Lammy segir ekkert fararsnið á Starmer Hólmfríður Gísladóttir skrifar 18. maí 2026 08:19 Starmer og Lammy á góðri stundu. Getty/PA Images/Maja Smiejkowska David Lammy, dómsmálaráðherra Bretlands, segir forsætisráðherrann Keir Starmer ekki hafa í hyggju að segja af sér né leggja fram drög að áætlun um að víkja. Lammy, sem er varaforsætisráðherra og einn nánasti bandamaður Starmer, hefur hvatt flokkssystkin sín til að hætta að hugsa um mögulegt leiðtogakjör og segir umræðuna um það „sjálfsmark“.
Wes Streeting, fráfarandi heilbrigðisráðherra, og Andy Burnham, borgarstjóri Manchester, eru meðal þeirra sem hafa kallað eftir því að Starmer láti gott heita eftir afhroð Verkamannaflokksins í kosningum á dögunum. Flokkurinn tapaði um 1.400 sætum á landsvísu. Lammy sagði hins vegar í samtali við Sky News að Starmer hefði ekki í hyggju að tilkynna það hvenær hann ætlaði að víkja, eins og sumir hafa þrýst á. „Leyfið mér að vera afdráttarlaus; Keir Starmer er harðgerðasta manneskja sem ég þekki. Ég talaði tvisvar við hann í gær. Hann hefur sterkan karakter, er reyndur í baráttu. Það verður ekki lögð fram nein tímatafla.“ Lammy benti á að leiðtogakjörið hefði ekki verið virkjað en til þess þarf áskorandi að afla sér stuðnings 81 þingmanns. Ráðherrann sagði Starmer einbeittan í því að vinna fyrir þjóðina. Þá sagði hann innanflokksátök Verkamannaflokknum ekki til framdráttar. „Ég ætla ekki að sykurhúða þetta; mér finnst Verkamannaflokkurinn hafa skorað stórkostlegt sjálfsmark eftir að niðurstöður kosninganna lágu fyrir,“ sagði Lammy. Hann sagði flokkinn þurfa að standa saman og axla þá ábyrgð að stjórna landinu.
Bretland Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Sjá meira