Ver afskipti Trumps og segir dómarann vafasaman Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 9. júlí 2026 09:04 Andrew Giuliani ræddi um heimsmeistaramótið, sem nú stendur yfir, við fjölmiðla í gær. getty/James Devaney Andrew Giuliani, formaður starfshóps Hvíta hússins vegna heimsmeistaramótsins í fótbolta, hefur varið afskipti Donalds Trump Bandaríkjaforseta að því að fá banni Folarins Balogun aflétt. Giuliani segir að dómarinn sem rak bandaríska framherjann út af sé vafasamur pappír.
Brasilíski dómarinn Raphael Claus gaf Balogun rauða spjaldið þegar Bandaríkin unnu Bosníu, 2-0, í 32-liða úrslitum HM. Bannið var hins vegar gert skilorðsbundið og Balogun gat því spilað gegn Belgíu í sextán liða úrslitum. Það dugði skammt því Bandaríkin töpuðu leiknum, 4-1, og þátttöku þeirra á HM er því lokið. Trump stærði sig að aðkomu sinni af því að banni Baloguns var aflétt og sagði að Claus væri frekar grunsamlegur í ljósi fortíðar hans. Trump vísaði þarna væntanlega til rannsóknar á vegum brasilíska þingsins á hagræðingu úrslita þar í landi og hvernig dómurum var raðað niður á leiki. Claus var þó ekki sakaður um neitt misjafnt. „Okkur fannst það mjög grunsamlegt að þarna væri dómari sem hafði verið rannsakaður vegna hagræðingar úrslita og sérstaklega óreglulegra rauðra spjalda,“ sagði Giuliani við blaðamenn í gær. „Ofan á það bætist sú staðreynd að það hvernig VAR-ferlið var virkjað þarna var rangt. Við svona brot má í raun ekki nota hægspilun í VAR en þeir gerðu það. Þannig að þegar þessar tvær staðreyndir eru lagðar saman þá fannst okkur þetta mjög, mjög grunsamlegt.“ Vilja heiðarlegan leik Giuliani segir að það rétta í stöðunni hafi verið að óska eftir því að bann Baloguns yrði endurskoðað. „Sjáið til, bandarísk stjórnvöld, hvort sem það er í kjörklefanum eða á íþróttavellinum, vilja heiðarlegan leik, ekki satt? Okkur fannst þetta því mjög grunsamlegt, svo ekki sé meira sagt, alveg eins og flestum Bandaríkjamönnum, og ég held alveg eins og flestum sem litu á þetta með óhlutdrægum augum. Við erum ánægð með að bandaríska knattspyrnusambandinu tókst að leggja fram áfrýjunina og teljum að rétt niðurstaða hafi fengist,“ sagði Giuliani. Þegar brasilískur blaðamaður benti honum á að Claus hefði aðeins borið vitni í rannsókninni á hagræðingu úrslita viðurkenndi Giuliani að dómarinn hefði ekki verið sakaður um neitt glæpsamlegt. Hann sagði þó að Claus hefði verið bendlaður við rannsóknina vegna óreglulegra rauðra spjalda eins og hann orðaði það. Styðja Claus FIFA, Alþjóða knattspyrnusambandið, lýsti yfir stuðningi við Claus eftir gagnrýni Trumps. „FIFA lítur á Raphael Claus sem einn af fremstu atvinnudómurum heims og góðan liðsmann úrvalshóps dómara FIFA á heimsmeistaramótinu. Á ferli sínum hefur hann ávallt sýnt fyllstu fagmennsku og heilindi,“ segir í yfirlýsingu FIFA.
