Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 22. maí 2026 18:55 Mía Marselína Alexa Guðmundsdóttir stofnaði félagið árið 2022 og tók lengi þátt í starfsemi þess. Vísir/Samsett Stofnandi Vinafélags Íslands-Norður-Kóreu snýr baki við foringjanum og segist hafa verið í geðrofi þegar félagsskapurinn var stofnaður. Hún hafnar sjónarmiðum félagsins algjörlega í dag.
Mía Marselína Alexa Guðmundsdóttir stofnaði Vináttufélagið Ísland-Kórea ásamt Sunnevu Náttsól nokkurri árið 2022 en hafði þá að eigin sögn aðhyllst öfgakennda túlkun á kommúnisma. Í aðsendri grein á Vísi segir hún geðræn veikindi hafa valdið því að hún laðaðist að öfgafullri, einfaldaðri hugmyndafræði. „Ég lét ekki nægja að gagnrýna kapítalisma eða vestræn samfélög, heldur fór ég að líta á einræðisríki á borð við Norður-Kóreu og Kína í jákvæðu ljósi. Ég stofnaði Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu ásamt öðrum og tók þátt í starfsemi þess félags. Ég samsamaði mig hugmyndum sem réttlættu eða afsökuðu harðstjórn, ritskoðun og pólitíska kúgun,“ skrifar hún. Í dag hafni hún þessum sjónarmiðum alfarið. Alvarleg andleg vanlíðan sem var síðar greint klínískt sem geðrof hafði áhrif á raunveruleikaskyn hennar, dómgreind og færni til að meta upplýsingar á gagnrýnan hátt. „Ég upplifði heiminn í mjög einföldum tvískiptingum þar sem flókin samfélagskerfi urðu að einni skýringu og einni lausn. Slík hugmyndafræðileg einföldun getur verið mjög aðlaðandi þegar einstaklingur er í uppnámi, vegna þess að hún skapar öryggis- og stöðugleikatilfinningu,“ segir hún. Öfgar meðal Sósíalista vekja athygli Tilefni greinaskrifa Míu er umræða um öfgafulla hugmyndafræði sem fær að sumra mati að grassera innan raða Sósíalista. Silja Sóley Birgisdóttir oddviti flokksins í borginni var meðal annars spurð í kappræðum Sýnar út í Norður-Kóreuferð fulltrúa í kosningastjórn flokksins, Kristins Hannessonar. Hann er jafnframt aðalritari vinafélags Íslands og Norður-Kóreu. Ummæli formanns framkvæmdastjórnar flokksins á samfélagsmiðlum um leiðtogahæfni manna á borð við Kim Jong Ún og Vladímírs Pútín vöktu einnig athygli um mánuðinn. Í ummælum á Sósíalistaspjallinu á Facebook taldi hann upp helstu einræðisherra heims og sagði það hreinan vetrænan áróður að þeir væru ekki frábærir leiðtogar. Veikir einstaklingar sæki í öfgafullar hreyfingar Þessari þróun geldur stofnandi Vinafélags Íslands-Norður Kóreu varhug. „Mér finnst nauðsynlegt að ræða alvarleika þess að innan Sósíalistaflokksins og í kringum Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu virðist vera til staðar raunverulegur stuðningur við hugmyndir og stjórnarhætti sem fela í sér ritskoðun, valdmiðstýringu, pólitíska kúgun og réttlætingu á einræðislegum stjórnarháttum. Það sem gerir það sérstaklega alvarlegt er að slík afstaða er ekki bundin við einstaklinga í andlegu uppnámi eða andlegum veikindum, heldur virðist þetta vera meðvituð hugmyndafræðileg afstaða,“ segir hún. Hún segist hafa gert sér grein fyrir því þegar henni batnaði hve auðvelt það er fyrir einstakling í viðkvæmri stöðu að laðast að einföldum, öfgafullum heimsmyndum sem standast enga gagnrýna skoðun. „Þegar andleg heilsa mín batnaði fór þessi mynd að brotna niður. Ég fór að meta gildi opins samfélags, fjölmiðlafrelsis og lýðræðislegra kerfa sem byggjast á kerfislegu aðhaldi, gagnrýni og valdaskiptingu. Ekki vegna þess að þau eru fullkomin, heldur vegna þess að þau gera ráð fyrir mistökum og takmörkunum mannlegra valdhafa.“ Öfgar að finna víða og þeim beri að hafna Hún segir öfgafulla hugmyndafræði ekki einskorðast við vinstri væng stjórnmálanna. Hana sé að finna í hægri-popúlískum og þjóðernissinnuðum hreyfingum sömuleiðis. „Þegar fólk upplifir óöryggi og vantraust getur öfgahægri hugmyndafræði orðið freistandi. Slík hugmyndafræði byggist á svipaðan hátt á einföldun raunveruleika og óvinavæðingu, þar sem flóknum samfélagsmálum er stillt upp sem baráttu eins hóps gegn ákveðnum óvinum eða valdakerfum. Orðræða ákveðinna Miðflokksmanna gæti talist dæmi um slíkar tilhneigingar að ná fótfestu hérlendis. Sem dæmi má nefna nýlegar ádeilur þeirra á réttindi og baráttu hinsegin fólks. Gaman væri að sjá Miðflokkinn segja skilið við þessar öfgar. Hægristefna þarf ekki að vera byggð á hatri.“
Sósíalistaflokkurinn Norður-Kórea Mest lesið Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Erlent Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Innlent Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Erlent Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Erlent Enn skelfur í Bárðarbungu Innlent „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Innlent Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Senda norðlenskt rusl úr landi Innlent Fleiri fréttir Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Enn skelfur í Bárðarbungu Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Sjá meira