Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Sigurgeir Þorkelsson og Tómas Arnar Þorláksson skrifa 4. júlí 2026 12:30 Maðurinn var einn á ferð um miðja vegu milli Laugarvatnsvegar og Skjaldbreiðar. Vísir/Vilhelm Um klukkan fimm í morgun voru björgunarsveitir ræstar út vegna ungs manns sem skilaði sér ekki til baka úr ferð um uppsveitir Suðurlands. Maðurinn hafði haldið af stað í gærkvöldi einsamall og meðal annars ætlað sér að klífa fjöll.
Maðurinn varð fyrir því óláni að festa bifreið sína í aurbleytu á Flöguvallarvegi, um miðja vegu milli Laugarvatnsvegar og Skjaldbreiðar. Maðurinn var einn á ferð, náði ekki símsambandi þar sem bifreiðin festist og hélt því af stað fótgangandi. Maðurinn hafði verið í sambandi við ættingja sína á svæðinu og þegar hann skilaði sér ekki til baka fóru þau að hafa áhyggjur af honum. Björgunarsveitir frá Hellisheiði og austur að Þjórsá voru ræstar út. Það var síðan björgunarsveitarfólk sem keyrði fram á manninn, gangandi eftir vegi, um áttaleytið í morgun. Sem betur fer var veður á svæðinu gott og maðurinn hlaut ekki skaða af. Undanfarið hafa borist fréttir af fólki sem hefur átt erfitt með að ná sambandi við Neyðarlínu í kjölfar þess að 2G og 3G símsendar voru aflagðir. Lögreglan á Suðurlandi gat ekki staðfest að það væri ástæða þess að maðurinn gat ekki gert vart við sig. Það gat Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, ekki heldur en sagði að það væri sín tilfinning að þessum tilvikum færi fjölgandi.
Björgunarsveitir Lögreglumál Bláskógabyggð Mest lesið Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Sjö ára dómur Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Innlent Georg Páll er næsti forseti ASÍ Innlent Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Innlent Fleiri fréttir Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar „Þetta situr náttúrulega í manni“ Nauðsynlegt að ríkið fjármagni fleiri stöðugildi Sjá meira