HM 2026 í fótbolta Donald Trump Tengdar fréttir Arnar tók upp hanskann fyrir FIFA: „Þetta virkar ekki þannig“ Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari Íslands í fótbolta, gaf lítið fyrir það að Gianni Infantino hafi haft áhrif á afléttingu banns Folarin Balogun, framherja bandaríska landsliðsins, á miðju heimsmeistaramóti. 8. júlí 2026 12:01 „Hreinlega spilling í gangi ítrekað“ Töluverður þrýstingur er á forráðamönnum FIFA eftir að banni framherja Bandaríkjanna var slegið á frest á miðju heimsmeistaramóti, að því er virðist fyrir tilstilli Donalds Trump Bandaríkjaforseta. 8. júlí 2026 11:00 Segist ekkert hafa með afléttingu bannsins að gera Folarin Balogun, framherji bandaríska landsliðsins, skilur að ákvörðun um að aflétta banni hans fyrir leik við Belgíu í 16-liða úrslitum á HM sé umdeild. Hann áréttar hins vegar að hann hafi ekkert haft með ferlið að gera. 7. júlí 2026 22:00 Belgar stigu Trump-dans og skutu föstum skotum Leikmenn Belgíu sögðust eftir sigurinn gegn Bandaríkjunum í nótt hafa viljað svara ranglæti FIFA úti á vellinum. Þeir dönsuðu líka að hætti Donalds Trump Bandaríkjaforseta, eftir pólitísk afskipti hans vegna leikbanns Folarin Balogun, framherja Bandaríkjanna. 7. júlí 2026 08:00 Kallar Infantino trúð: „Sleikjandi rassgatið á ríku köllunum“ Sérfræðingum í HM kvöldi á RÚV er lítt skemmt yfir ákvörðun FIFA að fresta leikbanni Folarin Balogun, leikmanns bandaríska landsliðsins, fyrir leik við Belgíu í 16-liða úrslitum mótsins í kvöld. Óskar Hrafn Þorvaldsson segir trúðasamkomu vestanhafs. 6. júlí 2026 22:42 Infantino gefur út yfirlýsingu vegna afskipta Trumps Gianni Infantino, forseti FIFA, segir sjálfstæði og óhæði dómsvalda hjá sambandinu vera algjört. Hann, og ekki síður Donald Trump Bandaríkjaforseti, hafi ekki haft áhrif á ákvörðun þess efnis að leikbann Folarin Balogun fyrir leik við Belgíu í kvöld hafi verið fellt niður. 6. júlí 2026 19:46 FIFA segir Belga ekki hafa rétt til að áfrýja FIFA hefur hafnað áfrýjun Belgíu um hæfi Folarin Balogun eftir að alþjóðaknattspyrnusambandið ákvað að fresta eins leiks banni hans fyrir leikinn gegn Bandaríkjunum í 16-liða úrslitum HM í kvöld. 6. júlí 2026 17:13 Sepp Blatter: „Rauðum spjöldum er ekki snúið við með pólitískum símtölum“ Sepp Blatter, fyrrverandi forseti FIFA, segir ótækt að pólitískum brögðum sé beitt til að breyta úrskurðum eins og virðist hafa verið gert í tilfelli bandaríska framherjans Folarins Balogun. 6. júlí 2026 12:34 Yfirlýsing UEFA: Óskiljanleg ákvörðun sem grefur undan trúverðugleika HM Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, hefur sent frá sér afdráttarlausa yfirlýsingu vegna fordæmalausu ákvörðunarinnar um að framherji Bandaríkjanna, Folarin Balogun, verði ekki í banni í kvöld vegna rauða spjaldsins sem hann fékk í síðasta leik á HM. 6. júlí 2026 10:34 Gagnrýnir ákvörðun FIFA: „Skítafýla af þessu“ Gary Neville hefur gagnrýnt ákvörðun FIFA, Alþjóða knattspyrnusambandsins, sem gerir bandaríska framherjanum Folarin Balogun kleift að spila næsta leik liðsins á HM, þrátt fyrir að hann hafi fengið rautt spjald í síðasta leik þess. 6. júlí 2026 08:01 Gagnrýnir ákvörðun FIFA: „Ég vissi ekki að þetta væri 1. apríl“ Rudi Garcia, landsliðsþjálfari Belgíu, líkti ákvörðun FIFA um að leyfa bandaríska framherjanum Folarin Balogun að spila í 16-liða úrslitum gegn gestgjöfunum við að kalla 5. júlí „1. apríl“, eftir að eins leiks banni leikmannsins var aflétt. Balogun hafði fengið beint rautt spjald í 2-0 sigri þeirra á Bosníu og Hersegóvínu í 32-liða úrslitum. 