Íslenskur ofurjeppi á leið í framleiðslu Kristján Már Unnarsson skrifar 4. júní 2026 22:10 Ari Arnórsson bílahönnuður hefur unnið að þróun bílsins í tuttugu ár. Sigurjón Ólason Framleiðsla á fyrsta raðsmíðaða íslenska bílnum er að hefjast. Honum er lýst sem blöndu smárútu og ofurjeppa. Von er á fyrstu eintökunum eftir tólf mánuði.
Í kvöldfréttum Sýnar voru rifjaðar upp myndir frá Ásbrú á Keflavíkurflugvelli fyrir sex árum en þá tók bílahönnuðurinn Ari Arnórsson okkur í bíltúr á frumgerðinni. Tuttugu ár eru frá því að hann hóf þróun bílsins og byggði á reynslu Íslendinga af jeppaferðamennsku. Frumgerðinni ekið á Ásbrú á Keflavíkurflugvelli vorið 2020.Egill Aðalsteinsson Ofurjeppinn kallast Ísar, er að mestu smíðaður úr áli og óvenju léttur og verður boðinn með umhverfisvænum orkugjöfum. Því er kannski við hæfi að í gömlu Elliðaárstöðinni sé fyrirtækið á bak við Ísar, Jakar ehf., að móta næstu skref. Þar hittum við Ara með sínu lykilfólki; Kristjönu Kjartansdóttur, framkvæmdastjóra og framleiðsluverkfræðingi, Bjarna Hjartarsyni bílahönnuði og Unnari Bæring Sigurðssyni yfirvélahönnuði. Það er komið að tímamótum. „Það er búið að selja nóg af bílum til þess að hefja fyrstu framleiðslulotu, sem ætti að vera komin hingað til lands eftir um tólf mánuði,“ segir Ari. Bjarni Hjartarson bílahönnuður.Sigurjón Ólason Við sýnum frá því þegar ofurjeppinn var prófaður við Kleifarvatn en íslenskir kaupendur fá fyrstu eintökin. „Þetta er íslenskt fyrirtæki, markaðssetningin er íslensk, eignarhaldið er íslenskt,“ segir Ari. Jeppinn verður þó framleiddur erlendis. „Það var allt reynt til þess að geta framleitt hann á Íslandi. Það var bara ekki hægt. Og hann verður framleiddur í Þýskalandi.“ Unnar Bæring Sigurðsson er yfirvélahönnuður.Sigurjón Ólason Ari segist frá upphafi hafa miðað alla hönnun við að bíllinn kæmist vandræðalaust í gegnum evrópska vottun. „Þeir sem eru kaupendur að fyrstu bílunum, þeir taka þátt í að reyna að finna alla ágalla sem mögulegt er.“ Hann vonast til að björgunarsveitir verði með í fyrsta pakkanum. Ísar sýndur í litum björgunarsveita.Jakar „Björgunarsveitir á Íslandi komu ríkulega að því að hanna þennan bíl í upphafi.“ Í fyrstu lotu verða framleiddir tíu til fimmtán bílar. „Svo heldur framleiðslan áfram eftir það, bara eftir kaupendum.“ Stóri markaðurinn er úti í heimi. Ísar sýndur sem slökkvibíll.Jakar „Það eru slökkvilið, það eru námafyrirtæki, það er safarímarkaðurinn.“ Og raunar allir þeir sem þurfa að aka um vegleysur, en jeppinn verður skilgreindur sem smárúta fyrir fleiri en tíu farþega og með allt að 23 sætum. Ísar sem smárúta fyrir ferðaþjónustu.Jakar Kaupandi fyrsta bílsins er eitt elsta jeppafyrirtæki Íslands, Mountain Taxi. „Ég er búinn að fylgjast náið með þessu verkefni alveg frá upphafi og komið að alls konar málum með Ara í kringum þetta og er gríðarlega spenntur að fá þetta tæki, sem verður bylting, miklu léttara heldur en þessir bílar eru í dag,“ segir Kristján G. Kristjánsson, eigandi Mountain Taxi. Kaupandi fyrsta bílsins, Kristján G. Kristjánsson, eigandi Mountain Taxi.Sigurjón Ólason En hvað skyldi jeppinn svo kosta? Svar Ara: Án vasks milli 40 og 50 milljónir króna. Hér má sjá tryllitækið í sjónvarpsfrétt Sýnar:
Bílar Nýsköpun Ferðaþjónusta Tækni Áliðnaður Umhverfismál Tengdar fréttir Rútujeppi úr áli vísir að íslenskri bílaframleiðslu Íslenskt fyrirtæki hefur samið við Grænlendinga um að sérsmíða umhverfisvæna bíla til að nota á fyrsta þjóðvegi Grænlands. Þetta yrði fyrsti raðsmíðaði íslenski bíllinn og byggður á áratuga reynslu Íslendinga af jeppaferðamennsku á hálendinu. 14. maí 2020 22:24 Mest lesið Fjölskyldan í haldi vegna gruns um innflutning fíkniefna Innlent Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Innlent Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Innlent Vill breyta lögum um .is Innlent Yfirgefa landið mögulega um borð í Bandero Innlent „Hún féll saman eins og regnhlíf“ Erlent Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Innlent Drengir í haldi grunaðir um undirbúning hryðjuverkaárásar í skóla Erlent Niðurgangspestin hefur dregið tvo til dauða Erlent Gríðarlegur fjöldi fyrir norðan og mikil óþolinmæði á heimleið Innlent Fleiri fréttir Engir minkar hafi ratað í gildrur síðustu sólarhringa Yfirgefa landið mögulega um borð í Bandero Gríðarlegur fjöldi fyrir norðan og mikil óþolinmæði á heimleið Kólumbíumenn í haldi og skipverjar Bandero bíða örlaga sinna Fjölskyldan í haldi vegna gruns um innflutning fíkniefna Heimir Hannesson er látinn Breytir ekki veðurspám til að þóknast hátíðahöldurum Skipar nýja bótanefnd Vill breyta lögum um .is Enn eitt innbrotið í miðbænum Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Lögreglan lýsti eftir manni en hann er fundinn Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Harður árekstur á Norðvesturlandi tilkominn vegna framúraksturs Einn þeirra handteknu sautján ára Skoða stækkun á öryggismyndavélaneti Sparkað í lögreglumann og sjúkraflutningamaður sleginn Vopnin reyndust vera „nákvæmar eftirlíkingar“ Einn handtekinn vegna grófrar líkamsárásar Grunaður um að hafa ráðist á dyraverði Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Knapi datt af baki Miðaði byssu á annan mann Tveir lagðir við gangstéttina Enn brotist inn í miðbænum „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Sjá meira
Rútujeppi úr áli vísir að íslenskri bílaframleiðslu Íslenskt fyrirtæki hefur samið við Grænlendinga um að sérsmíða umhverfisvæna bíla til að nota á fyrsta þjóðvegi Grænlands. Þetta yrði fyrsti raðsmíðaði íslenski bíllinn og byggður á áratuga reynslu Íslendinga af jeppaferðamennsku á hálendinu. 14. maí 2020 22:24