Intuens lagði landlækni Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 13. maí 2026 12:51 Intuens segist geta greint yfir 400 mismunandi sjúkdóma með heilskoðun, sem kostar 300.000 krónur. Vísir/Getty Héraðsdómur Reykjavíkur hefur fellt úr gildi ákvörðun landlæknis um að synja Intuens leyfi um að bjóða upp á myndgreiningarrannsóknir án tilvísunar frá lækni. Þá er landlækni gert að greiða fyrirtækinu 2,5 milljónir króna í málskostnað.
Greint var frá því í mars að Intuens hefði höfðað mál á hendur landlækni eftir að embættið tók í annað sinn þá ákvörðun um að heimila ekki slíkar myndgreiningarannsóknir án tilvísunar frá lækni. Málið á sér nokkuð langa sögu en Intuens kom fyrst til skoðunar hjá landlæknisembættinu árið 2023, eftir að fyrirtækið hóf að bjóða upp á svokallaða heilskimun, segulrannsókn á öllum líkamanum, án þess að krefjast tilvísunar frá lækni. Landlæknir neitaði að heimila rannsóknirnar árið 2024 en sú ákvörðun var kærð til heilbrigðisráðuneytisins, sem komst að þeirri niðurstöðu að annmarkar hefðu verið á ákvörðun embættisins. Málið var þá tekið fyrir á ný en landlæknisembættið komst aftur að sömu niðurstöðu. Intuens höfðaði mál gegn embættinu í kjölfarið, þar sem þess er krafist að ákvörðun þess verði felld úr gildi. Landlæknir fer fram á að kröfu Intuens verði hafnað. Skorti viðhlítandi lagastoð Í dómi héraðsdóms segir að rökstuðningur landlæknis fyrir ákvörðun sinni sé á köflum fremur óljós. Landlæknir hafi vísað til faglegra krafna en ekki til annarra skilyrða í heilbrigðislöggjöf. Vísar héraðsdómur til þess að atvinnufrelsi sé verndað samkvæmt stjórnarskrá og atvinnustarfsemi á sviði heilbrigðisþjónustu sé þar ekki undanskilin. Því sé um stjórnvaldsákvörðun að ræða. Hæstiréttur hafi áður áréttað að lagafyrirmæli sem ætlað sé að liggja til grundvallar skerðingu atvinnufrelsis þurfi að vera skýr og verði ekki túlkuð með rýmri hætti, viðkomandi borgara í óhag. Segir héraðsdómur það sé fjarri lagi að það sjónarmið landlæknis fáist staðist að lög setji honum ekki tilteknar skorður um það hvenær honum sé unnt að synja beiðnum þeirra sem hyggjast stunda rekstur heilbrigðisþjónustu. Þá sé ekki lengur vísað til sjónarmiða um kostnað eða gagnsemi í gildandi lögum. Segir héraðsdómur að í samræmi við þetta beri jafnframt að hafna málatilbúnaði landlæknis um að sjónarmið um kostnað geti falist í hugtakinu faglegar kröfur, en á því var byggt í niðurstöðukafla ákvörðunar stefnda þar sem fjallað var um að sú faglega krafa gildi að þeir sem gangist undir skimunarrannsóknir beri að öllu jöfnu aðeins takmarkaðan kostnað af starfseminni. „Í samræmi við framangreinda niðurstöðu skorti viðhlítandi lagastoð fyrir íþyngjandi stjórnvaldsákvörðun stefnda. Er hér um að ræða slíkan ógildingarannmarka að ekki verður hjá því komist að fella hina umþrættu ákvörðun úr gildi.“
Heilskimanir Krabbamein Heilbrigðismál Dómsmál Embætti landlæknis Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Fleiri fréttir Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Sjá meira