Vildi að betur hefði verið staðið að uppsögnum hótelstarfsfólks Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 22. maí 2026 13:40 Davíð Torfi Ólafsson forstjóri Íslandshótela. Vísir/Egill Forstjóri Íslandshótela segir að hann hefði viljað standa betur að þeirri hópuppsögn hátt í þrjú hundruð starfsfólks Hilton og Natura hótela sem Berjaya stóð að og tilkynnt var um í gær. Hann hefði viljað halda starfsfólkinu betur upplýstu og fyrr. Þá gerir hann ekki ráð fyrir öðru en að ráða allt fólkið aftur til starfa.
Næstkomandi þriðjudag verður öllu starfsfólki Hilton Nordica og Natura hótela sagt upp en starfsfólki var gert þetta ljóst á fundi í gær. Hótelin tilheyra keðju Iceland Hotel Collection Berjaya en ástæða uppsagnarinnar er tilfærsla hótelanna yfir til Íslandshótela. Leigusamningur Berjaya við Reiti rennur brátt út og munu Íslandshótel hefja rekstur í húsnæðunum 1. september næstkomandi. Davíð Torfi Ólafsson, forstjóri Íslandshótela, segir að betur hefði mátt standa að ferlinu. „Við höfum alveg verið skýr með það og viljum að það komi skýrt fram að við viljum koma fram við þetta fólk sem vinnur á hótelunum af virðingu. Við erum í góðu samtali við trúnaðarmenn á hótelunum, góðu samtali við stéttarfélögin og það er bara þannig að öllu þessu fólki verður gefinn kostur á að koma í samtal við okkur og við gerum ekki ráð fyrir öðru en að ráða allt þetta fólk inn.“ Hvernig brást fólkið við þegar það heyrði fregnir um að öllu starfsfólki yrði sagt upp? „Ég hef ekki sjálfur verið í viðtölum við fólkið en þetta er þannig að þetta lá fyrir, að þessi tímapunktur væri að koma en það má segja að mitt persónulega mat er það að við hefðum reynt að standa öðruvísi að þessu. Ef við hefðum verið þarna megin við borðið þar sem Berjaya er þá hefðum við reynt að upplýsa fólkið betur og fyrr en þeir velja að gera þetta svona og hafa sjálfsagt sínar ástæður fyrir því.“ Hann muni gera starfsfólkinu mjög auðvelt fyrir að komast í samband við Íslandshótel til að hefja ráðningarferlið. Davíð segir að ásýnd hótelanna muni breytast mjög þegar þau taka við rekstrinum. „Við erum að undirbúa það með reitum að fara í miklar endurbætur á báðum þessum hótelum og ætlum að hefja þær á næstu árum og þetta verður allt saman tekið í gegn,“ sagði Davíð Torfi Ólafsson, forstjóri Íslandshótela.
Hótel á Íslandi Vinnumarkaður Ferðaþjónusta Reykjavík Tengdar fréttir Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Öllu starfsfólki Hilton Nordica og Natura-hótelanna verður sagt upp á þriðjudag í næstu viku. Starfsfólk Hilton Nordica var boðað á fund klukkan tvö síðdegis þar sem tilkynnt var um hópuppsögnina. Hótelin tilheyra í dag keðju Iceland Hotel Collection by Berjaya en uppsagnirnar eru liður í tilfærslu hótelanna tveggja yfir til Íslandshótela. 21. maí 2026 20:06 Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Íslandshótel taka 1. september 2026 við rekstri tveggja af þekktari hótelum Reykjavíkur, þeirra sem hingað til hafa verið rekin undir nöfnunum Hilton Reykjavík Nordica og Reykjavík Natura Hotel. Samningur félagsins við fasteignafélagið Reiti, sem á húsin, gildir í rúm sautján ár og nær því hið minnsta fram til ársins 2043. 29. apríl 2026 21:45 Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Fleiri fréttir Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Sjá meira
Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Öllu starfsfólki Hilton Nordica og Natura-hótelanna verður sagt upp á þriðjudag í næstu viku. Starfsfólk Hilton Nordica var boðað á fund klukkan tvö síðdegis þar sem tilkynnt var um hópuppsögnina. Hótelin tilheyra í dag keðju Iceland Hotel Collection by Berjaya en uppsagnirnar eru liður í tilfærslu hótelanna tveggja yfir til Íslandshótela. 21. maí 2026 20:06
Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Íslandshótel taka 1. september 2026 við rekstri tveggja af þekktari hótelum Reykjavíkur, þeirra sem hingað til hafa verið rekin undir nöfnunum Hilton Reykjavík Nordica og Reykjavík Natura Hotel. Samningur félagsins við fasteignafélagið Reiti, sem á húsin, gildir í rúm sautján ár og nær því hið minnsta fram til ársins 2043. 29. apríl 2026 21:45