„Allir eru hér að skemmta sér í sátt og samlyndi“ Telma Tómasson skrifar 9. júlí 2026 16:31 Hvert metið á fætur öðru hefur fallið á kynbótabrautinni á Landsmótinu og er það mál manna að hestakostur hafi sjaldan eða aldrei verið betri. Landsmót hestamanna Landsmót hestamanna, sem að þessu sinni er haldið á Hólum í Hjaltadal, stendur nú sem hæst. Fjöldi gesta er nálægt sex þúsund og von á fleiri áhorfendum í kvöld, sem vilja sjálfsagt ekki missa af hápunktum helgarinnar. „Mótið stendur fyllilega undir væntingum,“ segir Áskell Heiðar Ásgeirsson, framkvæmdastjóri LM 2026. „Allir eru hér að skemmta sér í sátt og samlyndi, allt er eins og það á að vera. Bara gaman.“
Skipt er nokkuð um gír í dag, fimmtudag, allri undankeppni er lokið og helgin framundan, en þá rekur hver viðburðurinn annan, úrslit í öllum flokkum og Landsmótssigurvegarar verðlaunaðir. Kynbótasýningum lauk einnig í dag með yfirlitssýningum hæst dæmdu stóðhestanna, en hvert metið á fætur öðru hefur fallið á Landsmótinu og er það mál manna að hestakostur hafi sjaldan eða aldrei verið betri.„Við erum mjög ánægð, allt hefur farið vel fram og veðrið hefur leikið við mótsgesti. Spáin er góð fyrir helgina og við hlökkum til daganna sem framundan er,“ segir Áskell Heiðar. Hápunktar framundan Allir viðburðir færast frá og með deginum í dag yfir á aðalvöll svæðisins og jafnvel þótt mótið hafi staðið yfir frá því á sunnudag, þá verður formleg setning þess í kvöld. Setningarathöfnin er jafnan hátíðleg með fánareið sem fulltrúar allra hestamannafélaganna taka þátt í. Logi Már Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, mun setja mótið, Magnús Barðdal, nýr sveitastjóri Skagafjarðar, mun flytja jómfrúarræðu sína og Gísli Gunnarsson vígslubiskup munu ávarpa gesti og leggja blessun sína yfir samkunduna. Þá syngur karlakórinn Heimir svo undir mun taka í Hjaltadalnum. Hannes Sigurjónsson lýtalæknir og Inga Cristina Campos í góðum gír á Landsmóti hestamanna. Þau notuðu annan fararskjóta til að komast á milli staða að þessu sinni.Vísir/Telma „Helgin framundan lítur vel út,“ segir Áskell Heiðar. „Veðurguðirnir eru með okkur í liði og auk allra þeirra hápunkta sem við fáum að njóta um helgina þá þéttist skemmtidagskráin, með kántrí og sveitastemningu eins og vera ber. Helgin verður toppurinn á Landsmótinu,“ segir framkvæmdastjóri LM 2026 kampakátur. Allt gengið ljómandi vel „Landsmótið hefur gengið ljómandi vel. Mér sýnist allir vera glaðir og að njóta,“ segir Friðrik Hreinn, varðstjóri hjá lögreglunni á Norðurlandi vestra, í samtali við Vísi. Lögreglan á Norðurlandi vestra heldur uppi lögum og reglu.Vísir/Telma „Helgin lítur vel út og mér sýnist veðurspáin ætla að halda. Ekkert stórvægilegt hefur komið upp á og engar tilkynningar hafa borist um uppákomur á tjaldsvæðinu. Við erum aðallega að fylgjast með fólkinu og umferðinni, en allt hefur til þessa gengið vel.
Hestaíþróttir Skagafjörður Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Er skrefareglan dauð í NBA? Körfubolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Körfubolti Fleiri fréttir Belgarnir láta Elísabetu fara Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Er skrefareglan dauð í NBA? Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Dagskráin: Skiptiborðið, stórleikur í körfunni og Íslendingar í Evrópu Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ „Þetta er bara einn leikur í einu“ Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Fór út í bíl og náði í byssu Messi klæddist Como-treyju Sjá meira