Pálmi fékk kröfum Bríetar vísað frá að mestu Árni Sæberg skrifar 4. júní 2026 16:41 Pálmi Ragnar og Bríet unnu saman við góðan orðstír um árabil. Vísir Kröfum tónlistarkonunnar Bríetar Ísis Elfar á hendur þrotabúi Roks records, upp á tæpar átta milljónir króna, hefur verið vísað frá dómi vegna mikilla annmarka á kröfugerð. Pálmi Ragnar Ásgeirsson var eini eigandi Roks records og fór fram á frávísun málsins. Þrotabúið sjálft gerði ekki kröfu um frávísun en tók þó undir málatilbúnað Pálma Ragnars. Öðru máli þeirra á milli var þó ekki vísað frá.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis var kveðinn upp þann 1. júní síðastliðinn. Vísir hlýddi á málflutning aðila málsins þann 15. maí síðastliðinn og reifaði í fréttinni hér að neðan: Í stuttu máli sneri málið að deilum um höfundaréttar-, útgáfuréttar og rétthafagreiðslur, sem Bríet telur sig hafa verið hlunnfarna um. Unnu saman í fjögur ár Bríet og Pálmi, lagahöfundur og pródúsent, hófu samstarf sitt árið 2018 þegar Bríet gaf út sína fyrstu smáskífu, 22.03.99. Á þeim fjórum árum sem Bríet og Pálmi unnu saman að tónlist gáfu þau út átján lög sem þau sömdu í sameiningu. Þar á meðal eru flestöll lögin á plötunni Kveðja, Bríet og vinsælasta lag hennar, Esjan. Samstarf þeirra hélt áfram til ársins 2022 en síðasta lagið sem þau eru skráð bæði fyrir er lagið Flugdreki. Lögin sem þau sömdu saman eru öll skráð af tónlistarútgáfunni Alda Music á Spotify en nýrri lög Bríetar af henni sjálfri. Í úrskurðinum segir að tekist hafi verið á um réttindi að eftirfarandi upptökum: 1. Næturfrost (Bríet) – 2018 2. In Too Deep (Bríet) – 2018 3. Twin (Bríet) – 2018 4. Ghost (Bríet) – 2018 5. Feimin(n) (Bríet ft. Aron Can) – 2018 6. Carousel (Bríet) – 2018 7. Dino (Bríet) – 2019 8. Esjan (Bríet) – 2020 9. Heyrðu mig (Bríet) – 2020 10. Sólblóm (Bríet) – 2020 11. Hann er ekki þú (Bríet) – 2020 12. Djúp sár gróa hægt (Bríet) – 2020 13. Nær þér (Bríet) – 2020 14. Draumaland (Bríet) – 2020 15. Rólegur kúreki (Bríet) – 2020 16. Eltum sólina – intermession (Bríet) – 2020 17. Fimm (Bríet) – 2020 18. Rauðar rósir fölna (Bríet) – 2020 19. Cold Feet (Bríet) – 2022 20. Flugdreki (Bríet) – 2022 21. Bang Bang (Bríet) – ábreiða 2023 Fjöldi annmarka Lögmaður Pálma Ragnars krafðist þess að málinu yrði vísað frá dómi á grundvelli þess að verulegir ágallar væru á kröfugerð Bríetar í málinu. Hún hefði í fyrsta lagi krafist þess að viðurkennt yrði að Bríet ætti rétt til helmings í öllum tekjum sem skapast hafa og kunnu að skapast af sölu, miðlun og dreifingu á hljóðritum sem talin eru upp í greinargerð að frádregnum beinum kostnaði af upptöku og fleira. Á þessari kröfugerð væru fjórir sjáanlegir gallar; Bríet hefði áður lýst tölulegri fjárkröfu í kröfulýsingu en fyrir dómi hefði henni verið breytt í viðurkenningarkröfu, í kröfugerðinni væri falin lögspurning, hljóðritin væru ekki talin upp í kröfugerð heldur væri vísað til málavaxtalýsingar og að óheimilt væri gera viðurkenningarkröfu án fjárhæðar í gjaldþrotaskiptamálum. Lögmaðurinn rakti hvern ágalla fyrir sig og fór þá yfir ætlaða ágalla á þremur öðrum liðum kröfugerðar Bríetar. Blaðamaður ætlar ekki að þreyta lesendur með því að reifa þau réttarfarssjónarmið sérstaklega. „Endanlegar dómkröfur“ Eftir að lögmaður Pálma rakti annmarka á kröfugerð Bríetar hóf lögmaður hennar ræðu sína á því að leggja fram það sem hann kallaði endanlegar dómkröfur. Þá kom nokkuð fát á dómara og aðra viðstadda lögmenn. „Þetta er eiginlega orðið eitthvað réttarfars-ég veit ekki hvað, þetta er alveg nýtt fyrir dómara,“ sagði dómari og lögmaður Pálma kom á framfæri mótmælum gegn því að framlagning breyttra dómkrafa yrði heimiluð, sem voru bókuð í þingbók. Í niðurstöðukafla úrskurðar héraðsdóms segir að slíkir annmarkar hafi verið á kröfugerð Bríetar að ekki yrði hjá því komist að vísa þeim öllum frá dómi að undanskilinni kröfu um málskostnað. Því væri fallist á kröfu Pálma Ragnars um frávísun. Þá var Bríeti gert að greiða Pálma Ragnari 700 þúsund krónur í málskostnað og þrotabúinu 200 þúsund krónur. Annar úrskurður ekki birtur Samtímis var kveðinn upp annar úrskurður í frávísunarmáli um annað mál á milli Bríetar og Pálma, sem varðar kröfur Bríetar um að fá eignarrétt sinn yfir tilteknum upptökum viðurkenndan. Í málflutningi um það mál byggðu lögmenn kröfur sínar að mestu leyti á sömu rökum og í málinu sem fjallað er um hér að framan. Í svari Héraðsdóms Reykjavíkur við fyrirspurn Vísis um það mál segir að úrskurðurinn verði ekki afhentur þar sem um sé að ræða úrskurð undir rekstri máls. Því má ætla að það mál fái efnismeðferð.
Tónlist Höfundar- og hugverkaréttur Dómsmál Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Fleiri fréttir Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum Sjá meira