Ekki hrifinn af því að spila í bakverði Valur Páll Eiríksson skrifar 2. júlí 2026 13:31 Declan Rice leysti hægri bakvarðarstöðuna í gær. Richard Pelham/Getty Images Declan Rice, miðjumaður Arsenal og enska landsliðsins, þurfti að leysa hægri bakvarðarstöðuna á lokakafla 2-1 sigurs liðsins á Kongó í 32-liða úrslitum á HM í gær. Hann hrífst ekkert sérlega af því að spila stöðuna.
Rice er lykilmaður á miðju Englands og hefur fest sig í sessi sem einn allra besti miðjumaður ensku úrvalsdeildarinnar. Hann varð Englandsmeistari með Arsenal í vor. Hægri bakvarðarstaðan hefur verið hausverkur fyrir landsliðsþjálfarann Thomas Tuchel en Rice varð í gær fjórði leikmaður enska liðsins til að spila stöðuna, í fjórða leik mótsins. Tuchel sætti gagnrýni fyrir mót fyrir að skilja Trent Alexander-Arnold, hægri bakvörð Real Madrid, eftir heima. Tino Livramento var í hópnum en hann meiddist skömmu fyrir mót. Þeir Reece James og Jarell Quansah spiluðu í hægri bakverðinum í riðlakeppninni. Þeir voru báðir meiddir í gær og Djed Spence byrjaði í bakverðinum. Sá lenti í vandræðum með leikna kantmenn Kongó og var illa staðsettur í marki Kongóliða. Spence var skipt af velli seint í leiknum, í stöðunni 1-0 fyrir Kongó, fyrir miðjumanninn Eberechi Eze og Rice færður af miðjunni í bakvörðinn. Eftir þá breytingu skoraði Harry Kane bæði mörk Englands sem dugðu fyrir sæti í 16-liða úrslitum. „Þetta var líklega erfiðasti kafli leiksins þegar ég var hægri bakvörður,“ sagði Rice við breska ríkisútvarpið, BBC. „Þetta líklega of mikill körfuboltaleikur á köflum, fram og til baka, og við þurftum að taka á því. Því þeir eru með snögga vængmenn. Ég held að við höfum gert meira úr þessu en við þurftum,“ „Ég hef spilað þessa stöðu tvisvar eða þrisvar sinnum á þessu tímabili, ég þekki hlutverkið. Það er líklega ekki minn helsti styrkleiki, en ég geri hvað sem er fyrir liðið og stjórann,“ segir Rice og bætir við: „Ég sagði að ég myndi gera mitt besta og ég held að ég hafi staðið mig vel þar. Við skulum sjá hvað gerist í næsta leik, en vonandi þarf ég ekki að vera hægri bakvörður.“ England mætir heimamönnum í Mexíkó á Azteca-vellinum í Mexíkóborg í 16-liða úrslitunum sunnudaginn 5. júlí næstkomandi.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Everton - Man. United | Hörkuslagur í Liverpool Enski boltinn Haaland sló met Agüero Enski boltinn Víkingur - Fram | Toppslagur í Víkinni Íslenski boltinn ÍA - KR | Erkifjendurnir mætast Íslenski boltinn Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ofursunnudagur á Sýn Sport Sport Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Enski boltinn Falko farinn frá ÍR Körfubolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Fleiri fréttir Jamie Vardy mættur til Burnley Diljá Ýr bikarmeistari með Brann Valencia - Barcelona | Hörkuleikur á Mestalla FH - Þór/KA | Kemst FH aftur á toppinn? Þór - FH | Hafnfirðingarnir fara norður á Akureyri ÍA - KR | Erkifjendurnir mætast KA - Breiðablik | KA þarf að spyrna af botninum Stjarnan - ÍBV | Eyjamenn kíkja í Garðabæinn Víkingur - Fram | Toppslagur í Víkinni Hólmbert bjargaði stigi Everton - Man. United | Hörkuslagur í Liverpool Casemiro og Suárez skoruðu báðir Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Bayern München skoraði ekki í fyrsta sinn í 59 leikjum Sveindís Jane og Angel City unnu mikilvægan sigur Haaland sló met Agüero Modric ætlar að halda áfram með Króatíu Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Fred framlengir við Fram til 2028 Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Schalke náði í stig gegn Bayern Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Raphinha nýr fyrirliði Barcelona Rúst hjá Rosenborg Arbeloa í brasi Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Sjá meira