Hönnuðir nota blóm á mjög óvenjulegan hátt Freyja Þórisdóttir skrifar 18. júní 2026 14:36 Hönnuðirnir flottu Andrea og Svana Lovísa nota blóm á mjög óvenjulegan hátt. SÝN Vöruhönnuðurinn Svana Lovísa Kristjánsdóttir sem rekur verslunina og vinnustofuna Stúdíó Flamingo í Hafnarfirði hefur undanfarið unnið ásamt fatahönnuðinum Andreu Magnúsdóttur við að sauma blóm á skó og annað í sama heimi blóma og hönnunar. Vala Matt kynnti sér sköpunargleði þeirra vinkvenna í nýjasta þætti Ísland í dag.
Það vakti mikla athygli þegar Andrea saumaði blóm á spariskó fyrir fertugsafmælið hennar Svönu en sú síðarnefnda er þekkt fyrir ævintýralegar blómaskreytingar og hefur hún til dæmis notað falleg blóm til að skreyta kertastjaka og sali fyrir veislur. Hún segir boltann hafa byrjað að rúlla eftir að hún sá um skreytingar fyrir haustráðstefnu Advania fyrir tveimur árum. Það hafi verið fyrsta stóra verkefnið sem henni féll í skaut og hafi verið virkilega skemmtilegt. Hér fyrir neðan má sjá þáttinn í heild sinni. Þá útskýrir hún fyrir Völu að hún vinni mikið með það sem hún kjósi að kalla „eilífðarblóm“ en flestir þekki sem gerviblóm og að það sé hægt að gera meira fyrir minna vegna þess að þau kosti miklu minna en „alvöru“ blóm. Hún segir áferðina svipa mjög til raunverulegra blóma og að það hafi verið það sem hafi heillað hana mest. „Svona níutíu prósent af blómunum sem ég er með eru með þessari ekta áferð og silkiblóm eru það sem við erum oftar að sjá í verslunum og öðru úrvali en ég reyni að einblína á þessa ekta upplifun,“ segir Svana. Svana bjó til kertastjaka fyrir Hönnunarmars og segir þá hafa verið eins konar hliðarafurð sem hafi orðið óvart til. Þeir hafi verið meðal þess sem gestir í fertugsafmæli hennar hafi fengið tækifæri til að dást að. Veislan hafi verið haldin í vinnurýminu hennar og heppnast einstaklega vel með öllu tilheyrandi.
HönnunarMars Blóm Ísland í dag Mest lesið Björk og Yara nýtt par Lífið Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Lífið Bonnie Tyler er látin Tónlist Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Lífið Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Lífið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið Innipúkunum fjölgar enn Tónlist The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Lífið Fleiri fréttir Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Sjá meira