Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Atli Ísleifsson skrifar 9. júlí 2026 07:53 Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseti og Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra við upphaf fundarins í Ankara. EPA Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og aðrir leiðtogar NATO-ríkjanna fengu skammbyssu að gjöf frá Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseta við lok leiðtogafundar NATO í Ankara í gær. Nafn hvers og eins leiðtoga var áletrað á byssuna sem sá fékk að gjöf og fylgdi kassi af skotfærum með, auk græja til að hreinsa byssuna.
Erlendir fjölmiðlar greina frá því að Tyrklandsforseti hafi gefið öllum leiðtogum NATO-ríkjanna og nokkrum til viðbótar skammbyssu að kveðjugjöf þar sem nafn viðkomandi hafði verið áletrað. Fjölmargir erlendir fjölmiðlar segja að um skammbyssu af gerðinni Sarsilmaz SR 38 hafi verið að ræða. Sarsilmaz er tyrkneskur byssuframleiðandi. Sarsilmaz Ólafur Kjaran Árnason, aðstoðarmaður Kristrúnar, staðfestir í samtali við fréttastofu að Kristrún hafi einnig fengið slíka skammbyssu að gjöf. Hann segir að byssan verði nú flutt í sendiráð Tyrklands gagnvart Íslandi sem staðsett er í Osló í Noregi. Þegar byssan hefur verið formlega móttekin í Osló og gerð óvirk verður hún líklega flutt til Íslands. Í frétt Aftonbladet segir að einhverjir leiðtoganna hafi ákveðið að skilja sínu byssu eftir í Tyrklandi þar sem þeir sáu fram á að erfitt myndi reynast að koma henni aftur til heimalandsins. BBC segir þannig frá því að byssu Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, sé að finna í sendiráði Bretlands í Tyrklandi þar sem óheimilt er að flytja virk skotvopn til Bretlands. Er reiknað með að hún verði tekin í sundur áður en hún verður flutt heim. Leiðtogafundur NATO stóð yfir í Ankara frá þriðjudegi til miðvikudags.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur NATO Tyrkland Skotvopn Öryggis- og varnarmál Sendiráð á Íslandi Tengdar fréttir Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins í Tyrklandi lauk í dag en þar fór Bandaríkjaforseti mikinn og hélt áhuga sínum á Grænlandi til streitu. Forsætisráðherra segir mikla hlýju hafa einkennt fundinn og vel fór á milli hennar og Donalds Trump. 8. júlí 2026 18:52 Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Donald Trump Bandaríkjaforseti segir samtal Bandaríkjamanna og Írana vera komið á endastöð. „Ég nenni ekki að fást við þá lengur. Þeir eru úrhrök,“ sagði forsetinn í Ankara í morgun. „Þeir eru veikir, þeir eru grimmir... ofbeldisfullt fólk.“ 8. júlí 2026 08:40 Mest lesið Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Erlent „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Innlent Kílómetragjaldið hækkar Innlent „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Innlent Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi Innlent Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Sjá meira
Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins í Tyrklandi lauk í dag en þar fór Bandaríkjaforseti mikinn og hélt áhuga sínum á Grænlandi til streitu. Forsætisráðherra segir mikla hlýju hafa einkennt fundinn og vel fór á milli hennar og Donalds Trump. 8. júlí 2026 18:52
Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Donald Trump Bandaríkjaforseti segir samtal Bandaríkjamanna og Írana vera komið á endastöð. „Ég nenni ekki að fást við þá lengur. Þeir eru úrhrök,“ sagði forsetinn í Ankara í morgun. „Þeir eru veikir, þeir eru grimmir... ofbeldisfullt fólk.“ 8. júlí 2026 08:40