Forsetinn gaf öllum landsmönnum frí eftir að Ekvador komst áfram Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 26. júní 2026 15:30 Stuðningsmenn Ekvadors glöddust mjög eftir sigurinn á Þýskalandi á MetLife-leikvanginum í East Rutherford í gær. getty/Jussi Eskola Mikil gleði ríkir í Ekvador eftir að karlalandslið þjóðarinnar í fótbolta tryggði sér sæti í 32-liða úrslitum á heimsmeistaramótinu. Forseti Ekvadors gaf öllum landsmönnum frí í dag í tilefni sigursins.
Ekvador var í erfiðri stöðu fyrir leikinn gegn Þýskalandi í gær. Liðið var aðeins með eitt stig í E-riðli og þurfti að vinna Þjóðverja til að eiga möguleika á að komast í útsláttarkeppnina á HM. Leikurinn byrjaði eins illa fyrir Ekvador og mögulegt var því strax á 2. mínútu kom Leroy Sané Þýskalandi yfir. Aðeins sjö mínútum síðar jafnaði Nilson Angulo fyrir Ekvadora með fyrsta marki þeirra á HM í ár. Ekvador hélt áfram að sækja og pressan bar ávöxt á 77. mínútu. Þá skoraði Gonzalo Plata og kom Ekvadorum yfir. Fleiri urðu mörkin í leiknum ekki og Ekvador fagnaði sigri og það sem meira var, sæti í 32-liða úrslitum. Ekvadorar voru í skýjunum eftir sigurinn á Þjóðverjum. Daniel Noboa, forseti Ekvadors, var á leiknum á MetLife-leikvanginum og fékk stemmninguna og sigurgleðina beint í æð. Eftir leikinn óskaði hann liðinu og ekvadorsku þjóðinni til hamingju með sigurinn á X og lofaði landsmönnum fríi í tilefni árangurs liðsins. „Ég vil þakka leikmönnunum og þjálfaranum sem þrátt fyrir gagnrýni, móðganir og erfiða tíma tókst að rísa upp og færa okkur gríðarlega gleði hér í landi. Á morgun er frídagur! Lengi lifi Ekvador,“ skrifaði Noboa á X. Gracias a los jugadores y al técnico que, a pesar de las críticas, los insultos y los malos ratos que pasaron, lograron recuperarse y darle esta inmensa alegría al país entero.¡Mañana, feriado!Viva el Ecuador.— Daniel Noboa Azin (@DanielNoboaOk) June 25, 2026 Ekki liggur enn fyrir hvaða liði Ekvador mætir í 32-liða úrslitunum sem hefjast á sunnudaginn. Ekvador hefur einu sinni áður komist upp úr riðlakeppninni á HM, í Þýskalandi fyrir tuttugu árum. Ekvadorar töpuðu þá fyrir Englendingum með einu marki gegn engu. David Beckham skoraði markið með skoti beint úr aukaspyrnu. Noboa var aðeins 35 ára þegar hann tók við embætti forseta Ekvadors 2023. Hann er næstyngsti forseti í sögu landsins.
HM 2026 í fótbolta Ekvador Mest lesið Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Enski boltinn „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ Fótbolti Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal Íslenski boltinn FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Fótbolti Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Fótbolti Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Handbolti „Ef ég hefði fengið að velja þá hefði ég alltaf valið eldinguna“ Sport Viktor skoraði í fjórða sigrinum í röð Fótbolti „Maður er í þessu til þess að vinna titla“ Fótbolti Fram á toppinn og flautumark á Selfossi Handbolti Fleiri fréttir Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal Neitar að hafa tekið þátt í mannráni „Maður er í þessu til þess að vinna titla“ „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ „Við náðum einum af þessum stóru í ár“ „Maður skal brennimerkja þessa stund í hjarta sínu og sál“ Breiðablik - Afturelding 2-1 | Blikar bikarmeistarar í annað sinn Lagði upp á leið í undanúrslit FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Viktor skoraði í fjórða sigrinum í röð Markasúpa í Noregi Spenntur að sjá rauða hafið í stúkunni Meðvitaðir um pressuna Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus „Hljóta allir að sjá á hverjum pressan er í þessum leik“ Gummi Ben fór á kostum: „Hvað varst þú að gera?!“ „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Ólafur skilur Magga en er ekki sammála Róbert Frosti með slitið krossband og á leið í aðgerð Sjáðu markaveislur United og Bayern München Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Hætti strax eftir leik en forsetinn hafnar uppsögninni Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag United aldrei í vandræðum Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Bakverðir til bjargar Frakkar vilja Infantino burt Tvö íslensk hæfileikabúnt til Molde Sjá meira