Skemmdarvargar máluðu yfir regnbogafánann Sigurgeir Þorkelsson skrifar 8. júlí 2026 08:47 Skemmdarverk voru unnin við Grafarvogskirkju í nótt. Samsett Málað var yfir fána hinsegin fólks við tröppur Grafarvogskirkju í nótt með íslensku fánalitunum. Í samtali við fréttastofu staðfestir séra Arna Ýrr Sigurðardóttir að gjörningurinn hafi ekki verið á vegum kirkjunnar. „
Við erum ekki óvön því að það séu unnin skemmdarverk á tröppunum. Það var kominn tími á að mála þær og við munum gera það.“ Fáninn hefur verið við kirkjuna í rúm fimm ár og muni vera það áfram. Séra Arna sendir út hvatningu: „Við lýsum eftir fólki til að koma og fríska upp á Pride-fánann.“ Arna Ýrr bendir á þessi meðferð fánast samræmist ekki fánalögum. Þau haldi Þjóðkirkjan í heiðri og flaggað sé daglega við Grafarvogskirkju, sem og aðrar kirkjur. Eins og fram kemur í máli Örnu hafa skemmdarverk áður verið unnin á tröppunum. Árið 2022, á svipuðum tíma árs, í aðdraganda Hinsegin daga sem fara fram í byrjun ágúst, sagði Vísir frá því að skemmdarverk hefði verið unnið á sömu tröppum með því að spreyja yfir hann: „Andkristur!“ (e. Antichrist!). Skemmdarverk var einnig unnið á tröppunum í júlí árið 2022.Grafarvogskirkja Eftir að sænsk fjölskylda hafði af góðmennskunni einni lagfært fánann var á ný krotað yfir hann, í þetta skipti Levitikus 20:13, sem er vísun í vers í þriðju Mósebók Biblíunnar sem segir að dauðarefsins liggi við samkynja kynlífi. Þónokkur vinna hefur farið í verkið. Var hér hópur fólks að verki?Vísir/Vilhelm Þáverandi sóknarprestur Grafarvogskirkju, og nú biskup, Guðrún Karls Helgudóttir sagði að athæfið yrði kært til lögreglu. Guðrún hefur látið sig málefni hinsegin fólks varða og hefur meðal annars sagt frá því að dóttir hennar sé trans. Seinna sama sumar, í ágúst 2022, voru unnin skemmdarverk við Hjallakirkju í Kópavogi þar sem hinsegin fánar voru skornir niður af fánastöngum. „Við áttum að finna hann þarna,“ sagði séra Sunna Dóra Möller, sóknarprestur í Hjallakirkju, á sínum tíma og vísaði þar í hvernig fáninn var skilinn tættur eftir á jörðinni. Prestar Grafarvogskirkju hafa lengi látið sig málefni hinsegin fólks varða. Vísir/Vilhelm Um viku síðar var síðan greint frá fleiri skemmdarverkum þegar hinsegin fánar voru skornir niður af fánastöngum við stöð Orkunnar í Suðurfelli. Fréttin hefur verið uppfærð með frekari viðbrögðum frá séra Örnu Ýrr.
Hinsegin Þjóðkirkjan Íslenski fáninn Reykjavík Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira