Íslenski boltinn

Sara Björk tekur einnig að sér afreksþjálfun hjá Haukum

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Sara Björk er snúin aftur heim í Hauka.
Sara Björk er snúin aftur heim í Hauka. vísir / vilhelm

Haukar hafa gengið frá tveggja ára samningi við Söru Björk Gunnarsdóttur, sem mun einnig taka að sér afreksþjálfun hjá Haukum.

Söru Björk þarf vart að kynna en þar er á ferðinni ein allra besta knattspyrnukona sem Ísland hefur alið af sér og ljóst er hún verður mikill styrkur við lið Hauka í Lengjudeildinni.

Markmiðið er að Sara Björk spili sinn fyrsta leik fyrir Hauka gegn Keflavík þann 16. júlí. Þegar samningur hennar við Al-Qadsiah í Sádi-Arabíu er runninn út.

Ásamt því að spila með Haukum mun Sara Björk koma að afreksþjálfun innan knattspyrnudeildarinnar.

Halldór Jón Garðarson, Sara Björk og Brynjar Viggóson handsala samninginn.vísir / vilhelm

„Reynsla hennar á hæsta stigi knattspyrnunnar verður dýrmæt fyrir unga og efnilega leikmenn Hauka og mun án efa styrkja enn frekar afreksstarf félagsins,“ segir í tilkynningu Hauka.

Sara Björk kveðst afar ánægð að vera komin aftur heim á Ásvelli en nánar verður rætt við hana í Sportpakka Sýnar að loknum kvöldfréttum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×