Innlent

Dró að sér fé sem gjald­keri Raddar unga fólksins

Sigurgeir Þorkelsson skrifar
Sævar Þór var bæði sitjandi bæjarfulltrúi og gjaldkeri framboðsins þegar málið kom upp.
Sævar Þór var bæði sitjandi bæjarfulltrúi og gjaldkeri framboðsins þegar málið kom upp. Vísir/Einar

Rödd unga fólksins hefur upplýst um fjárdráttarmál innan flokksins sem upp kom snemma á síðasta ári. Grunur hafi vaknað um að Sævar Þór Birgisson, þáverandi bæjarfulltrúi og gjaldkeri flokksins, hafi dregið sér töluverða fjármuni og málið kært til lögreglu. Rödd unga fólksins hefur átt fulltrúa í sveitarstjórn Grindavíkur síðastliðin tvö kjörtímabil.

„Rannsókn málsins er nú lokið og getum við því fyrst tjáð okkur um málið núna,“ segir í tilkynningu á Facebook-síðu flokksins.

Sævar skipaði annað sæti listans í kosningunum árin 2018 og 2022 og var samkvæmt tilkynningunni bæði gjaldkeri framboðsins og sitjandi bæjarfulltrúi, meðan oddvitinn var í fæðingarorlofi, þegar málið kom upp.

Í tilkynningunni segir að Sævar hafi verið samvinnufús við rannsókn málsins. Málinu hafi verið lokið með sátt og fjármunirnir þegar verið greiddir til baka.

Tjá sig ekki frekar um málið

Sævar Þór vildi ekki tjá sig nánar um málið þegar fréttastofa náði tali af honum.

Inga Fanney Rúnarsdóttir var formaður framboðsins þegar málið kom upp. Inga vildi ekki tjá sig frekar um málið, náin tengsl frambjóðenda geri málið bæði flókið og erfitt. 

Rödd unga fólksins á ekki lengur fulltrúa í sveitarstjórn en hefur ákveðið að gefa 5,8 milljónir króna til að styðja við enduruppbyggingu á skólalóð grunnskólans við Ásbraut. Framboðið hafði tilkynnt þann áttunda febrúar síðastliðinn að það myndi ekki bjóða fram lista í nýliðnum sveitarstjórnarkosningum. Stefnt sé að því að bjóða fram á ný í kosningum að fjórum árum liðnum og veita þar nýjum hópi ungs fólks rödd í bæjarstjórn.


Tengdar fréttir

Ungir fast­eigna­eig­endur tapi öllu við uppkaup ríkisins

Ungir fasteignaeigendur sem keyptu nýverið sína fyrstu eign í Grindavík tapa margir hverjir öllu sínu eigin fé og koma út í milljóna tapi við uppkaup ríkisins að sögn Grindvíkings. Hann vill að ríkisstjórnin geri meira til að grípa unga kaupendur. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×