„Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 4. júní 2026 21:00 Stelpurnar mættu hlaðnar gjöfum á Barnaspítalann í morgun. vísir/lýður Fimm vinkonur í tíunda bekk í Kársnesskóla afhentu börnum á Barnaspítala hringsins glaðning í morgun. Tilefnið er lokaverkefni stelpnanna úr skólanum en þær misstu bestu vinkonu sína úr krabbameini fyrir fjórum árum og vildu heiðra minningu hennar.
Lokaverkefni stelpnanna kallast bros fyrir Bjartey og er til minningar um bestu vinkonu þeirra sem lést úr krabbameini fyrir fjórum árum síðan, einungis tólf ára gömul. „Við ákváðum að koma hingað á Barnaspítalann og gefa glaðninga sem við erum búnar að vera að undirbúa alla vikuna og búa til,“ segir Ágústa Eva. „Já, gefa til baka á Barnaspítalann því henni fannst svo gott að vera hér,“ segir Sara Margrét. Stelpurnar hafa unnið sleitulaust alla vikuna eins og sést á þessum myndum sem finna má á Instagram síðu verkefnisins. „Það gekk nú bara frekar vel. Við byrjuðum svolítið seint á þessu, höfum bara fengið vikuna til að vinna í þessu, en við byrjuðum á því að safna styrktaraðilum og búa til hluti sjálf,“ segir Klara Rós. Og segja þær að fyrirtæki hafi flest tekið mjög vel í verkefnið. Meðal styrktaraðila eru Sambíóin, Passion Reykjavík, Kraftur, Kids Coolshop og Bókabeitan. Sjö ára Saga þakkaði Silju kærlega fyrir glaðninginn.vísir/lýður valberg Var ekkert erfitt að taka upp símann og hringja í fyrirtæki, ekkert stressandi? „Nei það var kannski í byrjun en við vöndumst því og það var allt í lagi,“ sagði Sóley. Bjartey einstök vinkona Þær segja að Bjartey hafi verið einstök manneskja, lífsglöð og góðhjörtuð. „Bjartey var einstök manneskja, það er engin eins og hún. Hún var ótrúlega fyndin, falleg og góðhjörtuð,“ segir Silja. Þær segjast fullvissar um að Bjartey hafi verið með þeim í anda í dag. „Við vorum að tala við mömmu hennar í morgun og þetta skiptir okkur mjög miklu máli,“ segir Ágústa Eva. Gleðin leyndi sér ekki í augum barnanna í leikherbergi spítalans, eins og sjá má í sjónvarpsfréttinni hér að ofan þar sem rætt er við börn á spítalanum. Sóley fékk skartgripi, nammi og bók í gjöf.vísir/lýður valberg
Góðverk Börn og uppeldi Landspítalinn Kópavogur Mest lesið Tólf barna móðir selur sveitadraum á Selfossi Lífið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Lífið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Tímamót hjá Árna Má Menning Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Lífið Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Lífið Fleiri fréttir Tólf barna móðir selur sveitadraum á Selfossi Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Sjá meira