Bíður milli vonar og ótta á meðan fjölskyldan er föst undir hótelrústum Eiður Þór Árnason skrifar 27. júní 2026 17:32 Luis Oliveros, bróðir Mary, liggur undir húsarústunum ásamt eiginkonu sinni Yeluismar López og sex ára dóttur þeirra Fernanda Oliveros. Aðsend Venesúelsk kona á Íslandi bíður milli vonar og ótta eftir fregnum af bróður sínum og fjölskyldu sem lentu undir braki hótelbyggingar í öflugum jarðskjálfta í landinu á miðvikudag. „
Í dag er kominn þriðji dagurinn og þau eru enn undir byggingunni. Og þau eru á lífi. Við höfum ekki nægilega margar vélar og réttu tækin til að ná þeim út. Stjórnvöld eru ekki að hjálpa,“ segir Mary Oliveros í samtali við Vísi. Bróðir hennar Luis Oliveros var á Hotel La Mar Suites í bænum Tucacas í norðvesturhluta Venesúela ásamt eiginkonu sinni Yeluismar López og sex ára dóttir þeirra Fernanda Oliveros þegar jarðskjálfti skall á miðvikudagskvöld. Mary segist vita að þau séu enn á lífi þar sem það hafi heyrst í þeim undir rústunum en engar fregnir hafa borist að undanförnu. Greint hefur verið frá því að skjálftar að stærð 7,5 og 7,2 hafi skekið Suður-Ameríkuríkið á miðvikudagskvöld. Talið er að tugþúsunda manna sé enn saknað og að 920 hafi farist. Stærri skjálftinn er talinn vera sá öflugasti sem hafi fundist í Venesúela í meira en öld. Klippa: Hótelrústir í Venesúela Mary segir að íbúar í bænum Tucacas hafi reitt fram hjálparhönd eftir náttúruhamfarirnar en það skorti stuðning stjórnvalda. „Ég hef fjölskyldu þarna til að hjálpa og vini en það er ekki nóg.“ Þrír þungir dagar Ekki er búið að koma raforku- og fjarskiptakerfum á svæðinu í samt horf og því hefur verið erfitt fyrir Mary að eiga í samskiptum við foreldra sína og aðra fjölskyldumeðlimi sem eru í Tucacas. „Þau eru bara að reyna sitt besta til að hringja hingað og láta mig vita hvað er í gangi. En það eru liðnir þrír dagar þar sem ég hef verið að hringja og fengið svo fá svör.“ „Það var svo erfitt að tala við þau. Þau eru að reyna að láta mig vita hvað er í gangi og að þau heyri í þeim undir rústunum. Við höfum ekki teymið og við höfum ekki búnaðinn til að ná þeim út.“ Eftirfarandi myndskeið sýnir hótelrústirnar og viðtal sem tekið var við föður Mary. View this post on Instagram A post shared by Patricia Ochoa (@patriochoaaaa) Voru næstum komin út þegar jarðskjálftinn varð „Þetta var fimm hæða bygging. Í dag klukkan 18 í Venesúela [22 að íslenskum tíma] verða liðnar 72 klukkustundir. Og þau eru enn þarna,“ segir Mary gráti næst. Fjölskyldan fór á hótelið til að sækja afmælisveislu á miðvikudagskvöld. Luis Oliveros og dóttir hans Fernanda Oliveros.aðsend „Þau voru næstum farin þegar þau gleymdu einhverju eða eitthvað gerðist og þá fóru þau aftur inn í hótelbygginguna og þá gerðist þetta. Bara á nokkrum sekúndum.“ Fleiri séu enn undir rústum hótelbyggingarinnar. „Í upphafi voru um fimmtán manns og aðeins tveir komust út. Svo eru fimm manns sem eru þegar látnir. Fjögurra er saknað, þeirra þriggja, og svo er ein manneskja í viðbót. Við höldum að þau séu öll í sama rýminu.“ Mary segir það mikla áskorun að vera stödd á Íslandi við þessar erfiðu aðstæður. Greint hefur verið frá því að helsti alþjóðaflugvöllur Venesúela hafi skemmst í hamförunum. „Ég get ekki farið þangað. Ég get ekkert gert. Ég get ekki fært neitt. Þau eru enn á lífi. Þau eru enn þarna og við höldum áfram að biðja mikið fyrir þeim.“
Venesúela Eldgos og jarðhræringar Náttúruhamfarir Jarðskjálfti í Venesúela 2026 Tengdar fréttir Dagurinn í dag sé örlagaríkur fyrir leit og björgun Ástandið hefur versnað með hverri klukkustund sem líður í Venesúela þar sem fólk grefur í rústum þremur dögum eftir að tveir jarðskjálftar, 7,2 og 7,5 að stærð, riðu yfir með skömmu millibili. Sérfræðingar segja lykilatriði að ná fólki út í dag. 27. júní 2026 08:32 Leitað í rústum bygginga og þúsunda er saknað Björgunarlið vinnur nú hörðum höndum að því að leita í rústum bygginga í Caracas höfuðborg Venesúela og á fleiri svæðum í norðurhluta landsins eftir jarðskjálftana öflugu sem riðu yfir í fyrradag. 26. júní 2026 07:43 „Ég á vin og bróðir hans er enn fastur undir rústum byggingar“ Óttast er að tugir þúsunda manna séu látnir eftir öfluga jarðskjálfta í Venesúela. Umfangsmikilar björgunaraðgerðir standa nú yfir og hafa hundruðir bygginga þegar hrunið. Maður frá Venesúela sem býr á Íslandi segist ekki hafa fest svefn í alla nótt vegna hamfaranna. 25. júní 2026 22:30 Mest lesið Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Sjá meira
Dagurinn í dag sé örlagaríkur fyrir leit og björgun Ástandið hefur versnað með hverri klukkustund sem líður í Venesúela þar sem fólk grefur í rústum þremur dögum eftir að tveir jarðskjálftar, 7,2 og 7,5 að stærð, riðu yfir með skömmu millibili. Sérfræðingar segja lykilatriði að ná fólki út í dag. 27. júní 2026 08:32
Leitað í rústum bygginga og þúsunda er saknað Björgunarlið vinnur nú hörðum höndum að því að leita í rústum bygginga í Caracas höfuðborg Venesúela og á fleiri svæðum í norðurhluta landsins eftir jarðskjálftana öflugu sem riðu yfir í fyrradag. 26. júní 2026 07:43
„Ég á vin og bróðir hans er enn fastur undir rústum byggingar“ Óttast er að tugir þúsunda manna séu látnir eftir öfluga jarðskjálfta í Venesúela. Umfangsmikilar björgunaraðgerðir standa nú yfir og hafa hundruðir bygginga þegar hrunið. Maður frá Venesúela sem býr á Íslandi segist ekki hafa fest svefn í alla nótt vegna hamfaranna. 25. júní 2026 22:30