Björk og Yara nýtt par Magnús Jochum Pálsson skrifar 9. júlí 2026 13:09 Yolana og Björk eru nýtt par og hafa verið að hittast upp á síðkastið. Tónlistarkonan Björk Guðmundsdóttir og mósambíska tónlistarkonan og vefhönnuðurinn Yara Polana eru nýtt par. Polana, sem gengur undir listamannsnafninu Monace, greindi frá sambandi þeirra á samfélagsmiðlum sínum fyrir skömmu.
Mix Mag Asia greindi fyrst frá nýja sambandinu og byggði það á Instagram-hringrás sem Polana birti í byrjun síðasta mánaðar af þeim saman. „Ég gæti ekki óskað mér betri kærustu,“ skrifaði Polana á ensku við myndina sem hún birti af parinu og „amo-te“ eða „ég elska þig“ á portúgölsku. Parið hefur sést saman víða um landið síðustu misseri, það náðist mynd af þeim saman á veitingastað í Reykjavík og á tónleikum Bjarkar fyrr á árinu. Mósambískur forritari, hönnuður og tónlistarkona Yara er 37 ára gömul tónlistarkona, framleiðandi, hönnuður og forritari frá Mósambík sem hefur búið og starfað á Íslandi í tæp fjórtán ár. Hún lærði grafíska hönnun við Listaháskóla Íslands, starfaði sem forritari hjá fyrirtækinu YAY og rekur tónlistarfyrirtækið Oktaves sem styður við sjálfstætt tónlistarfólk. „Upphaflega ætlaði ég til Noregs í nám, en manneskjan sem sá um þær ráðstafanir veiktist og ég flutti í kjölfarið til Íslands. Sem betur fer, þrátt fyrir erfiða tíma hjá henni, tókst þessari fallegu sál að gera ráðstafanir fyrir mig um inngöngu í Listaháskólann á Íslandi í staðinn,“ sagði Yara í viðtali við Mannlíf árið 2022. View this post on Instagram A post shared by ONDINA (@ondinathequeen) „Öll lönd hafa náttúrlega sína kosti og galla. Ég hef varið lunganum úr mínum fullorðinsárum á Íslandi og íslensk menning leikið gífurlega stórt hlutverki í mótun minni í þá manneskju sem ég er í dag. Svo ég kalla Ísland heimili mitt, með hlýju í hjarta,“ sagði hún einnig í viðtalinu. Björk Guðmundsdóttur þarf ekki að kynna fyrir neinum en hún er einn ástsælasti tónlistarmaður landsins og sennilega frægasti Íslendingur heims. Hún var gift listamanninum Matthew Barney frá 2000 til 2013 en lítið hefur farið fyrir ástarmálum hennar opinberlega síðan. Björk vildi ekki tjá sig um sitt persónulega líf þegar fréttastofa hafði samband til að forvitnast um sambandið.
Ástin og lífið Björk Tónlist Mósambík Tímamót Mest lesið 50+: Svefnherbergisskilnaður Áskorun Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Lífið „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Lífið Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Lífið Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lífið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið Lady Gaga orðin mamma Lífið Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Lífið Íslenskar Simpsons-þýðingar í bók: Teygju-túli ekki á færi gervigreindarinnar Menning Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Lífið Fleiri fréttir „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Sjá meira