Enn ekkert spurst til Hákonar Agnar Már Másson og Freyja Þórisdóttir skrifa 1. júní 2026 17:51 Jón segist finna fyrir vanmætti en ekkert hefur spurst til Hákonar síðan þann 11. apríl. Samsett mynd/Vísir/Vilhelm Enn hefur ekkert spurst til Hákonar Þórs Elmers, hins 53 ára föður sem hvarf sporlaust af flugvelli í Búdapest í apríl. Jón Gnarr, þingmaður Viðreisnar, vekur nú athygli á mannshvarfinu en Hákon er bróðursonur hans.
Aron Freyr Elmers, sonur hans, sagði við Vísi í dag að ekkert hefði spurst til föður síns frá því að síðast var greint frá hvarfi hans í apríl. „Við höfum ekkert heyrt,“ sagði Aron en bætti við að leit lögreglu stæði enn yfir. Fyrir rúmum mánuði var greint frá því að Hákon hefði horfið sporlaust þegar hann stakk af á flugvelli í Búdapest í Ungverjalandi laugardagskvöldið 11. apríl. Hann var sagður hafa virst ringlaður þegar síðast sást til hans á hóteli þar sem hann hafði dvalið í um þrjá mánuði í aðdraganda hvarfsins. Hann hafði farið í ferðalag um alla Evrópu en þau ferðaáform komu flatt upp á fjölskylduna, að sögn Arons. Rakst á hópinn fyrir tilviljun Jón Gnarr, þingmaður Viðreisnar, vekur athygli á málinu á ný inni á Facebook-hópi Íslendinga í Búdapest. Þar skrifar Jón að Hákon sé bróðursonur sinn og að fjölskyldan hafi, eins og gefur að skilja, miklar áhyggjur af honum. Hann biðlar þar til fólks sem þekkir til málsins að hafa samband við lögreglu. „Ég svona er búinn að vera, eins og margir, að velta fyrir mér hvað sé hægt að gera, annað en það sem er verið að gera,“ segir hann í samtali við blaðamann Vísis og bætir við að hann hafi fundið Facebook-hópinn fyrir tilviljun. „Já, ég bara fann þessa grúppu bara af rælni og hugsaði að ég myndi prófa að henda inn færslunni. Líka bara að nota mig til að vekja athygli á þessu, það hefur ekkert spurst til hans síðan 11. apríl og mér datt bara í hug að birta þetta,“ segir hann sömuleiðis. Þá greinir hann frá því að það hafi ekkert nýtt verið að frétta hjá þeim í fjölskyldunni, „síðan eru líka bara einsog þú veist svona rannsóknir eðli máls samkvæmt mikið bundnar trúnaði vegna viðkvæmra upplýsinga,“ bætir hann við. Heldur í vonina Þeir frændur hafi ekki verið í miklu sambandi undanfarið en þeir hafi verið nánir í gegnum tíðina. „Já, við höfum verið nánir í gegnum tíðina en ég hef ekkert verið í sambandi við hann í einhvern tíma og veit lítið svona hvað hann var að gera þarna, veit mjög lítið um það.“ Hann segist ætla að athuga það í kvöld hvort honum hafi borist einhverjar upplýsingar út frá færslunni. Þá segist hann líka halda í vonina um að það verði hægt að nýta nýjar upplýsingar til þess að finna Hákon. „Óttalegur vanmáttur og já, ég birti þessa færslu á síðunni þarna en er búinn að vera alveg á haus síðan ég setti þetta inn og hef ekki náð að skoða neitt hvort einhver sé búinn að senda á okkur. En ég ætla að skoða þetta í kvöld. Það væri algjörlega frábært ef og við vonum náttúrulega að hann finnist og að fram komi einhverjar upplýsingar,“ segir hann.
Ungverjaland Íslendingar erlendis Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Fleiri fréttir Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Sjá meira