Golf

„Hrika­legur dagur“ hjá McIlroy sem fékk fjóra skolla í röð

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Rory McIlroy átti ekki eins sterka byrjun og á Masters-mótinu. Langt því frá.
Rory McIlroy átti ekki eins sterka byrjun og á Masters-mótinu. Langt því frá. Emilee Chinn/Getty Images

Rory McIlroy hefur verið mikil til umræðu í aðdraganda PGA meistaramótsins og norðurírski kylfingurinn átti „hrikalegan“ fyrsta hring á Aronimink golfvellinum í Pennsylvaníu í dag.

McIlroy hefur þurft að hætta snemma á æfingum síðustu tvo daga vegna meiðsla. Hann var með blöðru undir tánöglinni á hægri fæti sem truflaði hann illa. Þrátt fyrir þau vandræði kvaðst McIlroy klár í slaginn.

Annað kom á daginn því McIlroy var langt frá því að sýna sitt besta í dag og sénsinn á að vinna tvö stórmót í röð snarminnkaði undir lok hringsins.

McIlroy byrjaði á 10. holu og fékk strax skolla en svaraði síðan með fugli á 11. holu. Eftir það lék hann á pari næstu holur og var nálægt því að ná fugli á 18. holu en klikkaði á púttinu.

Á seinni níu holunum, eða 1. til 9. holu, lenti McIlroy hins vegar í hrikalegum vandræðum. Hann fékk fimm skolla á síðustu níu holunum, þar af fjóra í röð. Hann lauk því fyrsta hringnum á fjórum höggum yfir pari og er jafn í 119. sæti sem stendur.

„Þetta var hrikalegur dagur,“ sagði McIlroy við Sky Sports.

McIlroy getur þó huggað sig við það að hann er ekki í verri málum en Bryson DeChambeau, sem lauk fyrsta hringnum á sex höggum yfir pari.

McIlroy var í holli með Jon Rahm og Jordan Spieth. Annað stjörnuholl leggur nú af stað upp úr klukkan sjö en þar verða Scottie Scheffler, Matt Fitzpatrick og Justin Rose.

Efstu menn eru þremur höggum undir eftir fyrsta hring en stöðuna má finna hér.

PGA meistaramótið er í beinni útsendingu á Sýn Sport Viaplay alla helgina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×