Saka ríkisstjórnina um svik Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 2. júlí 2026 09:12 Jónína Brynjólfsdóttir er forseti sveitarstjórnar Múlaþings. Magnús Hlynur Hreiðarsson Sveitarstjórn Múlaþings sakar ríkisstjórnina um svik með því að samþykkja samgönguáætlun þar sem Fjarðarheiðargöng eru sett aftar í forgangsröðunina. „
Sveitarstjórn Múlaþings tekur undir bókun heimastjórnar Seyðisfjarðar og harmar þau svik sem hafa raungerst með nýsamþykktri samgönguáætlun Alþingis,“ segir í bókun í fundargerð nýrrar bæjarstjórnar. Í byrjun desember kynnti Eyjólfur Ármansson innviðaráðherra nýja forgangsröðun jarðganga þar sem Fljótagöng voru sett efst á lista en Fjarðarheiðargöng færð mun neðar en gert var ráð fyrir. Sú ákvörðun uppskar mikla gagnrýni íbúa á Austurlandi og heldur sveitarstjórn Múlaþings áfram gagnrýninni. Samgönguáætlunin var samþykkt á Alþingi fyrir þinglok um miðjan júní. „Framganga stjórnvalda er grafalvarleg þar sem vegið er að trausti til þeirrar stefnumarkandi vinnu sem samgönguáætlun er ætlað að vera. Með slíku fordæmi verður vart hægt að taka mark á langtímaáætlun stjórnvalda héðan í frá,“ segir í bókuninni. Fordæma vinnubrögðin Sveitarstjórnin, sem er undir forystu Jónínu Brynjólfsdóttur, fulltrúa Framsóknarflokksins, segist ekki ætla að una vinnubrögðum Alþingis sem rýri verulega traust til löggjafarvaldsins. „Sveitarstjórn fordæmir að meirihluti umhverfis- og samgöngunefndar hafi lagt blessun sína yfir vinnubrögð ráðherra og viðurkenni þar með að verkefni á framkvæmdahluta áætlunar séu tekin af borðinu.“ Þau muni vinna áfram að því að koma Fjarðarheiðargöngum í útboð auk þess að koma bókuninni á framfæri við þingmenn og ráðherra.
Múlaþing Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Samgönguáætlun Samgöngumál Mest lesið Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Innlent Umferðarslys við Víðidal Innlent Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður Innlent Vara við snörpum hviðum Veður Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Fleiri fréttir Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Umferðarslys við Víðidal Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Sjá meira