„Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 22. maí 2026 20:02 Arna Sigrún Haraldsdóttir, íbúi á svæðinu og ábyrgðarmaður undirskriftarlista. Vísir/bjarni/hmp Íbúi skammt frá Miðbakka segir það fullreynt að hafa parísarhjól á svæðinu og kallar eftir því að borgarbúar endurheimti útivistarsvæði. Undirskriftarlisti hefur verið stofnaður til að mótmæla áformunum.
Greint var frá því í dag að borgarráð Reykjavíkurborgar samþykkti tillögu borgarstjóra um að bjóða fyrirtækinu Taylors Tivoli til viðræðna um framlengingu samnings um afnot af Miðbakkanum í Reykjavíkurhöfn til að reka þar parísarhjól í sumar. Parísarhjól hefur staðið á svæðinu síðustu tvö sumur og Taylors Tivoli greitt 650 þúsund krónur á mánuði fyrir afnotin. Ekki virðast allir par sáttir við áformin en til að mynda mótmæltu borgarráðsfulltrúar Samfylkingar tillögu borgarstjóra með bókun. Þá fetti Egill Helgason fingur út í staðsetninguna og Unnsteinn Manuel lét sína skoðun í ljós með myndskeiði á samfélagsmiðlum. Undirskriftarlisti var stofnaður í dag vegna málsins en stofnandi listans segir svæðið njóta sín betur sem ókeypis útivistarsvæði. „Hér áður var hjólabrettarampur, hjólagarður og körfuboltavöllur sem við íbúar hérna í hverfinu söknum mjög mikið. Ég deili ekki því sjónarmiði borgarstjóra að þetta parísarhjól sé það besta fyrir okkur. Ég held að það sem var hérna áður fyrr styðji miklu frekar við lýðheilsu frekar en þetta hjól. Það var líka ókeypis.“ Að hennar mati sé það sorglegt að horfa upp á bakkann mannlausan, trekk í trekk. „Þetta hjól er næstum alltaf tómt. Ég veit það vel því ég fer hérna fram hjá daglega. Ef það er ekki bara kjurrt þá rúllar það bara dag eftir dag með nokkrum hræðum í. Mér finnst mjög skrítið að borgarstjóri geti tekið einhverja svona þjónustu af okkur án þess að ræða við okkur.“ Það sé fullreynt að hafa parísarhjól á svæðinu og tímabært að hleypa einhverju öðru að. „Fórnarkostnaðurinn er of hár. Þetta er kannski sniðug hugmynd, það var sniðugt að prófa hana. Núna erum við búin að sjá að hún er lítið notuð, hún kostar of mikið fyrir venjulegt fólk að stunda eitthvað reglulega. Það er auðvitað til fólk sem hefur farið í þetta hjól. Ég þekki þau ekki en þau eru víst til einhvers staðar þarna úti.“ Hefur þú farið í hjólið sjálf? „Nei, ég tími því ekki.“ Heldurðu að þú farir ef hjólið rís hérna í þriðja sinn? „Ég myndi sennilega ekki gera það en þá bara í mótmælaskyni. Í ár á að vera ókeypis sautjánda júní og jú jú gott og vel, það er eflaust afar fallegt þarna uppi. Fórnarkostnaðurinn er bara of hár.“
Parísarhjól á Miðbakka Reykjavík Samfylkingin Borgarstjórn Ferðaþjónusta Mest lesið Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Lögregla kölluð til vegna rifrildis í Konukoti Innlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Erlent Fleiri fréttir Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Lögregla kölluð til vegna rifrildis í Konukoti Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Sjá meira