Lífið

Svona er stemningin á Þing­völlum í dag

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Margmenni er þegar mætt til að njóta á Þingvöllum.
Margmenni er þegar mætt til að njóta á Þingvöllum. Vísir/Viktor Freyr

Það er líf og fjör á Þingvöllum í dag þar sem fram fara stórtónleikar Kaleo. Búist er við tuttugu þúsund manns á svæðið en Viktor Freyr Arnarson ljósmyndari Vísis var á svæðinu í dag og fangaði stemninguna.

Líkt og fram hefur komið myndaðist töluverð bílaröð á svæðið síðdegis í dag. Það kom þó ekki í veg fyrir að sólþyrstir tónleikagestir nytu lífsins í dag þegar Kaleo menn stigu á svið og tóku svokallaða acoustic tónleika til að hita upp fyrir havaríið í kvöld.

Svona hefur stemningin verið í rjómablíðunni á Þingvöllum í dag.

Jökull í Kaleo er í sólskinsskapi í dag. Vísir/Viktor Freyr

Umgjörðin er öll hin glæsilegasta á Þingvöllum. Vísir/Viktor Freyr

Hljómsveitin hitaði upp í dag fyrir kvöldið.Vísir/Viktor Freyr

Veðrið gæti eiginlega ekki verið betra.Vísir/Viktor Freyr

Ljóst er að von er á töluvert fleira fólki á Þingvelli seinna í dag. Vísir/Viktor Freyr

Jakob Frímann skipuleggjandi með puttana á púlsinum.Vísir/Viktor Freyr

Viktor náði mynd af sviðinu í morgun, áður en allt fylltist af fólki. Vísir/Viktor Freyr





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.