendur vel undir því og ljóst að hann stendur á frjóum jarðvegi fyrir alls konar menningarlega vaxtarsprota.Anna Kristín segir að þannig hafi fólk haft samband með alls konar hugmyndir um kofann sem miðpunkt skapandi sumarnámskeiða og til dæmis búið að lýsa áhuga á að setja þar upp leiksýningu og gera einhvers konar „krakkaheimildarmynd“ um kofann. „Þannig að þetta er allt búið að vera mjög skemmtilegt og jákvætt.“
Börn og uppeldi Reykjavík Umhverfismál Krakkar Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust hluti af hrekk Innlent Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Erlent Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Innlent Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Erlent Fleiri fréttir Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Sjá meira