Fjögurra áratuga bið á enda hjá Mexíkóum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. júlí 2026 06:22 Johan Vasquez fagnar marki Raul Jimenez með tilþrifum en liðsfélagar hans hrúast yfir markaskoranum. Getty/Carl Recine Mexíkóar eru komnir áfram í sextán liða úrslit á heimsmeistaramótinu eftir afar sannfærandi 2-0 sigur á Ekvador í 32 liða úrslitunum í nótt.
Leiknum var fyrst seinkað um klukkustund vegna mikillar rigningar og eldinga sem ógnuðu Mexíkóborg. Mexíkóska liðið var nánast búið að gera út um þetta á fyrsta hálftímanum með mörkum frá Julián Quinones á 22. mínútu og Raul Jiménez á 31. mínútu. Quinones lagði upp seinna markið líka. Áhorfendur á hinum goðsagnakennda Estadio Azteca gátu því andað léttar í hálfleik. Í seinni hálfleik stjórnuðu Mexíkóar leiknum og tryggðu sér sigurinn. Í uppbótartíma sauð upp úr hjá Piero Hincapie, leikmanni Ekvador. Hann varð annar leikmaðurinn á HM til að fá rautt spjald fyrir að hylja munninn á meðan hann talaði við mótherja. Mexíkó er komið inn í 16-liða úrslitin með gríðarlegt sjálfstraust. Þeir hafa unnið alla fjóra leiki sína í keppninni til þessa og hafa enn ekki fengið á sig mark. Tvisvar sinnum áður hafa Mexíkóar komist í átta liða úrslit á HM, í bæði skiptin sem gestgjafar. Þessi sigur í nótt var fyrsti sigur Mexíkó í útsláttarkeppni í fjörutíu ár eða síðan á HM í Mexíkó 1986. Liðið var fyrir leikinn búið að tapa sjö leikjum í röð í útsláttarkeppni heimsmeistaramótsins. Í sextán liða úrslitunum bíður sigurvegarinn úr leik Englands og Austur-Kongó og síðan fer fram leikur í átta liða úrslitum gegn annaðhvort Noregi eða Brasilíu.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Framlengir í Vesturbænum Íslenski boltinn „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Fleiri fréttir Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Framlengir í Vesturbænum Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Danskir vallarstarfsmenn þurfa að vinna á næturna vegna Evrópuleikja Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Forsetinn segir Ronaldo enn vera lykilmann í landsliðinu Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Fjórar íslenskar stelpur mættust í markaleik í Texas „Hann sagði já takk“ Uppgjör: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Loksins sigur hjá Tottenham Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Glódís Perla og félagar áfram með fullt hús á toppnum Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum UEFA gefur Infantino lokafrest til að afhenta lykilskjöl „Hann kvartar yfir öllu“ Titillinn undir: „Farið illa með okkur í sumar“ Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Norska tromman á heimsmeistaramótinu seldist fyrir margar milljónir Segir félagið ekki vera að styðja hann lengur Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Agabrot hafa ekki áhrif á næsta landsliðsval Arnars Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Sjá meira