„Get fullyrt að þetta mun ekki valda neinum réttarspjöllum“ Smári Jökull Jónsson skrifar 19. maí 2026 12:29 Margrét Kristín Pálsdóttir er lögreglustjóri á Suðurnesjum. Hún segir aðrar valdbeitingartæki hafa verið íhuguð en að beita rafvopni Vísir/Ríkislögreglustjóri/Getty Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir að beiting rafvarnarvopns við aðstæður sem uppi voru við handtöku í Keflavík í gær sé varasöm og fullyrðir að engin réttarspjöll verði þó vitni að atvikinu hafi verið gert að eyða myndbandi af handtökunni.
Lögreglan á Reykjanesi var kölluð út í gær vegna einstaklings í ójafnvægi. Í yfirlýsingu lögreglunnar segir að viðkomandi hafi hellt yfir sig íkveikjuvökva og að rafvarnarvopni hafi verið beitt til að yfirbuga hann. Í annarri yfirlýsingu lögreglu sem gefin var út segir að lögreglumenn hafi velt öðrum valdbeitingarkostum fyrir sér en hætta á skaða bæði viðkomandi sem og lögreglumanna hafi verið metin of mikil. „Það eru mörg valdbeitingartæki sem koma til greina, allt frá því að nota rafvopn sem hefur verið talið minna inngrip að nota slíkt vopn heldur en til dæmis að grípa til skotvopna. Þannig að við lítum á að meðalhófs hafi verið gætt, “segir Margrét Kristín Pálsdóttir lögreglustjóri á Suðurnesjum í samtali við fréttastofu. „Ein af þeim aðstæðum sem ber að varast“ Nefnd um eftirlit með lögreglu mun taka málið til skoðunar. Allir lögreglumenn sem bera rafvopn hafa fengið þjálfun í notkun þeirra. „Það er þannig að sumar aðstæður ber að varast en það er hins vegar þannig að það er alltaf mat hverju sinni hvort rafvopn geti hjálpað til við aðgerðir eða ekki,“ segir Margrét. Margrét Kristín Pálsdóttir er lögreglustjóri á Suðurnesjum.Ríkislögreglustjóri Í þjálfun í notkun vopnanna er meðal annars farið yfir í hvaða aðstæðum á að beita þeim. „Ein af þeim aðstæðum sem ber að varast er í svona aðstæðum. Í þessu tilviki þá var það metið svo að það væri í rauninni það mikil hætta fyrir hendi að það væri ekki hægt að beita vægari úrræðum. Það eru mörg atriði sem farið er yfir í þjálfuninni en það eru ekki reglur sem í rauninni banna beitingu tækisins við þessar aðstæður,“ bætir Margrét við. Hún segir að tækin séu orðin það örugg að það séu mjög litlar líkur á að skaði geti hlotist af en vill ekki fara nánar út í hvaða hætta var til staðar við beitingu annarra valdbeitingarkosta. „Þarna var einstaklingur sem ætlaði að vinna sjálfum sér mikinn skaða og það var líka hætta fyrir hendi að lögreglumenn yrðu fyrir skaða.“ Að sögn Margrétar er maðurinn sem handtekinn var íslenskur ríkisborgari. Hún segist ekki hafa miklar upplýsingar um líðan. „Ég hef þær ekki að svo stöddu en það var mikill bruni.“ „Okkur hefur ekki verið boðið að koma“ Framkvæmdastjóri Geðhjálpar segist ekki geta fullyrt um hvaða aðstæður hafi verið uppi í gær en mörg mál séu þekkt þar sem lögregla hafi afskipti af einstaklingum sem glímir við andleg vandamál. „Það er stundum og við höfum bent á það í gegnum tíðina að það virðist vera ákveðið þekkingarleysi á hlutum sem er verið að takast á við og þá geta hlutirnir þróast í ranga átt á staðnum. Við viljum meina að það er verið að beita aðferðum víða um heim þar sem er sérstakt teymi hjá lögreglu sem fer í útköll sem þetta,“ segir Grímur Atlason, framkvæmdastjóri Geðhjálpar. Grímur Atlason er framkvæmdastjóri Geðhjálpar.Vísir/Vilhelm