Klausturbleikjan fæst ekki lengur Kristján Már Unnarsson skrifar 1. júlí 2026 21:41 Sveinn Hreiðar Jensson er oddviti Skaftárhrepps. Egill Aðalsteinsson Ein þekktasta bleikjueldisstöð landsins, Klausturbleikja á Kirkjubæjarklaustri, hefur hætt starfsemi. Oddviti Skaftárhrepps segir þetta áfall fyrir lítið sveitarfélag og telur að strangt og dýrt eftirlit hafi átt þátt í því hvernig fór.
Í kvöldfréttum Sýnar var farið á Kirkjubæjarklaustur þar sem Klausturbleikja hóf starfsemi árið 1995. En í maímánuði í fyrra, þrjátíu árum síðar, var síðasti fiskurinn flakaður í vinnsluhúsinu undir Systrafossi. Núna er búið að fjarlægja fiskvinnslutækin og verið að innrétta húsið fyrir annars konar starfsemi. „Þetta er náttúrulega áfall hérna fyrir okkar sveitarfélag. Því að Klausturbleikja var náttúrulega ein fremsta bleikja landsins, allavega að okkar mati. Og eðlilega mikið áfall að missa hana og sérstaklega hérna fyrir veitingastaðina heima í héraði, að geta ekki fengið fisk beint úr héraði,“ segir Sveinn Hreiðar Jensson, oddviti Skaftárhrepps. Fyrrum vinnslustöð Klausturbleikju á Kirkjubæjarklaustri.Egill Aðalsteinsson Klausturbleikjan var alin upp í vatni undan hrauni Skaftárelda sem þýddi hreint vatn og stöðugt hitastig. Oddvitanum þykir vont að sjá störfin tapast. „Þetta skipti gríðarlega miklu máli, í ekki stærra sveitarfélagi en þetta, að missa sex til sjö heilsársstörf. Það er áfall fyrir okkur.“ Hjalti Halldórsson, stjórnarformaður og annar aðaleigandi Klausturbleikju, vildi ekki veita viðtal um örlög félagsins. Hann sagði fyrirtækið í biðstöðu og ekki útilokað að bleikjueldið yrði tekið upp að nýju, þó ekki með rekstri sláturhúss. En hvaða skýringar hefur oddvitinn á því sem gerðist? „Er þetta ekki bara harmsaga minni meðalstórra fyrirtækja? Að rekstrarskilyrði eru alltaf að verða erfiðari og erfiðari, bæði launakostnaður, að fá starfsfólk til vinnu. Hér náttúrulega vantar íbúðarhúsnæði og hefur vantað lengi fyrir starfsfólk sem þarf að koma utan frá. Við erum líka að tala um bara leyfisgjöld og eftirlitsaðila. Þetta er bara þungur rekstur fyrir minni og meðalstór fyrirtæki og við höfum náttúrulega eðlilegar áhyggjur af því,“ segir Sveinn. Eldisstöð Klausturbleikju er á jörðinni Teygingarlæk í Brunahrauni.Einar Árnason Oddvitinn segir áhyggjuefni að sveitarfélaginu hafi ekki tekist að tryggja nægt íbúðarhúsnæði en nefnir einnig opinbert eftirlit. -Er það að valda svona litlum fyrirtækjum vandræðum, heldurðu? „Ég tel það. Þetta er allt að verða þyngra og strangara og nýjar kröfur sem eru að koma upp. Og svo náttúrulega mikill kostnaður sem fylgir þessum leyfisgjöldum og eftirliti,“ svarar oddviti Skaftárhrepps. Í frétt Stöðvar 2 fyrir sex árum lýsti rekstrarstjóri Klausturbleikju henni sem algjöru sælgæti: Tengd skjöl eftirfylgni-skyrsla-klausturbleikjaPDF532KBSækja skjal 221213-eftirlit-klausturbleikjaPDF73KBSækja skjal 2100_Klausturbleikja_LokaskyrslaPDF129KBSækja skjal Klausturbleikja_-_Bref_med_eftirlitsskyrsluPDF260KBSækja skjal
Skaftárhreppur Fiskeldi Bleikja Landeldi Matvælaframleiðsla Matvælastofnun Heilbrigðiseftirlit Umhverfismál Alþingi Tengdar fréttir Segir vatnið eina gullið sem kemur úr Skaftáreldahrauni Kalt vatn sem sprettur undan Skaftáreldahrauni er grunnur tveggja eldisstöðva í Skaftárhreppi sem báðar sérhæfa sig í bleikjueldi. Fiskeldisfræðingur, sem stýrir öðru fyrirtækinu, segir vatnið í raun eina gullið í Eldhrauni. 26. júlí 2020 22:10 Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Klórar sér í kollinum Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Sjá meira
Segir vatnið eina gullið sem kemur úr Skaftáreldahrauni Kalt vatn sem sprettur undan Skaftáreldahrauni er grunnur tveggja eldisstöðva í Skaftárhreppi sem báðar sérhæfa sig í bleikjueldi. Fiskeldisfræðingur, sem stýrir öðru fyrirtækinu, segir vatnið í raun eina gullið í Eldhrauni. 26. júlí 2020 22:10