Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Magnús Jochum Pálsson skrifar 1. júlí 2026 13:45 Erna og Þorleifur eiga fyrir dótturina Þórhildi Nótt. Erna Mist Yamagata myndlistarkona og Þorleifur Örn Arnarsson eignuðust son þann 27. júní síðastliðinn, sex dögum eftir frumsýningu þeirra á óperunni Tannhäuser. Fyrir eiga þau dótturina Þórhildi Nótt sem fæddist í janúar 2025. „
Þessi litli prins mætti í heiminn þann 27.6,“ segir við mynd af drengnum sem birtist í sameiginlegri færslu Ernu og Þorleifs á Facebook um eittleytið í dag. „Hann hefur í aðdraganda heimkomunnar flakkað um heiminn, verið í Kína, Prag, Bayreuth og nú síðast í Zurich undanfarna tvo mánuði þar sem hann gæddi sér á hljóðheimi Tannhäuser eftir Wagner - en hetjan hún móðir hans hannaði þar leikmynd allt fram á settan dag,“ skrifar Þorleifur í færslunni. Erna Mist og Þorleifur Örn hafa verið saman síðan í upphafi árs 2024. Þau keyptu sér síðan saman hæð í Vesturbænum og eignuðust dótturina Þórhildi Nótt í byrjun árs 2025. Parið hefur jafnframt unnið mikið saman, þar á meðal að leiksýningunni Ketti á heitu blikkþaki sem Þorleifur leikstýrði og Erna gerði leikmynd og búninga. Sjá einnig: Erna Mist og Þorleifur keyptu útsýnishæð í Vesturbænum Síðan þá hefur parið verið mikið erlendis, Erna hélt myndlistarsýningu í Peking og Þorleifur leikstýrði Tristan og Ísold eftir Wagner í Bæjaralandi og Makbeð í Vínarborg. Nýjasta verkefni þeirra er óperan Tannhäuser eftir Wagner sem var frumsýnd 21. júní síðastliðinn í Zürich í Sviss. Þorleifur leikstýrði óperunni en Erna hannaði leikmyndina. Settur dagur drengsins var einmitt frumsýningardagur óperunnar en hann lét bíða aðeins eftir sér og kom í heiminn sex dögum eftir frumsýningu.
Barnalán Sviss Leikhús Ástin og lífið Tímamót Tengdar fréttir Erna Mist og Þorleifur Örn eiga von á öðru barni Erna Mist Yamagata myndlistarkona og Þorleifur Örn Arnarsson leikstjóri eiga von á öðru barni sínu saman. Fyrir eiga þau dótturina Þórhildi Nótt sem fæddist í janúar 2025. 13. maí 2026 10:54 Dóttir Ernu Mistar og Þorleifs Arnar fædd Dóttir Ernu Mistar Yamagata listakonu og Þorleifs Arnar Arnarssonar er nú fædd. Parið greinir frá því á Instagram í dag. „Bjóðum þessa fögru dömu velkomna í heiminn,“ segir Þorleifur við færsluna. 16. janúar 2025 22:48 Mest lesið Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Lífið Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Lífið Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Lífið Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Lífið Einstakt einbýlishús á 235 milljónir í Garðabæ Lífið Konan sem malaði Stebba og Eyfa á leið til landsins Tónlist „Það er engin skömm í krabbameininu“ Lífið Urður yfirgefur Kastljós Lífið María Hrund á lista Vogue yfir þau best klæddu Tíska og hönnun Usher þvertekur fyrir klónið Lífið Fleiri fréttir Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Usher þvertekur fyrir klónið „Það er engin skömm í krabbameininu“ Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Einstakt einbýlishús á 235 milljónir í Garðabæ Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Urður yfirgefur Kastljós Aubrey Plaza orðin mamma Lenti í mótorhjólaslysi daginn eftir gleðigönguna Raye og Jordan ástfangin í rússíbana Stjörnulífið: „Ég elska að vera hommalingur“ Perez Hilton þarf að fara í aðgerð eftir sjálfsskaða í beinu streymi á TikTok Þegar Davíð hafði afskipti af hjónabandi Ólafs og Dorritar Fræg feðgin snæddu kvöldmat á Horninu Minnast almyrkvans 1954: „Mér fannst þetta alveg nauðaómerkilegt fyrirbæri“ Týndi bókstaflega röddinni eftir áratugi af aga Krakkatía vikunnar: Hundar, ber og ælubogi Myndaveisla frá Gleðigöngunni: Borgarstjóri, biskup og risastór flæmingi Brekkusöngur á jafnsléttu hápunkturinn Euphoria-stjörnur á Íslandi Örlaganótt á Kiki varð að ást um ókomna tíð Fréttatía vikunnar: Úkraína, hoppukastali og George R. R. Martin Þetta táknar flæmingi Páls Óskars: „Kommentakerfið logar af fólki sem talar eins og 1986“ „Við nýtum tækifærið og ræðum lífið og tilveruna“ Héldu annað brúðkaup í leyni á sveitasetri í Surrey Trump deilir myndum frá Íslandsferðinni Sigurjón Sighvatsson hlýtur heiðursverðlaun Dóttir Ingu Lindar selur miðbæjarperlu „Ég mun aldrei treysta því að kerfið passi upp á son minn“ Sjá meira
Erna Mist og Þorleifur Örn eiga von á öðru barni Erna Mist Yamagata myndlistarkona og Þorleifur Örn Arnarsson leikstjóri eiga von á öðru barni sínu saman. Fyrir eiga þau dótturina Þórhildi Nótt sem fæddist í janúar 2025. 13. maí 2026 10:54
Dóttir Ernu Mistar og Þorleifs Arnar fædd Dóttir Ernu Mistar Yamagata listakonu og Þorleifs Arnar Arnarssonar er nú fædd. Parið greinir frá því á Instagram í dag. „Bjóðum þessa fögru dömu velkomna í heiminn,“ segir Þorleifur við færsluna. 16. janúar 2025 22:48