Fundu nærri þrjú tonn af kókaíni í neðanjarðarbyrgi í Ástralíu Lovísa Arnardóttir skrifar 22. júní 2026 07:09 Myndinni var dreift af alríkislögreglunni í Ástralíu og sýnir magnir sem var fundið í byrginu. Vísir/AP Lögreglan í Ástralíu hefur lagt hald á 2,7 tonn af kókaíni. Um er að ræða mesta magn kókaíns sem hefur verið lagt hald á í Ástralíu. Í frétt BBC segir að það hafi fundist í neðanjarðarbyrgi í vestanverðri Sidney. Götuvirði efnanna er um 500 milljónir evra eða 72 milljarðar íslenskra króna.
Kókaínið fannst á föstudag undir fölskum gólfum í gámum á lóð í vestanverðri Sidney. Tveir karlmenn, 21 árs og 25 ára, reyndu samkvæmt frétt BBC að flýja lögreglu en voru handteknir á vettvangi og kærðir fyrir að vera með of mikið magn á sér af ólöglegum vímuefnum. Samkvæmt lögreglu var vímuefnunum smyglað inn í Ástralíu í gegnum smábæinn Midge Point í Norður-Queensland og er það hluti af skipulagðri glæpastarfsemi. Mennirnir sem voru handteknir eiga yfir höfði sér lífstíðarfangelsi verði þeir sakfelldir. Á myndinni er annar maðurinn sem var handtekinn. Alríkislögreglan í Ástralíu tók myndina. Vísir/AP Aðgerð lögreglunnar var hluti af stærri aðgerð sem hófst í maí, aðgerðinni Minjiang, í kjölfar þess að 40 kíló af kókaíni fundust fljótandi í vatni nærri Midge Point. Sex voru handtekin og kærð í kjölfar rannsóknarinnar í síðustu viku. Í frétt BBC kemur fram að lögregla hafi einnig lagt hald á skip við Salómonseyjur sem þau telja að hafi verið notað til að smygla efnunum. Í frétt BBC segir að þó svo að Ástralía sé afskekkt sé góður markaður þar fyrir viðskipti með vímuefni. Ástralir og Nýsjálendingar séu með hæsta kókaínneysluhlutfall í heimi, samkvæmt skýrslu Sameinuðu þjóðanna frá því í fyrra um notkun vímuefna um allan heim. Ganga langt í gróðaskyni Haft er eftir Stephen Jay, yfirmanni hjá áströlsku alríkislögreglunni, að málið sýni „hversu vel skipulögð og ákveðin þessi glæpasamtök eru og hversu langt þau eru tilbúin að ganga í gróðaskyni. „Rannsókn á uppruna fíkniefnanna stendur enn yfir og við munum vinna með alþjóðlegum og innlendum löggæsluaðilum okkar að því að bera kennsl á glæpasamtökin og alla aðra sem komu að því að greiða fyrir þessa meintu tilraun til fíkniefnainnflutnings.“
Ástralía Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Nóg sé komið af Trump Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira