Of seint að Jónas fái að hvíla í friði Jakob Bjarnar skrifar 4. júní 2026 14:07 Haraldur Sigurðsson og Kári Stefánsson. Of mikið væri að segja þá bítast um bein Jónasar en það lætur nærri. vísir/samsett Kári Stefánsson, læknir og fyrrverandi forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, segir of seint að Jónas Hallgrímsson þjóðskáld fái að hvíla í friði.
Deilurnar um fyrirhugaðan uppgröft á jarðneskum leifum Jónasar Hallgrímssonar, sem hvílir eftir því sem best er vitað, í þjóðargrafreitnum á Þingvöllum, halda áfram. Kári er í hópnum sem hefur beitt sér fyrir því að leyfi fáist til að grafa upp beinin, en lengi hefur sú saga verið á kreiki að það sé hreint ekki Jónas sem hvíli í þjóðargrafreitnum heldur danskur bakari. „Haraldur, það er of seint að berjast fyrir því að Jónas fái að hvíla í friði. Stjórnvöld létu grafa eftir honum í dönskum kirkjugarði árið 1946 og flytja beinagrind sem fannst við uppgröftinn til Íslands. Síðan var beinagrindin ferjuð norður í land og svo aftur suður og að lokum var hún grafin á Þingvöllum,“ segir Kári. Nýja beinamálið „stönt“ kvikmyndagerðarfólks Haraldur, sem ávarpaður er af svo miklum myndugleik, er enginn annar en Haraldur Sigurðsson jarðvísindamaður og eldgosasérfræðingur sem blandaði sér í þessar deilur með nýlegri Facebook-færslu. Þar hvatti hann til þess að Jónas fengi að hvíla í friði: „Danskur bakari, slátrari eða Jónas H.? Ég hef mikið hikað við að taka þátt í umræðunni um hugsanlega röskun grafar Jónasar Hallgrímssonar á Þingvöllum, einfaldlega vegna þess að með umfjöllun um þetta mál erum við öll að uppfylla heita ósk kvikmyndaframleiðandans. Það er greinilegt að nýja beinamálið er einfaldlega bragð eða „stunt“ til að vekja athygli og sennilega til að afla fjár til verkefnis. Að sjálfsögðu geta beinin veitt upplýsingar um erfðamengi, gen eða DNA, en hvað um það? Slík gögn geta á engan hátt sannað hvort hér séu bein Jónasar. Leyfið honum að hvíla í friði.“ Jónas er ljóðin en ekki bein í jörðu Kári telur þessa skoðun ekki gilda. „Það væri sjálfsagt að láta þar við sitja ef við vissum fyrir víst annað tveggja, að beinagrind í gröfinni væri Jónasar eða að gröfin væri tóm. Nú vitum við hvorugt þessara fyrir víst og sá möguleiki er fyrir hendi að það séu bein úr Dana í gröfinni.“ Kári segir að í því tilfelli væri það sem hvílir á Þingvöllum þýfi og íslensk stjórnvöld hafi gerst sek um að vanhelga gröf Dana nokkurs og gerst sek um grafarrán. „Það minnsta sem við getum gert til að bæta fyrir það er að ganga úr skugga um hvort svo sé og senda beinagrindina aftur í þá mold þar sem hún á heima ef rétt reynist. Fyrir mér er Jónas ljóðin sem hann orti og áhrif hans á íslenska tungu, ekki bein í jörðu hver svo sem hún er.“ Ekki sér fyrir enda á þessari sérkennilegu deilu.
Fornminjar Ljóðlist Þingvellir Íslensk erfðagreining Kirkjugarðar Jarðneskar leifar Jónasar Hallgrímssonar Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Katla skelfur Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Erlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Fleiri fréttir Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Sjá meira