Tveir handteknir grunaðir um að vera í glæpagengi sem herjar á íþróttafólk Ágúst Orri Arnarson skrifar 27. maí 2026 08:30 Patrick Mahomes og Travis Kelce, leikmenn Kansas City Chiefs, hafa báðir orðið fyrir barðinu á suðurameríska glæpagenginu. Michael Reaves/Getty Images Lögreglan í Argentínu hefur lagt hald á tvo ríkisborgara Síle, sem eru grunaðir um að vera hluti af alþjóðlegu glæpagengi sem herjar á íþróttafólk.
Handtökurnar voru framkvæmdar á mánudag í nágrenni við Buenos Aires, höfuðborg Argentínu. ESPN greinir frá. Samkvæmt lögreglu eru mennirnir tveir frá Síle,Ignacio Zuniga Cartes og Bastian Jimenez Freraut grunaðir um að tilheyra þjófagengi sem hefur brotist inn á heimili Patrick Mahomes og Travis Kelce, leikmanna Kansas City Chiefs í NFL deildinni, og tennisstjörnunnar Juan Martin del Potro, meðal annarra. Þjófagengið er einnig grunað um innbrot á heimili Joe Burrow, leikstjórnanda Cincinnati Bengals, og Bobby Portis, framherja Milwaukee Bucks í NBA deildinni. FBI, alríkislögregla Bandaríkjanna, hefur áður varað íþróttafólk við hættunni sem stafar af innbrotsþjófunum. Þetta tiltekna gengi er sagt fylgjast grannt með íþróttafólki og ferðavenjum þeirra. Þau láti til skarar skríða þegar íþróttafólkið er að keppa einhvers staðar langt frá heimili sínu. Hátæknibúnaður sé notaður til að komast framhjá þjófavörnum, rugla í öryggismyndavélum og komast inn í læsta skápa. Verðmæti upp á margar milljónir dollara í reiðufé og skartgripum hafa horfið á braut þjófanna. Ásamt fjölda annarra muna, svosem verðlaunapeninga og bikara sem erfitt er að bæta. Sjö menn frá Síle hafa áður verið handteknir í tengslum við innbrotin en þeir eru grunaðir um að hafa hjálpað genginu að smygla stolnum varningi yfir landamæri Bandaríkjanna. Mál þeirra hefur verið til rannsóknar síðan í febrúar.
NFL NBA Mest lesið Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Enski boltinn Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn DocZone snýr aftur Enski boltinn Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Fótbolti Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Enski boltinn „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Tvöfaldur heimsmeistari látinn eftir skotárás Sjáðu Bergdísi bjarga botnliðinu, kraftaverk Lillýar og óheppni fyrirliðans Hull City - Manchester United | Rauðu djöflarnir í heimsókn hjá nýliðunum Russell vann sprettinn í þriðja sinn Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Messi sektaður fyrir að slá andstæðing „Auðvitað var auka hjartsláttur“ ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur Sinner missir af Opna bandaríska United nær samkomulagi við Brighton um Baleba „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Afturelding valtaði yfir Ægi og skoraði sjö mörk Karólína Lea skoraði fyrir Inter „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Strákarnir réðu ekki við Finnana Curtis Jones farinn til Inter Glódís skoraði í stórsigri Bayern Hlín og Guðrún skildu jafnar í toppslagnum Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Orri Steinn spilaði allan leikinn í tapi Ísland tapaði fyrir Portúgal Óliver heldur áfram að slá í gegn Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Uppgjörið: FH - Víkingur R 0-1 | Magnaður sigur Víkinga Uppgjörið: Þór/KA - Valur 0-1| Valskonur úr fallsæti Sjá meira