„Þetta hefur verið ótrúlega erfitt“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. júní 2026 08:01 Lyftingakonan Eygló Fanndal Sturludóttir hefur ekkert keppt síðan hún var valin Íþróttamaður ársins í janúar. @eyglo_fanndal Lyftingakonan Eygló Fanndal Sturludóttir, ríkjandi Íþróttamaður ársins, er ekki enn byrjuð að æfa af fullum krafti eftir áfallið sem hún varð fyrir um þremur mánuðum síðan.
Eygló Fanndal missti af heimsmeistaramótinu síðasta haust vegna lítils brjóskloss í baki en þegar hún var að komast aftur á fullt meiddist hún svo aftur í vetur. Hún endaði þá á sjúkrahúsi þar sem leið yfir hana. Eygló hafði rifið brjóskþófa í mjóbaki á æfingu og fór með hraði upp á spítala þar sem hún missti meðvitund þegar hún reyndi að ganga sjálf. „Ég gat hvorki staðið upp né gengið og ég titraði og skalf,“ skrifaði Eygló á sínum tíma í færslu sinni á Instagram. Tólf vikur liðnar Eygló hefur síðan þurft að taka því rólega í lyftingunum á meðan hún byggir líkama sinn aftur upp. Eygló fór aðeins yfir stöðuna á sér nú þegar tólf vikur eru síðan hún meiddist. „Nú er komið að tólf vikna markinu,“ byrjaði Eygló en atvikið varð í marsmánuði síðastliðnum. Hún setti með myndband þar sem hún sést gera æfingar þar sem lóðin eru hvergi sjáanleg. „Þjálfunin mín hefur litið nokkurn veginn svona út síðustu þrjá mánuði: mikið af kviðæfingum, æfingum í tækjum og æfingum sem miða að því að viðhalda styrk án þess að setja álag á brjóskþrofann,“ skrifaði Eygló. Hefur reynt á þolinmæðina „Markmiðið hefur verið að gefa honum þann tíma og hvíld sem hann þarf til að gróa áður en álagi er bætt við aftur smám saman. Þetta hefur verið ótrúlega erfitt og hefur reynt á þolinmæði mína og seiglu á þann hátt sem ég hefði aldrei getað ímyndað mér,“ skrifaði Eygló. „Nú get ég loksins byrjað að auka álagið aftur. Aukningin verður lítil og hægfara en framfarir eru framfarir. Þetta ferli er langt frá því að vera búið og ég veit að það mun halda áfram að reyna á andlega styrkinn minn, en ég er komin svona langt og er staðráðin í að klára þetta,“ skrifaði Eygló. View this post on Instagram A post shared by Eygló Fanndal Sturludóttir (@eyglo_fanndal)
Lyftingar Íþróttamaður ársins Mest lesið Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Fótbolti Breiðablik - Afturelding 2-1 | Blikar bikarmeistarar í annað sinn Íslenski boltinn Gummi Ben fór á kostum: „Hvað varst þú að gera?!“ Fótbolti FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Fótbolti Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Fótbolti Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Handbolti ÍBV samdi við bandarískan hermann Handbolti Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Enski boltinn Arteta mjög hissa á ummælum Jesus Enski boltinn „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Handbolti Fleiri fréttir „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ „Við náðum einum af þessum stóru í ár“ „Maður skal brennimerkja þessa stund í hjarta sínu og sál“ Haukar á flugi Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Breiðablik - Afturelding 2-1 | Blikar bikarmeistarar í annað sinn Lagði upp á leið í undanúrslit Fram á toppinn og flautumark á Selfossi FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Haukur leiddi endurkomu Löwen Viktor skoraði í fjórða sigrinum í röð Markasúpa í Noregi Hrútarnir frá Hollywood eiga að fara alla leið Spenntur að sjá rauða hafið í stúkunni Nýja brautin í Madrid toppi Mónakó Meðvitaðir um pressuna Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus Öll pressan er á Ólafi Inga „Hljóta allir að sjá á hverjum pressan er í þessum leik“ Danskt stórlið búið að klófesta Elínu Klöru Gummi Ben fór á kostum: „Hvað varst þú að gera?!“ „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Ólafur skilur Magga en er ekki sammála Besta frjálsíþróttafólk heims mætist í nýju móti Yfir hundrað þúsund áhorfendur mættu á NFL-leik í Ástralíu ÍBV samdi við bandarískan hermann Róbert Frosti með slitið krossband og á leið í aðgerð Sjáðu markaveislur United og Bayern München Fékk drauminn uppfylltan eftir MND greiningu Sjá meira