Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Kristján Már Unnarsson skrifar 27. maí 2026 21:21 Höskuldur Tryggvason er verkefnisstjóri Vegagerðarinnar við Arnarnesveg. Lýður Valberg Stefnt er að því að nýi Arnarnesvegurinn um Vatnsendahæð verði opnaður að hluta í lok næsta mánaðar og vegurinn í heild í október í haust. Þetta tíu milljarða króna verkefni er stærsta vegagerð á höfuðborgarsvæðinu hin síðari ár.
Í kvöldfréttum Sýnar var verkstaðurinn við Breiðholtsbraut í Víðidal heimsóttur. Tæp þrjú ár eru frá því framkvæmdir hófust en um fimmtíu manns starfa núna á svæðinu á vegum verktakanna. „Verktakarnir eru tveir, Suðurverk og Loftorka, og þeim hefur sóst verkið bara vel. Þetta hefur gengið áfallalaust. Þannig að við erum bara ánægð með það, allavega það sem búið er,“ segir Höskuldur Tryggvason, verkefnisstjóri Vegagerðarinnar við Arnarnesveg. Ný göngu- og hjólabrú yfir Elliðaár, eða Dimmu, fylgir verkinu. Viðamikil stígagerð fylgir verkefninu, þar á meðal um Víðidal, en göngu- og hjólabrú yfir Elliðaár var fyrsta mannvirkið sem tekið var í notkun. Ný brú yfir Breiðholtsbraut er þó stærsta mannvirkið og er búið að malbika hluta vegtenginga. Áætlað er að nýja brúin verði opnuð eftir rúmlega mánuð. Samhliða verða ný gatnamót Arnarnesvegar og Breiðholtsbrautar opnuð á móts við Urðarhvarf. Ný ljósastýrð gatnamót Arnarnesvegar og Breiðholtsbrautar.Lýður Valberg „Já, það gerist einmitt um mánaðamótin júní-júlí, að það verði opnað.“ -Margir héldu að þeir fengju hérna mislæg gatnamót. En þau verða ekki alveg mislæg? „Nei, þau verða það ekki, það verður ljósastýring hérna,“ segir Höskuldur hér í sjónvarpsfrétt Sýnar: Samtímis verður gatnamótum Breiðholtsbrautar og Vatnsendahvarfs lokað tímabundið og þeim breytt. Umferð inn og út úr hverfinu mun þá fara um nýtt hringtorg og nýja tengingu Vatnsendavegar við Arnarnesveg. Síðdegis var gerður lítill bráðabirgðarampur upp á nýju brúna, svo vinnuvélar gætu ekið yfir. Þá urðu þau tímamót að fyrsti bíllinn ók yfir brúna. Framundan er svo að klára lengsta vegarkaflann, tenginguna inn í Sala- og Kórahverfi og að núverandi Arnarnesvegi. Á þeirri leið verða bæði göngubrú yfir veginn og undirgöng undir hann. Til hægri á myndinni sést hvar hringtorgið kemur sem verður ný tenging Vatnsendahverfis við Arnarnesveg og Breiðholtsbraut.Lýður Valberg „Þetta verður seinni hluti opnunarinnar á veginum sem verktakinn áætlar að opna núna í október. Það er þá lokaáfanginn. Sem sé frá þessum Vatnsendavegi hérna og yfir að Rjúpnavegi í Kópavogi,“ segir Höskuldur. Og víst má telja að margir fagni vegarbótunum. „Náttúrulega léttir á þessu ástandi sem er hérna. Við sjáum það hérna á annatímum, þá eru hérna langar raðir. Þannig að vonandi munu þær styttast með tilkomu þessa mannvirkis,“ segir verkefnisstjórinn. Hér sést veglína Arnarnesvegar yfir Breiðholtsbraut og í gegnum Vatnsendahæð.Lýður Valberg Þetta er einhver mesta vegagerð sem sést hefur á Reykjavíkursvæðinu frá aldamótum. Verkið heyrir undir Samgöngusáttmálann og er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar, Reykjavíkur, Kópavogs, Betri samgangna, Veitna og Mílu. „Bæði þessi vegagerð og göngu- og hjólastígagerð. Til viðbótar því þá er mikil lagnavinna hérna líka, meðal annars við stofnlögn hitaveitu hérna meðfram Breiðholtshlutanum, Suðuræð tvö. Það eru háspennustrengir, kaldavatnslagnir - allur þessi pakki er svona um tíu milljarðar, en deilist á fleiri aðila,“ segir Höskuldur Tryggvason. Nýja brúin yfir Breiðholtsbraut.Lýður Valberg
