Bjó til sex mörk Fram á gamla heimavellinum Sindri Sverrisson skrifar 17. júní 2026 14:49 Taylor Hamlett fór á kostum í dag, skoraði þrennu og lagði upp þrjú mörk. vísir/Guðmundur Framkonur urðu í dag fyrstar til þess að tryggja sér sæti í undanúrslitum Mjólkurbikarsins í fótbolta með afar öruggum 7-1 sigri gegn FHL í Fjarðabyggðarhöllinni. Taylor Hamlett fór hamförum í leiknum.
Hin bandaríska Hamlett tók sín fyrstu skref í atvinnumennsku með FHL í fyrra en gekk svo í raðir Fram í apríl, eftir fall FHL úr Bestu deildinni. Hún þekkir því vel til í hinni umdeildu Fjarðabyggðarhöll, þar sem fyrirliði KR úlnliðsbrotnaði á báðum höndum á dögunum, og bæði skoraði þrennu og átti þrjár stoðsendingar á þeim klukkutíma sem hún spilaði í dag. Hamlett byrjaði á að skora fyrsta markið upp á sitt einsdæmi, eftir sprett inn í teiginn vinstra megin, og Alda Ólafsdóttir skoraði svo annað mark Fram á 39. mínútu þegar hún fylgdi á eftir skoti Hamlett sem var varið. Fullkomnaði þrennuna snemma í seinni Áður en flautað var til hálfleiks hafði Fram komist í 5-0. Alda stakk boltanum inn á Hamlett sem skoraði auðveldlega ein gegn markverði, og Sara Svanhildur Jóhannsdóttir skoraði svo með góðu skoti utan teigs eftir stutta sendingu frá Hamlett. Sú bandaríska lagði svo upp mark fyrir Unu Rós Unnarsdóttur áður en flautað var til hálfleiks. Hamlett var svo fljót að fullkomna þrennuna sína í seinni hálfleik, á 56. mínútu, og enn unnu þær Alda saman því Alda átti stungusendingu sem Hamlett náði og hún skoraði svo úr nokkuð þröngu færi. Hamlett var svo tekin af velli skömmu síðar og FHL fékk sín bestu færi eftir það. Alexis Wright átti stangarskot og skoraði svo skömmu síðar, á 73. mínútu, þegar hún minnkaði muninn í fimm mörk. Brookelynn Entz skoraði hins vegar sjöunda mark Fram skömmu síðar. Undanúrslit undir lok júlí Átta liða úrslitin halda áfram í dag því ÍBV tekur á móti FH klukkan 16. Á morgun mætast Þróttur og Víkingur klukkan 17:30 og Grindavík/Njarðvík mætir Stjörnunni klukkan 20:15. Áætlað er að undanúrslitin fari fram 25. og 26. júlí og úrslitaleikurinn á Laugardalsvelli 12. september.
Mjólkurbikar kvenna Fram FHL Mest lesið Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Fleiri fréttir Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Sjá meira