Átta leikmenn Túnis féllu á lyfjaprófi Valur Páll Eiríksson skrifar 3. júlí 2026 14:10 Túnisar áttu agalegt heimsmeistaramót. Getty/Alejandro Espino Ólöglegt efni mældist í blóði átta leikmanna landsliðs Túnis sem féll á dögunum úr leik á HM karla í fótbolta. Þeim verður þó ekki refsað fyrir.
Túnis tapaði öllum þremur leikjum sínum á HM, fyrir Hollandi, Svíþjóð og Japan, samanlagt 2-12 og féll því úr keppni eftir riðlakeppnina án stiga. Þjálfari liðsins, Sabri Lamouchi, var rekinn eftir fyrsta leik, 5-1 tap fyrir Svíþjóð, á heimsmeistaramóti sem flestir Túnisar vilja eflaust gleyma sem fyrst. Reglubundin lyfjapróf eru framkvæmd á heimsmeistaramótinu og efnið clenbuterol mældist í sýnum átta leikmanna Túnis. Efnið er á bannlista Alþjóðalyfjastofnuninnar, WADA. Það er gjarnan notað af vaxtarræktarköppum til að missa fitu og viðhalda vöðvum í aðdraganda keppna. Það mun þó að líkindum enginn leikmannana átta hljóta refsingu vegna mælinganna. Rannsókn hefur leitt að því líkur að efnið hafi mælst í leikmönnunum sökum mengaðra matvæla í höfuðstöðvum liðsins í Mexíkó. Clenbuterol er nýtt til að bæta vöðvum á nautgripi fyrir slátrun í Mexíkó. Efnið hefur valdið vandræðum á stórmótum áður. Á HM U17 í fótbolta árið 2011 mældist clenbuterol í sýnum yfir 100 leikmanna. Hvorki WADA né FIFA gripu til refsinga þar sem allt benti til mengaðra matvæla, rétt eins og í tilfelli Túnisa.
HM 2026 í fótbolta Túnis Mexíkó Mest lesið Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Enski boltinn Víkingur - Fram | Toppslagur í Víkinni Íslenski boltinn Haaland sló met Agüero Enski boltinn ÍA - KR | Erkifjendurnir mætast Íslenski boltinn Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Þór - FH | Hafnfirðingarnir fara norður á Akureyri Íslenski boltinn Ofursunnudagur á Sýn Sport Sport Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Enski boltinn KA - Breiðablik | KA þarf að spyrna af botninum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Arsenal - Chelsea | Stórleikur á Emirates Jamie Vardy mættur til Burnley Diljá Ýr bikarmeistari með Brann Valencia - Barcelona | Hörkuleikur á Mestalla FH - Þór/KA | Kemst FH aftur á toppinn? Þór - FH | Hafnfirðingarnir fara norður á Akureyri ÍA - KR | Erkifjendurnir mætast KA - Breiðablik | KA þarf að spyrna af botninum Stjarnan - ÍBV | Eyjamenn kíkja í Garðabæinn Víkingur - Fram | Toppslagur í Víkinni Hólmbert bjargaði stigi Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Casemiro og Suárez skoruðu báðir Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Bayern München skoraði ekki í fyrsta sinn í 59 leikjum Sveindís Jane og Angel City unnu mikilvægan sigur Haaland sló met Agüero Modric ætlar að halda áfram með Króatíu Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Fred framlengir við Fram til 2028 Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Schalke náði í stig gegn Bayern Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Raphinha nýr fyrirliði Barcelona Rúst hjá Rosenborg Arbeloa í brasi Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin City marði Coventry Sjá meira