Hann segir samtökin hafa óskað eftir að fá að fræða lögreglumenn um viðbrögð í erfiðum aðstæðum. Bæði nýja lögreglumenn sem og þá sem eru þegar í starfi. „Svona samtal það eykur skilning en því miður þá hefur það ekki gerst. Það hefur ekki verið haft samband við okkur og okkur hefur ekki verið boðið að koma,“ segir Grímur en nánara viðtal við hann verður birt á Vísi síðar í dag. Segir að eyðing myndbands muni ekki valda réttarspjöllum Vitni var að handtökunni í gær en lögregla lét hann hins vegar eyða myndbandi sem hann tók af atvikinu. Margrét Kristín segir ekki fyrir hendi beina lagaheimild sem kveði á um að lögregla megi eyða myndefni, ætlunin hafi verið að verja þann einstakling sem þarna um ræðir. „Í þessu tilviki þá var um að ræða einstakling í miklu ójafnvægi og hann var án fata. Þau fyrirmæli sem gefin voru um að eyða myndskeiðinu voru þeim einstaklingi til varnar og í hans hag. Það var alls ekki þannig að lögreglan væri að reyna að verja sín störf með einhverjum hætti með því að fara fram á eyðingu þess.“ Allar aðgerðir lögreglu séu til á myndbandsupptöku en lögreglumenn báru búkmyndavélar og ásamt gögnum úr rafbyssu gefi þær greinargóða mynd af aðstæðum. Af og frá sé að verið sé að hindra að störf hennar séu tekin upp. „Ég get alveg fullyrt að þetta muni ekki valda neinum réttarspjöllum ef svo má segja,“ segir Margrét Kristín Pálsdóttir, lögreglustjóri á Suðurnesjum.
Rafbyssur Lögreglumál Reykjanesbær Lögreglan Mest lesið Fólk þurfi að gæta sín þegar það leigir íbúðina út í ágúst Innlent Kominn með nóg af tímasetningu lögreglu Innlent Geirdís geti leitað á tjaldsvæði og greitt markaðsverð Innlent Friðarsamkomulag verði undirritað á morgun Erlent Fleiri hlynntir en andvígir samkvæmt nýrri könnun Innlent Límdu efnin á fætur sína Innlent Skjálfti í Bárðarbungu að stærð 4,8 Innlent Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Innlent Áfall fyrir bæjarfélagið Innlent „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Innlent Fleiri fréttir Fólk þurfi að gæta sín þegar það leigir íbúðina út í ágúst Skjálfti í Bárðarbungu að stærð 4,8 Límdu efnin á fætur sína Kominn með nóg af tímasetningu lögreglu Fleiri hlynntir en andvígir samkvæmt nýrri könnun Geirdís geti leitað á tjaldsvæði og greitt markaðsverð Krapvélar í yfirvinnu í góða veðrinu Bandaríkjastjórn lokar á aðgang erlendra ríkisborgara Áfall fyrir bæjarfélagið „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Lokað vegna skorts á starfsleyfi „Við horfum bjartsýn fram á veg“ Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Hægt að skoða þyrlur og sprengjuleitarbúnað Gæslunnar Viðgerð Herjólfs dregst um þrjár vikur: „Vonum að þetta fari nú að verða búið“ Tilgangslaust stríð og æfir hjólabúar „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Hlaðvarparar hrósa sigri: „Logi er greinilega nettur gæi“ Bein útsending: Brautskráning Háskóla Íslands Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Ríkisstjórnin ýmist bensínlaus bátur eða á leikskóla í platheimi Friðarsamkomulag, rauð ljós á Sæbraut og ógeðfelldar lýsingar í dómsal Njósnarar enn í lögsögunni Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt „Af hverju má ég vera í Hveragerði en Grindvíkingar ekki í Grindavík?“ Hittust átta sinnum til að úrskurða um risaeðlubeinin Bólar ekkert á ályktun ungra miðflokksmanna Sjá meira