Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sindri Sverrisson skrifar 12. júní 2026 17:18 Jemma Stapleton var spretthlaupari og vann til að mynda til verðlauna á Stawell Gift hlaupamótinu í fyrra. Getty/Kelly Defina Jemma Stapleton, frjálsíþróttakona frá Ástralíu, lést í fríi með fjölskyldu sinni í Taílandi, tveimur vikum eftir 25 ára afmælið sitt.
Stapleton var spretthlaupari og vann meðal annars til bronsverðlauna á hinu virta Stawell Gift hlaupamóti í Melbourne í fyrra. Ekki hefur verið gert opinbert hvernig hún lést en á söfnunarsíðu fyrir fjölskyldu hennar segir að hún hafi látist af slysförum. „Það er með mikilli sorg sem við tilkynnum að kærir vinir okkar, Stapleton-fjölskyldan, standa frammi fyrir ómældri sorg eftir að hafa misst sína ástkæru dóttur, systur og maka, Jemmu, í fríi með fjölskyldunni,“ segir á söfnunarsíðunni þar sem í gær höfðu þegar safnast yfir 13 milljónir króna. Tyler Gray, maki Stapleton, skrifaði á Instagram: „Ég fæ ekki með orðum lýst sársaukanum sem ég finn fyrir. Þú ert það besta sem hefur komið fyrir mig og ég er svo þakklátur fyrir ástina sem við deildum. Ég elska þig af öllu mínu hjarta.“ Bróðir hennar, Joel, birti einnig minningarorð á Instagram-síðu sinni og skrifaði: „Hvíl í friði. Ég elska þig svo mikið, ég lofa að gera þig stolta. Þú varst besta systir og besta vinkona mín, ég mun sakna þín að eilífu.“ View this post on Instagram A post shared by Lysterfield Junior Football Club (@lysterfieldjuniorfootballclub) Utanríkisráðuneyti Ástrala hefur gefið út að fjölskyldunni verði veitt aðstoð í Taílandi og fjölskyldan er þakklát fyrir þann hlýhug sem ástralska þjóðin hefur sýnt henni. „Við höfum fengið óteljandi skilaboð og fjárframlög og erum klökk yfir því. Takk fyrir,“ sagði pabbi Stapleton og bætti við: „Ef þið getið, látið þá sem eru í kringum ykkur vita að þið elskið þá og faðmið þá að ykkur. Maður veit aldrei hvenær maður fær að gera það í síðasta sinn.“
Frjálsar íþróttir Mest lesið Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Fótbolti Valskonur fallnar í fyrsta sinn Íslenski boltinn Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ Enski boltinn Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Íslenski boltinn Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Enski boltinn Bakgarðsáskorunin: Öskraði á sjálfan sig til að vekja sig Sport Ýtti við Jesus og fagnaði eins og Ronaldo Fótbolti Þurfum að vera óþolandi eins og Aron og Gylfi Fótbolti „Menn mega ekki vera of miklir töffarar“ Fótbolti Daníel Tristan kallaður inn í A-landsliðið Fótbolti Fleiri fréttir Valskonur fallnar í fyrsta sinn Afmælisbarnið dregur sig úr landsliðinu Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Frakkland - Ítalía | Halda Frakkar sigurgöngunni áfram? Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ Browns byrjar óvænt með látum Arnar ekki lengur yfirlýsingaglaður Sjáðu hvernig Portúgalar fóru með Dani eftir brotthvarf Ronaldo „Menn mega ekki vera of miklir töffarar“ Þurfum að vera óþolandi eins og Aron og Gylfi Chelsea fylgist með 16 ára brasilískum varnarmanni Álftanesi spáð sigri í Bónus-deild karla Sjáðu fund Arnars og Ísaks fyrir slaginn við Búlgaríu „Held ég muni pakka henni saman“ City-menn búnir að áfrýja Óðinn heim í KR Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Daníel Tristan kallaður inn í A-landsliðið Ýtti við Jesus og fagnaði eins og Ronaldo Bakgarðsáskorunin: Öskraði á sjálfan sig til að vekja sig Draumadagar Emelíu: Sjáðu fyrsta mark hennar í Meistaradeild Evrópu Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Vill gera breytingar en liðsstjórinn er ekki vandamálið Dagskráin í dag: Hvaða lið fellur úr Bestu deildinni? Útskýrir hvers vegna afsökunarbeiðnin fór á samfélagsmiðla Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Sjá meira