5. júlí 2026 21:24 Trump þakkar FIFA fyrir Hafi einhver efast um að togað hafi verið í spotta svo að stjörnuframherji bandaríska liðsins Folarin Balogun fengi að spila leikinn við Belgíu í sextán liða úrslitum HM annað kvöld fengu þeir sterka vísbendingu um annað þegar Bandaríkjaforseti tjáði sig um málið á samfélagsmiðlum. 5. júlí 2026 18:10 Mest lesið Uppgjörið: Hapoel Be'er Shiva - Víkingur 2-0 (3-2) | Bitnir í rassinn Íslenski boltinn Fulltrúar KSÍ á leið á neyðarfund: „Of snemmt að taka afstöðu“ Fótbolti Nefbraut samherja sinn á æfingu hjá Keflavík Íslenski boltinn Var sagt upp á stórafmælinu og er haldinn út í heim Handbolti Fíklar í fráhvörfum: „Öskra þarna á einn átta ára að gefa boltann“ Enski boltinn Fótbraut andstæðing og verður í banni þar til beinið grær Fótbolti „Er hægt að bjóða upp á þetta ár eftir ár?“ Íslenski boltinn Dyche segir að Heiðar hafi verið sá lélegasti á æfingum Enski boltinn Bavíanar í Bandaríkjunum vilja græða peninga Sport Gylfi ósáttur: „Ótrúleg ákvörðun hjá KSÍ“ Sport Fleiri fréttir Enska deildin mótmælir ákvörðunum Infantino Fifa gefur út hvað Argentína er rannsakað fyrir eftir heimsmeistaramótið Alda Ólafsdóttir : „Ótrúlega mikil trú í öllu liðinu“ Matthías Guðmundsson: „Þá skaðar það sálina líka“ Þróttur tók toppsætið af Aftureldingu tveimur mönnum fleiri „Hefði verið gott að enda á þrennu“ Theodór Ingi var hetja Fylkis í endurkomusigri Tómas Óli sló Gísla Gottskálk út með frábærri innkomu Uppgjörið: Hapoel Be'er Shiva - Víkingur 2-0 (3-2) | Bitnir í rassinn FC Kobenhavn komst naumlega áfram þrátt fyrir meiðsli Viktors Bjarka Uppgjörið: Fram - Valur 4-1 | Valur situr sem fastast á botninum Uppgjörið: ÍBV - FH 2-2 | Eyjakonur sóttu stig á lokamínútunni Uppgjörið: Breiðablik - Þór/KA 2-0 | Ólöf Sigríður á skotskónum og víti forgörðum Nefbraut samherja sinn á æfingu hjá Keflavík Fótbraut andstæðing og verður í banni þar til beinið grær Ný yfirlýsing UEFA: „FIFA getur ekki notað íþróttina til að auðga sig og vini sína“ Welbeck verður sá fyrsti í fjögur ár Enska deildin mun taka hart á platmeiðslum markvarða Fjöldi leikmanna hurfu eftir Gothia Cup-unglingamótið Sjáðu Orra skora á móti Aston Villa Fá rúmlega fimm milljarða króna fyrir að samþykkja áform Infantinos „Við þurfum að vera klárir í hvað sem er“ Fulltrúar KSÍ á leið á neyðarfund: „Of snemmt að taka afstöðu“ „Er hægt að bjóða upp á þetta ár eftir ár?“ Dyche segir að Heiðar hafi verið sá lélegasti á æfingum „Ég þarf bara að teipa þetta aðeins“ Húðflúraði andlit þjálfarans á sig Liverpool undirbýr viðræður við PSG um Barcola Blatter gagnrýnir áætlanir FIFA: „Mjög skaðlegt fyrir fótboltann“ Segja að VAR-reglunum hafi verið beitt rangt á HM Sjá meira
Arnar tók upp hanskann fyrir FIFA: „Þetta virkar ekki þannig“ Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari Íslands í fótbolta, gaf lítið fyrir það að Gianni Infantino hafi haft áhrif á afléttingu banns Folarin Balogun, framherja bandaríska landsliðsins, á miðju heimsmeistaramóti. 8. júlí 2026 12:01
„Hreinlega spilling í gangi ítrekað“ Töluverður þrýstingur er á forráðamönnum FIFA eftir að banni framherja Bandaríkjanna var slegið á frest á miðju heimsmeistaramóti, að því er virðist fyrir tilstilli Donalds Trump Bandaríkjaforseta. 8. júlí 2026 11:00
