Innlent

Hópuppsögn í borginni: Störfum fækkar um 40 prósent

Tómas Arnar Þorláksson skrifar
Hildur Björnsdótttir er borgarstjóri Reykjavíkur.
Hildur Björnsdótttir er borgarstjóri Reykjavíkur. vísir/vilhelm

„Borgarráð samþykkti í dag umfangsmiklar skipulagsbreytingar á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara. Tillögurnar eru liður í markmiðum stýrihóps meirihlutans um hagræðingu og stjórnkerfisbreytingar hjá Reykjavíkurborg. Markmið breytinganna er að einfalda stjórnsýslu, stytta boðleiðir, draga úr yfirbyggingu og nýta fjármuni borgarinnar betur. Um leið verði staðið vörð um framlínuþjónustu.“

Þetta segir í skriflegri yfirlýsingu frá Reykjavíkurborg en hún er undirrituð af borgarritara Þorsteini Gunnarssyni. 

Eins og greint hefur verið frá var samþykkt á fundi borgarráðs í dag að leggja niður svið samskipta og viðburða hjá Reykjavíkurborg og mannréttindaskrifstofu borgarinnar. Um tuttugu manns hefur verið sagt upp.

Í tilkynningu frá borginni segir að breytingarnar hafi áhrif á 27 stöðugildi af 42 á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara en þar undir heyra skrifstofa samskipta og viðburða og mannréttindaskrifstofa. 

Níu störf eru færð milli sviða en átján störf lögð niður. Eftir því sem fram kemur er gert ráð fyrir því að ráðið verði í einhver af nýjum stöðum eftir því sem innleiðingunni vindur fram. Þá verður einhverjum verkefnum útvistað. 

„Starfsfólki skrifstofunnar mun eftir að breytingar hafa að fullu komist til framkvæmda, hafa fækkað um minnst 40%. Um hópuppsögn er að ræða og hefur Vinnumálastofnun verið upplýst,“ segir í tilkynningunni.

Frétt er í vinnslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×