Ekki tapað fótboltaleik í heilt ár Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. júlí 2026 22:32 Yassine Bounou hefur ekki tapað með landsliði eða félagsliði í meira en heilt ár. Það reynir svo sannarlega á það í næsta leik. Getty/ Stefan Koop Marokkóska fótboltalandsliðið hefur ekki tapað í síðustu 34 leikjum sínum og markvörður liðsins tapaði síðast fyrir meira en ári síðan.
Það er orðið langt síðan marokkóski markvörðurinn Yassine Bounou kynntist þeirri leiðinlegu tilfinningu að tapa leik. Bounou hjálpaði Marokkó að tryggja sér sæti í átta liða úrslitunum á heimsmeistaramótinu í fótbolta á laugardaginn og er nú sá afríski markvörður sem hefur haldið oftast marki sínu hreinu í sögu HM. Bounou er á sínu öðru heimsmeistaramóti sem aðalmarkvörður Marokkó og var að halda hreinu í fimmta sinn í 3-0 sigri Marokkó á Kanada í sextán liða úrslitum HM. Marokkó fór alla leið í undanúrslitin á HM fyrir fjórum árum þar sem liðið tapaði á móti Frökkum og það er annar Frakklandsleikur fram undan í átta liða úrslitunum. Bounou og félagar í marokkóska landsliðinu hafa enn ekki tapað leik í þessari heimsmeistarakeppni, unnu Skotland, Haíti og Kanada auk þess að gera jafntefli við Brasilíu og Holland. Marokkó sló síðan Holland út í vítakeppni þar sem Bounou varði víti. Bounou tapaði auðvitað með Marokkó á móti Senegal í úrslitaleik Afríkumótsins en það tap var ógilt af afríska knattspyrnusambandinu því Marokkómönnum var dæmdur sigur eftir að liðsmenn Senegal gengu af velli eftir vítadóm. Þeir snéru aftur, Marokkó klúðraði vítinu og Senegal vann síðan í framlengingu. Dómstóll afríska sambandsins ógilti sigurinn og dæmdi Marokkó 3-0 sigur. Þar sem sá tapleikur telur ekki þá hefur landslið Marokkó leikið 34 leiki í röð án taps eða síðan liðið tapaði á móti Kenýa árið 2025 í leik þar sem bestu leikmenn þjóðarinnar spiluðu ekki. Bounou spilar með Al Hilal í Sádi-Arabíu og það lið hefur ekki tapað leik síðan á HM félagsliða síðasta sumar. Liðið tapaði fyrir Fluminense frá Brasilíu í átta liða úrslitum 4. júlí 2025. Það var því nákvæmlega liðið eitt ár frá þeim leik þegar Marokkó vann Kanada 4. júlí 2026. Alls eru þetta orðnir 59 leikir í röð án þess að tapa, 43 hafa unnist og 16 endað með jafntefli. Það reynir á Bounou og félaga í næsta leik því frábært lið Frakka bíður. View this post on Instagram A post shared by 365Scores (@365scores)
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Framlengir í Vesturbænum Íslenski boltinn Snýr Trent aftur til Liverpool? Enski boltinn Fleiri fréttir „Átti erfitt með að bæta Barça“ Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Framlengir í Vesturbænum Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Danskir vallarstarfsmenn þurfa að vinna á næturna vegna Evrópuleikja Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Forsetinn segir Ronaldo enn vera lykilmann í landsliðinu Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Fjórar íslenskar stelpur mættust í markaleik í Texas „Hann sagði já takk“ Uppgjör: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Loksins sigur hjá Tottenham Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Glódís Perla og félagar áfram með fullt hús á toppnum Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum UEFA gefur Infantino lokafrest til að afhenta lykilskjöl „Hann kvartar yfir öllu“ Titillinn undir: „Farið illa með okkur í sumar“ Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Norska tromman á heimsmeistaramótinu seldist fyrir margar milljónir Segir félagið ekki vera að styðja hann lengur Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Sjá meira