Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Hólmfríður Gísladóttir skrifar 27. maí 2026 08:02 Það ku vera dónaskapur að biðja um kranavatn á veitingastað á Ítalíu. Getty/Hendrik Schmidt Hæstiréttur Ítalíu hefur komist að þeirri niðurstöðu að neytendur eiga ekki rétt á því að geta pantað kranavatn og stöðum er þannig ekki skylt að bjóða upp á kranavatn.
Það var kona sem fór með umrætt álitaefni fyrir dóm, eftir að henni var neitað um kranavatn á fimm stjörnu hóteli í Corovara í Badia, þar sem hún dvaldi í viku yfir jólin árið 2019. Konan var í hálfu fæði, það er að segja kvöldmáltíðin var innifalin utan drykkjar. Samkvæmt ítölskum miðlum bað konan ítrekað um að fá kranavatn með máltíð sinni og bauðst til að greiða fyrir það. Hún fékk hins vegar neitun í hvert sinn og í staðinn var búið að setja 0,75 lítra flösku af vatni á borðið þegar hún kom í mat, sem kostaði sjö evrur. Konan er sögð hafa marg kvartað yfir því að vera neitað um að fá kranavatn í glas og vera þess í stað neydd til að kaupa dýrt vatn í flösku. Hún ákvað að höfða mál, þar sem hún vildi fá viðurkennt að vatn væri náttúruauðlind og aðgengi að því mannréttindi. Þá væri aðgengi að kranavatni nauðsynlegur þáttur í þjónustu veitingastaðar eða hótels, rétt eins og hlýtt herbergi með umbúnu rúmi og sápu á baðherberginu. Eftir þvæling í dómskerfinu tók hæstiréttur málið fyrir og komst að áðurnefndri niðurstöðu. Á Ítalíu væri engin lög að finna sem skylduðu veitingastaði eða hótel til að bjóða upp á kranavatn.
Ítalía Neytendur Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Skringileg túlkun að hinsegin fáninn sé útilokandi Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Innlent Fleiri fréttir Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Sjá meira