„Ha? Hvernig getur það verið?“ Valur Páll Eiríksson skrifar 2. júlí 2026 08:01 Elísa Kristinsdóttir hitti á nánast fullkominn dag í hlaupinu á Ítalíu. Vísir/Ívar Fannar Elísa Kristinsdóttir vann í þriðja sinn sterka hlaupakeppni á Ítalíu um liðna helgi. Hún hljóp 80 kílómetra í Ölpunum í steikjandi hitabylgju og var lang fyrst í mark.
Gríðarleg hitabylgja hefur gengið yfir Evrópu og halda flestir sig innandyra að kæla sig niður á meðan Elísa hljóp 80 kílómetra í Lavaredo-utanvegahlaupinu í ítölsku Ölpunum. „Það voru margir að senda á mig fyrir hlaupið: „Verður hlaupið út af hitanum?“ „Er sniðugt fyrir þig að hlaupa í þessum hita?“ en það var aldrei að stressa mig, þessi hiti. Ég er ekki að búa til óþarfa stress áður en maður fer inn í aðstæðurnar. Maður bara hleypur af stað og sér hvað gerist,“ Sérstök hitaþjálfun vikurnar fyrir hlaupið kom sér sérstaklega vel. „Það var að skila mjög góðum árangri í hlaupinu og hitinn hafði blessunarlega ekki áhrif á mig. Ég var líka dugleg að kæla mig í öllum lækjum sem ég sá, ég skóflaði derhúfunni ofan í lækinn og skvetti yfir mig. Það er mjög mikilvægt að kæla sig í svona heitum aðstæðum, drekka mikinn vökva og ég pældi mikið í saltinntöku. Það einhvern veginn small allt,“ segir Elísa. Elísa nýtti hvert tækifæri til að kæla sig niður í keppninni.Aðsend Hún hljóp vegalengdina átta klukkustundum og 59,57 sekúndum og náði þar með stóra markmiði sínu í hlaupinu að klára á undir níu klukkustundum. Hún var heilum þrettán mínútum á undan Marie Goncalves í endamarkið en sú endaði í öðru sæti. Hlaupið hefði vart getað gengið betur en það fór fram í fjalllendi í grennd við Dólómítana. Áttatíu kílómetra vegalengd með um 4.500 metra hækkun. Þá var hitinn mikill sökum hitabylgju sem gengur yfir meginland Evrópu þessi dægrin. Elísa í rásmarkinu, hún kom svo fyrst allra í mark.Aðsend „Almennt er það alveg þannig í svona löngum hlaupum að það kemur tímapunktur þar sem ég er orðin mjög þreytt, þetta er erfitt og mér er illt einhversstaðar eða eitthvað svoleiðis. En ekki í þessu hlaupi,“ „Ég var bara að njóta mín allan tímann, þetta er náttúrulega magnað umhverfi sem ég var að hlaupa í. Þetta var eins og að vera í póstkorti, án gríns. Mér leið ótrúlega vel, mér fannst þetta svo skemmtilegt. Það var aldrei tímapunktur sem var eitthvað erfiðari en annar, sem er eiginlega frekar ótrúlegt,“ Elísa fór yfir holt og hæðir og óhætt að segja að útsýnið hafi verið í lagi.Aðsend „Ég man eftir því að ég kíkti á úrið og það voru komnir 50 kílómetrar. Ég var bara „ha? Hvernig getur það verið? Það var svo lítið eftir, ætli ég geti hlaupið aftur til baka?“ Mér fannst þetta ótrúlega gaman,“ segir Elísa og hlær. Innslag úr Sportpakka gærkvöldsins má sjá efst. Að neðan má sjá lengri útgáfu af viðtalinu við Elísu.
Hlaup Mest lesið Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Fótbolti Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Fótbolti United aldrei í vandræðum Fótbolti Þórsarar komnir á blað Handbolti Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag Fótbolti Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Körfubolti Frakkar vilja Infantino burt Fótbolti Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Handbolti Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Handbolti Sextán íslensk mörk í Meistaradeildinni Handbolti Fleiri fréttir Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Hætti strax eftir leik en forsetinn hafnar uppsögninni Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag United aldrei í vandræðum Þórsarar komnir á blað Sextán íslensk mörk í Meistaradeildinni Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Bakverðir til bjargar Frakkar vilja Infantino burt Stærsta körfuboltakona heims gnæfir yfir mótherja sína Tvö íslensk hæfileikabúnt til Molde Dagbjartur í góðum málum á úrtökumóti DP World Tour Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta „Vona að það verði enginn munur á vellinum“ Fullkomin frumraun Ídu sem sló í gegn með þrennu Yamal gæti farið út af sporinu og ÍBV frumsýnir Kana Góðar og slæmar fréttir fyrir íslensku liðin sem ætla í Evrópudeildina Á ekki að snúast um karla gegn konum Reynir að skáka og máta „einn efnilegasta þjálfara í heimi“ ÍBV fær bandarískan liðsauka Stjórn Como gefur frá sér sína miða Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Nýr Camp Nou míglekur Aron Snær fékk albatross á úrtökumóti DP World Tour Sjáðu tvær þrennur og glæsilegt sigurmark Ødegaard Sjá meira