Áttu ekki von á að þurfa að fara með málið fyrir dóm Áróra L Davíðsdóttir og Smári Jökull Jónsson skrifa 2. júní 2026 13:23 Hópurinn sem óskaði eftir að fá að grafa upp beinaleifar Jónasar upp í Þjóðargrafreitnum á Þingvöllum vinnur að kvikmynd um ævi skáldsins. Samsett Þingvallanefnd tók ekki afstöðu til beiðni hóps um uppgröft beina Jónasar Hallgrímssonar svo hægt væri að eyða óvissu um uppruna þeirra. Félagi í hópnum segir nauðsynlegt að fá úr málinu skorið með DNA rannsókn.
Hópurinn vinnur að kvikmynd um ævi þjóðskáldsins og óskaði eftir að fá að grafa beinaleifar Jónasar upp í Þjóðargrafreitnum á Þingvöllum, taka úr þeim sýni og senda í DNA-greiningu. Beiðnin var send til Þingvallanefndar sem svaraði að nefndinni væri ekki heimilt að leyfa sýnatökuna án dómsúrskurðar. Í samtali við fréttastofu segir formaður nefndarinnar, Sigurður Helgi Pálmason þingmaður Flokks fólksins, að nefndin hafi ekki tekið afstöðu til beiðninnar þar sem dómsúrskurður lá ekki fyrir. Fjölmiðlakonan Elín Hirst er hluti af hópnum sem óskaði eftir uppgreftrinum. Hún segir að vísindamaðurinn Matthías Þórðarson hafi farið á vegum stjórnvalda til Kaupmannahafnar árið 1946 þar sem bein Jónasar voru grafin upp og flutt til Íslands. „Eftir þetta hafa verið stanslaust alls konar sögur á kreiki um það að Matthías hafi komið heim með röng bein og við teljum það mjög mikilvægt að eyða þessari óvissu núna þegar við getum gert það með DNA-greiningu,“ segir Elín Hirst í samtali við fréttastofu. Jónas hafi legið í grafreit ásamt fleirum í Kaupmannahöfn. Elín segir hópinn ekki hafa átt von á að þurfa að fara með málið fyrir dóm en nú verði rætt við lögmann um hvernig málatilbúnaði verði háttað. Mikilvægt sé að leiða málið til lykta, Jónas og verk hans séu þjóðinni afar dýrmæt. „Það voru íslensk stjórnvöld sem í raun og veru röskuðu grafarró Jónasar 1946, þannig að henni hefur verið raskað.“ Jón Viðar Jónsson bókmenntagagnrýnandi gagnrýndi fyrirætlanir hópsins í Facebook-færslu og sagði uppátækið vera auglýsingu fyrir kvikmyndina umræddu. Elín svarar þeirri gagnrýni og segir þau ekki hafa verið að flagga þessari ósk þeirra. „En núna þegar Þingvallanefnd sendi frá sér fundargerð á netið, þá náttúrulega fer þetta mál í fjölmiðla eins og verða vill og þannig bara virkar lýðræðið í landinu,“ segir hún.
Þingvellir Fornminjar Þjóðgarðar Kirkjugarðar Jarðneskar leifar Jónasar Hallgrímssonar Tengdar fréttir Báðu um að fá að grafa upp Jónas Hallgrímsson Hópur sem telur fræðafólk, fjölmiðlafólk, listafólk og kirkjunnar fólk hefur óskað eftir því við Þingvallanefnd að fá leyfi til að taka sýni úr beinaleifum þjóðskáldsins Jónasar Hallgrímssonar sem þar hvílir í þjóðargrafreitnum. 2. júní 2026 00:02 Vilja eyða óvissunni um bein Jónasar Hópur sem vinnur að kvikmynd um ævi þjóðskáldsins Jónasar Hallgrímssonar segist vilja eyða óvissunni um bein hans. Þess vegna hafi hópurinn beðið um að fá að grafa beinaleifar hans upp í Þjóðargrafreitnum á Þingvöllum, taka úr þeim sýni og senda í DNA-greiningu. 2. júní 2026 08:00 Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Innlent Fleiri fréttir Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Sjá meira
Báðu um að fá að grafa upp Jónas Hallgrímsson Hópur sem telur fræðafólk, fjölmiðlafólk, listafólk og kirkjunnar fólk hefur óskað eftir því við Þingvallanefnd að fá leyfi til að taka sýni úr beinaleifum þjóðskáldsins Jónasar Hallgrímssonar sem þar hvílir í þjóðargrafreitnum. 2. júní 2026 00:02
Vilja eyða óvissunni um bein Jónasar Hópur sem vinnur að kvikmynd um ævi þjóðskáldsins Jónasar Hallgrímssonar segist vilja eyða óvissunni um bein hans. Þess vegna hafi hópurinn beðið um að fá að grafa beinaleifar hans upp í Þjóðargrafreitnum á Þingvöllum, taka úr þeim sýni og senda í DNA-greiningu. 2. júní 2026 08:00