Stærsta kókaínmál Íslandssögunnar og ráðherra sakar starfsmenn Hvals um fíflaskap Birgir Olgeirsson skrifar 30. júní 2026 18:01 Elísabet Inga Sigurðardóttir flytur áhorfendum fréttir kvöldsins. vísir Í fréttatíma Sýnar í kvöld verður fjallað um stærstu fíkniefnahaldlagningu Íslandssögunnar. Lögreglan lagði hald á 106 kíló af kókaíni í síðustu viku og sitja níu menn í gæsluvarðhaldi vegna málsins.
Þetta er annað stóra fíkniefnamálið á skömmum tíma en fyrr í mánuðinum var greint frá umfangsmiklu máli tengdu Norrænu. Lögreglan segir eftirspurnina eftir fíkniefnum gríðarlega og að samfélagið þurfi að horfa í eigin barm. Þá verður sagt frá því að Hvalur 8 kom með tíunda hval vertíðarinnar að landi í dag þrátt fyrir hótanir Paul Watson-samtakanna. Skip samtakanna bíður enn utan landhelgi Íslands. Atvinnuráðherra gagnrýnir jafnframt harðlega hegðun starfsmanna Hvals á höfninni og segir fíflaskapinn geta skaðað orðspor Íslands. Í þættinum verður einnig rætt við oddvita Húnabyggðar, sem vonast til þess að orka Blönduvirkjunar nýtist í auknum mæli til atvinnuuppbyggingar á Blönduósi með nýrri byggðalínu. Hann kallar jafnframt eftir því að meira verði virkjað á Blöndusvæðinu sem fyrst. Bjarki Sigurðsson lítur við í einni framsæknustu ísgerð landsins í Eyjafjarðarsveit, þar sem mímósuísinn sló í gegn en Jägermeisterísinn reyndist aðeins of sterkur. Loks verður farið í Suðursveit, þar sem Þórbergssetrið á Hala, fæðingarstað Þórbergs Þórðarsonar, fagnar 20 ára afmæli. Forstöðukona setursins segist bjartsýn á að verk rithöfundarins muni áfram lifa með þjóðinni. Allt þetta og meira til í kvöldfréttum á slaginu 18:30 á samtengdum rásum Sýnar, Bylgjunnar og Vísis. Klippa: Kvöldfréttir 30. júní 2026
Kvöldfréttir Mest lesið Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Innlent Fleiri fréttir Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Sjá meira