„Við erum að spila hérna á móti Paragvæ nánast“ Ester Ósk Árnadóttir skrifar 9. júlí 2026 22:06 Gylfi Tryggvason,þjálfari Grindavík/Njarðvík, var sáttur með sína leikmenn þrátt fyrir tap. Guðmundur/Vísir „Ég er ánægður með frammistöðuna, mér fannst við spila mjög fínan leik í dag. Þannig ég er bara sáttur við stelpurnar,“ sagði Gylfi Tryggvason þjálfari Grindavík/Njarðvík eftir 1-0 tap á móti Þór/KA á útivelli í kvöld.
Þór/KA skoraði á þriðju mínútu leiksins. „Við fáum á okkur ódýrt mark úr föstu leikatriði, við höfum ekki verið að fá á okkur mörg mörk úr föstum leikatriðum í sumar. Það var bara léleg augnabliks bilun í kerfinu. Svo erum við bara að þjarma að þeim nánast allan leikinn. Við erum að spila hérna á móti Paragvæ nánast.“ Gylfi fannst góð áskorun að reyna að brjóta niður Kínamúrinn eins og hann kallaði vörn Þór/KA. „Ég var límdur við sófann á HM að horfa á Paragvæ verjast á móti Frakkland og Þýskalandi og ég hélt svo mikið með þeim. Þær skora hérna eftir þrjár mínútur, eru í fallsæti og eru að berjast fyrir lífi sínu. Það er svo mikill andi í þessu liði sem við vorum að keppa á móti og um leið og þær náðu inn fyrsta markinu, allar til baka að verjast og það var ótrúlega skemmtileg áskorun fyrir okkur að mæta liðin sem að gjörsamlega lúfar út á velli til þess að verja forskot í sirka 90 mínútur. Ég hafði raunverulega bara ofboðslega gaman af því að reyna að brjóta niður þennan Kínamúr sem var byggður á Þórsvelli í dag.“ Hann var svekktur að ná ekki að brjóta vörn Þór/KA en ánægður með spilamennskuna hjá sínu liði. „Við náðum því ekki, það er ótrúlega erfitt. Þetta er eiginlega erfiðasta vörnin til að brjóta niður, það er 11 manna lágvörn en við náðum ekki að brjóta þær niður en út af velli erum við að spila mjög vel. Auðvitað fáum við nóg af færum til að vinna leikinn þó við höfum ekki verið vaðandi í færum en ég ber mikla virðingu fyrir því hvernig Þór/KA spilaði og ber aðeins meiri virðingu fyrir því hvernig við spiluðum leikinn. Mér fannst þetta bara skemmtilegur leikur.“ Grindavík/Njarðvík var mikið meira með boltann og dældu boltum meðal annars inn á teig. „Við vorum ekki nógu góðar að hugsa hvað væri að fara að gerast næst. Boltinn var oft kominn nálægt markinu en svo vantaði upp á að klára það. Vonandi eftir nokkra daga verða leikmenn orðnir betri í því en það kemur með meiri reynslu. Við höfum bara ekki mætt svona rosalegri lágvörn. Þú ert með 11 leikmenn inn í vítateig að verjast og það er erfitt.“ Eftir úrslit í þessum leik ásamt öðrum er pakkinn að þéttast í deildinni og Grindavík/Njarðvík komin í fallbaráttu. „Þetta setur okkur í fallbaráttu sem við höfum ekki verið neitt í, í allt sumar. Ef við höfðum unnið höfðum við komist níu stigum frá falli og verið bara í góðum gír en nú erum við bara 2-3 þremur stigum frá fallsæti. Þór/KA á fljúgandi siglingu, búnar að múra fyrir markið sitt þrjá leiki í röð og eru farnar að ná í úrslit. Við þurfum að fara að skora meira, Xg er ekki nógu gott og við þurfum að bæta það. Það er líka spennandi að sjá hversu trú við ætlum að vera okkar gildum núna þegar við erum komnar í fallbaráttu, er ég með hugrekkið til að spila svona eða þarf ég að fara að breyta til að sækja einhver úrslit. Þora leikmenn síðan að fylgja því plani sem verður sett upp, ég er mjög forvitin að sjá hvernig áhrif það hefur á okkur að vera komin í fallbaráttu. Ég er í raun bara mjög spenntur að sjá hvernig við tökumst á við þetta.“
Þór Akureyri KA Grindavík UMF Njarðvík Fótbolti Besta deild kvenna Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Handbolti Ældi blóði, braut rifbein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn Sport Fleiri fréttir „Mér finnst ég vera byggður öðruvísi“ „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Emil vill vera hjá Rúnari og hvað segir mamma hans Magga? Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars Ældi blóði, braut rifbein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Missti af leik með KR vegna herskyldu Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Dagskráin: Suðurnesjaslagur og Körfuboltakvöld „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ „Ef þig vantar stoðsendingu þá bara gefur þú á hann“ „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Ég er oftast mjög rólegur“ Skoruðu tvö síðustu mörkin og náðu jafntefli í Skógarselinu „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Sjá meira