Bjórinn nefndur eftir lagi hljómsveitarinnar Kaleo Freyja Þórisdóttir skrifar 19. júní 2026 14:33 "Það er einhver bið í að bjórinn fari í almenna sölu, því mæli ég endregið með því að tónleikagestir um helgina láti þetta tækifæri ekki framhjá sér fara." segir Árni í tilkynningunni. Hari Borg Brugghús og Kaleo hafa snúið bökum saman og hefur nú verið gefinn út samstarfsbjórinn, Hey Gringo, sem dregur nafn sitt af samnefndu lagi sveitarinnar af plötunni Surface Sounds frá árinu 2021. Hann fer þó ekki í almenna sölu fyrr en síðar í sumar.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í tilkynningu en þar er einnig greint frá því að bjórinn detti ekki í verslanir fyrr en seint í sumar, líklega í ágústmánuði, en að tónleikagestir á KALEO-tónleikunum á Þingvöllum um helgina fái „einstakt forskot á sæluna“. Sól og sandur á milli tánna Hey Gringo verður fyrst í boði við afhendingu armbanda í verslun 66 gráður Norður á Hafnartorgi í dag, föstudaginn 19. júní, áður en hann verður fáanlegur á tónleikasvæðinu sjálfu á laugardag en fólki býðst að koma og smakka hann til klukkan 18:00 í dag. „Hugmyndin af bjórnum var að fanga alvöru sumarstemmingu: sól, sandur á milli tánna, fáránlega ferskur bjór og lime sneið ef fólk vill fara með þetta alla leið,“ segir Árni Theodór Long, Bruggmeistari hjá Borg Brugghúsi í tilkynningunni. Þá bætir hann við að hugmyndin um að brugga bjór af þessu taki hafi lengi blundað hjá þeim í brugghúsinu en að loks hafi henni verið hrundið í framkvæmd nú þegar leiðir þeirra lágu saman með Kaleo. „Það lá í augum uppi að bjórinn fengi nafnið Hey Gringo enda lagið ekkert eðlilega gott og grípandi og fangar þessa stemmingu fullkomlega. Það að fá tækifæri til að vinna með jafn stóru og flottu bandi og Kaleo er sannur heiður og virkilega skemmtilegt,“ segir Árni jafnframt og bætir við að meðlimir hljómsveitarinnar hafi mætt í brugghúsið og tekið þátt í að búa bjórinn til. „Kaleo-menn mættu að sjálfsögðu til okkar í brugghúsið, brettu upp ermar og tóku þátt í að skapa þetta með okkur og gáfu okkur bruggmeisturunum ekkert eftir í þeim efnum“.
Drykkir Áfengi Kaleo Mest lesið Björk og Yara nýtt par Lífið Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Lífið Bonnie Tyler er látin Tónlist Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Lífið Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Lífið Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Lífið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið Innipúkunum fjölgar enn Tónlist Fleiri fréttir Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Sjá meira