107 fæddu heima og sjö án aðkomu heilbrigðisstarfsfólks Hólmfríður Gísladóttir skrifar 12. júní 2026 07:11 Á árunum 2022–2024 hófu alls 394 konur fæðingu í heimahúsi og lauk 355 þeirra með fæðingu í heimahúsi. Getty Árið 2024 voru skráðar 4.299 fæðingar á Íslandi, þar af 141 fæðing á Björkinni og Fæðingarheimili Reykjavíkur og 107 heimafæðingar. Þá er talið að sjö fæðingar hafi átt sér stað heima án aðkomu heilbrigðisstarfsfólks.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í skýrslu fæðingaskrár fyrir árið 2024. Þar segir að frjósemi kvenna haldi áfram að lækka og hafi aldrei verið lægri, 1,56 barn á hverja konu á barneignaraldri. Meðalaldur kvenna var tæp 29 ár og hlutfall mæðra 40 ára og eldri 4,3 prósent en 0,7 prósent mæðra voru yngri en 20 ára. Hlutfall fæðinga án inngripa var tæp 34 prósent, svipað og síðustu ár, en framköllun átti sér stað í 34 prósent tilvika. Hlutfall keisaraskurða var 14 prósent og áhaldafæðingar voru 8,2 prósent. Alvarlegar spangarifur greindust hjá 3,3 prósent kvenna en hlutfallið hefur farið lækkandi. Alls fæddust 59 tvíburar á árinu og þá fæddust 310 börn í kjölfar tæknifrjóvgunar hjá Livio Reykjavík. Burðarmálsdauði var 4,7 á hver 1.000 fædd börn en 20 börn létust burðarmálsdauða, þar af tvö í fjölburameðgöngum. Tíðni nýbura- og ungbarnadauða var 0,92 prósent eða 1,15 barn á hver 1.000 lifandi börn. Burðarmálsdauði er samheiti yfir andvana fæðingar og dauðsföll nýbura á fyrstu sjö dögunum eftir fæðingu. Í skýrslunni segir að þróun síðustu ára sýni mögulega hækkun sem mikilvægt sé að fylgjast með.
Börn og uppeldi Meðganga Heilbrigðismál Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Fleiri fréttir Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Sjá meira