Ákall frá samfélaginu að gera eins fyrir stelpur og stráka Áróra L Davíðsdóttir skrifar 22. júní 2026 15:37 „Þetta er auðvitað leiðinlegt og sorglegt ef þetta er að hafa bein áhrif á mótið á Króknum,“ segir framkvæmdarstjóri Knattspyrnuféla Akureyrar Knattspyrnufélag Akureyrar Framkvæmdastjóri KA og mótsstjóri N1-mótsins á Akureyri segir mótinu ekki stillt upp í samkeppni við Króksmótið á Sauðárkróki. N1- mótið fyrir sjötta flokk kvenna í knattspyrnu verða til í framhaldi af N1-móti stráka á sama aldri sem haldið hefur verið fjörutíu ár.
Mótsstjóri Króksmótsins á Sauðárkóki, Guðbjörg Óskarsdóttir, sagði minni þátttöku skýrast meðal annars af samkeppni við N1-mótið á Akureyri fyrir sama aldurshóp stúlkna. Hún segir lið og fjölskyldur keppenda yfirleitt velja eitt mót úti á landi yfir sumarið til þess að sækja og það hafi því mikil áhrif á minni mót þegar um sömu keppendur er að ræða. Sævar Pétursson, framkvæmdarstjóri KA, sagði ákall vera frá samfélaginu um að halda sambærilegt mót fyrir stelpur og stráka. Félagið hafi í fyrra tekið á móti ríflega fimm hundruð stelpum í tæpum hundrað liðum. Í ár séu um 105 lið skráð á mótið en skráningu sé ekki lokið og því gæti enn bæst í hópinn. Hann segist, ásamt mótstjórn, hafa rætt við forsvarsmenn Tindastóls síðastliðinn vetur og sagðist skilja þeirra sjónarmið en það eina sem hefði verið í stöðunni væri að hætta við mótið. Hann segir mótstjórn ekki geta tekið endanlega ákvörðun en að hann hafi rætt málin við stjórn knattspyrnudeildarinnar hjá KA sem hafi tekið ákvörðun um að halda samstarfinu við N1 áfram og þar af leiðandi einnig mótið. Langauðveldast hefði verið fyrir félagið að halda N1-mót í kvennaflokki um helgina næstu, í beinu framhaldi af N1-mótinu í karlaflokki, en tekin hefði verið ákvörðun um að halda mótið í ágúst, frekar en júní eða júlí, til þess að mótið væri ekki beint til höfuðs Króksmótinu. Sævar segist hafa rætt við stjórn Tindastóls og látið vita af niðurstöðunni. Ákvörðunin hafi ekki verið tekin „til þess að hjóla í Tindastól.“ Félagið hafi ákveðið að stækka samstarf sitt við N1 og þá sé eðlilegt að mót fyrir stelpurnar á sama aldri sé haldið í kjölfarið. „Í því samfélagi sem við erum í dag, þá sé það bara mjög eðlilegt að N1 komi að móti fyrir stráka og stelpur,“ segir hann. Hann segir að það sé ekki einsdæmi að tvö mót fyrir sama aldursflokk séu haldin sama ár. „Ég meina fimmti flokkur kvenna er með TM-mót í Vestmannaeyjum og Símamót í Reykjavík sko.“ Hann segir N1-mótinu ekki stillt upp í samkeppni við Króksmótið aftur á móti séu iðkendur og þjálfarar komnir með tvo valmöguleika. „ Þetta er auðvitað leiðinlegt og sorglegt ef þetta er að hafa bein áhrif á mótið á Króknum,“ segir hann. Aðspurður hvort KA bjóði þjálfurum hótelgistingu segir Sævar félagið ekki borga gistingu fyrir þjálfara. Félög heyri þó í mótshöldurum og þau séu stundum milliliðir hjálpi til við að útvega gistingu. Þau bjóði hins vegar þjálfurunum, bæði á stelpu- og strákamótinu, í Skógarböðin á meðan krakkarnir eru á tónleikum sem mótið stendur fyrir.
Mest lesið „Það var alveg skýrt að það ætti bara að drepa þetta mót hjá okkur“ Innlent Fjölskyldan í sárum og biður foreldra um að fylgjast með netnotkun barna Innlent Starmer segir af sér Erlent Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent Ferðalangar utan EES ekki tryggðir vegna veikinda eða slysa Innlent Telur að það eigi að gera bíla upptæka vegna utanvegaaksturs Innlent „Við náðum í hnakkadrambið á þeim“ Innlent Hrafni bjargað af þaki Byko Innlent Skartgripaþjófur sigldi undir fölsku flaggi í íbúðum aldraðra Innlent Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Innlent Fleiri fréttir Lögreglan lýsir eftir Ernu Athichu Segir ákall frá samfélaginu að gera eins fyrir stelpur og stráka Slagsmál tveggja í Kópavogi enduðu á slysadeild Árásin á Höfðatorgi: Þrír ákærðir fyrir tilraun til manndráps Aldrei fleiri fengið úthlutaða skólavist Kom ekki til skoðunar að gera Land Rover-jeppana upptæka BSO-stöðin komin á nýtt heimili Hrafni bjargað af þaki Byko Hlutu Vigdísarverðlaunin fyrir baráttu fyrir jöfnu aðgengi að þungunarrofi Skartgripaþjófur sigldi undir fölsku flaggi í íbúðum aldraðra „Það var alveg skýrt að það ætti bara að drepa þetta mót hjá okkur“ Segir þörf á fræðslu um kyrkingartak í grunnskólum Ferðalangar utan EES ekki tryggðir vegna veikinda eða slysa Fyrstu hvalirnir skotnir og Starmer segir af sér Fyrstu hvalirnir skotnir í nótt Reiðhjólauppboð lögreglu hefst í dag Fundu kannabisplöntur í húsi á Suðurnesjum Ekki lengur flestir sem útskrifast af náttúrufæðibraut Telur að það eigi að gera bíla upptæka vegna utanvegaaksturs Loka Sæbraut til austurs við Hörpu í kvöld Jarðskjálfti að stærð 3,1 í nótt Fjölskyldan í sárum og biður foreldra um að fylgjast með netnotkun barna Einn kærður fyrir stórfellda líkamsárás „Við náðum í hnakkadrambið á þeim“ Flytur sig í starfi um 900 kílómetra Ekkert sem bendi til fækkunar fugla við Varmá Sjósundsmaður tilkynntur til lögreglu „Það jákvæða við þetta er að þeir verða hundeltir núna“ Árekstur við Seljalandsfoss Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Sjá meira