Lífið

Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Hún biðlar til fólks að hafa augun opin.
Hún biðlar til fólks að hafa augun opin. Vísir/Samsett

Áhrifavaldurinn Lára Clausen biðlar til almennings að hafa augun pírð en hvítum Ford Mustang var stolið úr læstum bílakjallara við heimili hennar að morgni föstudags.

Hún greinir frá þessu í færslu á samfélagsmiðlum. Þar segir hún tvo menn hafa stolið bílnum.

„Yrði ótrúlega þakklát ef fólk hefði augun opin og myndi láta mig eða lögregluna vita ef þið yrðuð vör við bifreiðina eða manninn,“ segir hún.

Bíllinn ber skráningarnúmerið DRZ69.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.