Segist ekkert hafa með afléttingu bannsins að gera Folarin Balogun, framherji bandaríska landsliðsins, skilur að ákvörðun um að aflétta banni hans fyrir leik við Belgíu í 16-liða úrslitum á HM sé umdeild. Hann áréttar hins vegar að hann hafi ekkert haft með ferlið að gera. 7. júlí 2026 22:00
Belgar stigu Trump-dans og skutu föstum skotum Leikmenn Belgíu sögðust eftir sigurinn gegn Bandaríkjunum í nótt hafa viljað svara ranglæti FIFA úti á vellinum. Þeir dönsuðu líka að hætti Donalds Trump Bandaríkjaforseta, eftir pólitísk afskipti hans vegna leikbanns Folarin Balogun, framherja Bandaríkjanna. 7. júlí 2026 08:00
Kallar Infantino trúð: „Sleikjandi rassgatið á ríku köllunum“ Sérfræðingum í HM kvöldi á RÚV er lítt skemmt yfir ákvörðun FIFA að fresta leikbanni Folarin Balogun, leikmanns bandaríska landsliðsins, fyrir leik við Belgíu í 16-liða úrslitum mótsins í kvöld. Óskar Hrafn Þorvaldsson segir trúðasamkomu vestanhafs. 6. júlí 2026 22:42
Infantino gefur út yfirlýsingu vegna afskipta Trumps Gianni Infantino, forseti FIFA, segir sjálfstæði og óhæði dómsvalda hjá sambandinu vera algjört. Hann, og ekki síður Donald Trump Bandaríkjaforseti, hafi ekki haft áhrif á ákvörðun þess efnis að leikbann Folarin Balogun fyrir leik við Belgíu í kvöld hafi verið fellt niður. 6. júlí 2026 19:46
FIFA segir Belga ekki hafa rétt til að áfrýja FIFA hefur hafnað áfrýjun Belgíu um hæfi Folarin Balogun eftir að alþjóðaknattspyrnusambandið ákvað að fresta eins leiks banni hans fyrir leikinn gegn Bandaríkjunum í 16-liða úrslitum HM í kvöld. 6. júlí 2026 17:13
Sepp Blatter: „Rauðum spjöldum er ekki snúið við með pólitískum símtölum“ Sepp Blatter, fyrrverandi forseti FIFA, segir ótækt að pólitískum brögðum sé beitt til að breyta úrskurðum eins og virðist hafa verið gert í tilfelli bandaríska framherjans Folarins Balogun. 6. júlí 2026 12:34
Yfirlýsing UEFA: Óskiljanleg ákvörðun sem grefur undan trúverðugleika HM Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, hefur sent frá sér afdráttarlausa yfirlýsingu vegna fordæmalausu ákvörðunarinnar um að framherji Bandaríkjanna, Folarin Balogun, verði ekki í banni í kvöld vegna rauða spjaldsins sem hann fékk í síðasta leik á HM. 6. júlí 2026 10:34
Gagnrýnir ákvörðun FIFA: „Skítafýla af þessu“ Gary Neville hefur gagnrýnt ákvörðun FIFA, Alþjóða knattspyrnusambandsins, sem gerir bandaríska framherjanum Folarin Balogun kleift að spila næsta leik liðsins á HM, þrátt fyrir að hann hafi fengið rautt spjald í síðasta leik þess. 6. júlí 2026 08:01
Gagnrýnir ákvörðun FIFA: „Ég vissi ekki að þetta væri 1. apríl“ Rudi Garcia, landsliðsþjálfari Belgíu, líkti ákvörðun FIFA um að leyfa bandaríska framherjanum Folarin Balogun að spila í 16-liða úrslitum gegn gestgjöfunum við að kalla 5. júlí „1. apríl“, eftir að eins leiks banni leikmannsins var aflétt. Balogun hafði fengið beint rautt spjald í 2-0 sigri þeirra á Bosníu og Hersegóvínu í 32-liða úrslitum. 5. júlí 2026 21:24
Trump þakkar FIFA fyrir Hafi einhver efast um að togað hafi verið í spotta svo að stjörnuframherji bandaríska liðsins Folarin Balogun fengi að spila leikinn við Belgíu í sextán liða úrslitum HM annað kvöld fengu þeir sterka vísbendingu um annað þegar Bandaríkjaforseti tjáði sig um málið á samfélagsmiðlum. 5. júlí 2026 18:10