Vegagerð Samgöngumál Kópavogur Reykjavík Skipulagsmál Hjólreiðar Göngugötur Byggingariðnaður Tengdar fréttir Arnarnesvegur gæti orðið 1,3 milljörðum króna dýrari Vegagerðin hefur hafnað tveimur lægstu tilboðum sem bárust í gerð Arnarnesvegar um Vatnsendahæð og þess í stað ákveðið að ganga til samninga við þann sem átti þriðja lægsta boð, sem var 1.333 milljónum króna hærra en það lægsta. Lægstbjóðandi, fyrirtækin Óskatak ehf. og Háfell ehf, hefur kært ákvörðunina til Kærunefndar útboðsmála. 8. júní 2023 13:10 Íbúum tókst ekki að koma í veg fyrir Arnarnesveg Úrskurðarnefnd um umhverfis og auðlindamál vísaði kærum í tveimur málum vegna Arnarnesvegar í Kópavogi frá. Eigendur fimmtán húsa auk tveggja samtaka höfðu kært framkvæmdina. 1. júní 2023 08:06 Býður út Arnarnesveg um Vatnsendahæð Vegagerðin hefur boðið út gerð Arnarnesvegar um Vatnsendahæð ásamt tengingu við Breiðholtsbraut. Stefnt er að því að framkvæmdir hefjist í sumar en verkinu skal að fullu lokið 1. ágúst 2026. Tilboð verða opnuð 18. apríl. 16. mars 2023 02:24 Fallið frá hugmyndum um mislæg gatnamót Fallið hefur verið frá hugmyndum um að ráðast í framkvæmd mislægra gatnamóta á mótum Arnarnesvegar og Breiðholtsbrautar. Þess í stað felur ný útfærsla í sér brú og ljósastýrð vegamót sem eigi að hafa minna rask í för með sér. 14. október 2020 14:21 Mest lesið Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Erlent Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Innlent Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Erlent Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Erlent Enn skelfur í Bárðarbungu Innlent „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Innlent Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Senda norðlenskt rusl úr landi Innlent Fleiri fréttir Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Enn skelfur í Bárðarbungu Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Sjá meira
Arnarnesvegur gæti orðið 1,3 milljörðum króna dýrari Vegagerðin hefur hafnað tveimur lægstu tilboðum sem bárust í gerð Arnarnesvegar um Vatnsendahæð og þess í stað ákveðið að ganga til samninga við þann sem átti þriðja lægsta boð, sem var 1.333 milljónum króna hærra en það lægsta. Lægstbjóðandi, fyrirtækin Óskatak ehf. og Háfell ehf, hefur kært ákvörðunina til Kærunefndar útboðsmála. 8. júní 2023 13:10
Íbúum tókst ekki að koma í veg fyrir Arnarnesveg Úrskurðarnefnd um umhverfis og auðlindamál vísaði kærum í tveimur málum vegna Arnarnesvegar í Kópavogi frá. Eigendur fimmtán húsa auk tveggja samtaka höfðu kært framkvæmdina. 1. júní 2023 08:06
Býður út Arnarnesveg um Vatnsendahæð Vegagerðin hefur boðið út gerð Arnarnesvegar um Vatnsendahæð ásamt tengingu við Breiðholtsbraut. Stefnt er að því að framkvæmdir hefjist í sumar en verkinu skal að fullu lokið 1. ágúst 2026. Tilboð verða opnuð 18. apríl. 16. mars 2023 02:24
Fallið frá hugmyndum um mislæg gatnamót Fallið hefur verið frá hugmyndum um að ráðast í framkvæmd mislægra gatnamóta á mótum Arnarnesvegar og Breiðholtsbrautar. Þess í stað felur ný útfærsla í sér brú og ljósastýrð vegamót sem eigi að hafa minna rask í för með sér. 14. október 2020 14:21